Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
Okkur hættir til að hugsa í árum eða
áratugum – mannsævin er svo stutt.
Þegar við erum komin hátt upp til fjalla
þurfum við að hugsa í árhundruðum,
því þessi kerfi eru svo svifasein, það er
svo kalt og það er svo lítil umsetning.“
Ólafur segir að mosi taki ekkert
endilega yfir þegar landsvæði er
friðað fyrir beit. Vistkerfin og
tegundasamsetningin taki hins vegar
breytingum. „Blómplöntur og grös
fara síðan að vera meira áberandi
í þessum kerfum, sé ekki búið að
útrýma þeim. Þetta er það sem sést
við friðun úti um allt.“
Aðspurður út í rannsóknir á þessu
málefni, segir Ólafur að vandamálið
í þessum efnum sé tíminn. Fólk sé
hins vegar búið að friða land úti um
allt og þar sjáist þróunin á landinu.
„Þú setur ekki upp girðingu og kemur
svo þremur árum, eða jafnvel tíu
árum, seinna og dregur einhverjar
stórfenglegar ályktanir um hvað er
að gerast. Það er hægt að horfa á land
sem hefur verið lítið notað um langa
hríð og bera það saman við land sem
hefur verið mikið notað. Svo eru til
eyjar, klettasyllur og annað sem hafa
notið algerar friðunar, í landi sem
er handónýtt, og þá kemur í ljós að
þar vex kannski birkiskógur. Það er
engum blöðum um þetta að fletta og ég
held að flestir vistfræðingar landsins
séu á einu máli, þó það séu ekki allir.
Þetta er hitamál af því það tengjast
þessu hagsmunir, en þetta er ekki
hitamál innan vistfræðinnar. Það eru
þessir beitarhagsmunir og rómantísk
„ítök“ sauðkindarinnar í hugum
margra sem gera að verkum að það
verða skiptar skoðanir.“
Nýta af skynsemi
„Það eru mörg svæði á Íslandi þar sem
beit hefur verið hætt. Eftir því sem
beitarálag minnkar á svæðum, þá eykst
framleiðni og gróðurhula í landinu.
Það er ekki þar með sagt að við eigum
að hætta að nýta landið. Við eigum að
gera það af skynsemi og ekki nýta land
sem er í slæmu ástandi. Það má sjá
þessar breytingar, eins og í Þórsmörk,
sem stendur þó í nágrenni þriggja
eldfjalla. Sé beitin mikil, kemur hún
í veg fyrir endurnýjun birkiskóga,“
segir Ólafur.
Víða eru stórar „eyjar“ birkiskóga
sem þrífast þrátt fyrir beit, en hún
kemur í veg fyrir að þær breiðist
út. Þórsmörk hafi verið samansafn
birkieyja sem hafa tengst eftir að beit
létti. Þar sem fræuppspretta er til staðar
getur birkið breiðst mjög mikið út.
Þetta sést einnig á Skeiðarársandi,
þar sem sem nú vex upp sjálfsáður
birkiskógur. Ólafur segir það vera
þrátt fyrir beit, en hún er mjög lítil í
þessu tilfelli. „Þegar birkiskógar eru í
eðlilegu ástandi og vaxinn upp þannig
að sauðfé útrými honum ekki með
beitinni, þá eru beittir skógar mjög
fallegir, frjósamir og opnir. Skilyrðin
eru að það þarf að friða birkiskógana
af og til, til að tryggja það að þeir deyi
ekki út, því teinungur og fræplöntur
vaxa ekki upp á beittum svæðum.“
Ólafur nefnir í þessu samhengi
skógareyðingu sem á sér stað í
Skyndidal á Lóni, Heklubyggðum
og á Jökuldal. „Það er líka hægt
að sjá hvernig birkið kemur aftur
þegar beitinni er létt,“ segir Ólafur.
Þetta sé til dæmis hægt að sjá á
landgræðslusvæðum í Landsveit.
Umhverfiskröfu í
styrki og aðgerðir
„Áratugurinn sem nú er að líða er
áratugur endurheimtar vistkerfa
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Jafnframt hefur sáttmálinn um
líffjölbreytileika beint því til þjóða
að við tökum frá vistkerfi og höldum
þeim í náttúrulegu ástandi. Við þurfum
að endurheimta landgæði á stórum
svæðum á Íslandi. Það er hægt, oft
og tíðum með að stýra landnýtingunni
betur inn á svæði sem þola nýtinguna,
en hlífa öðrum. Það þýðir að við eigum
að breyta styrkjakerfi landbúnaðarins,
sem oft og tíðum styður við ranga
landnýtingu,“ segir Ólafur, og tekur
fram að það sé vandamál um heim allan.
„Evrópusambandið og fleiri hafa
lagt áherslu á að gera miklu ríkari
umhverfiskröfu í styrkjum og það
hefur miðað töluvert. Við getum
notað styrkina til að breyta þessari
landnýtingu á ekki löngum tíma.
Síðan þarf vitaskuld aðgerðir. Þær
aðgerðir geta meðal annars miðast
við að endurheimta birkiskóga
á landi sem nú er auðn og notað
kolefnisbindingu sem fjárhagslegan
hvata. Það sem skiptir máli fyrir okkur
Íslendinga til framtíðar er að endur-
heimta þessi náttúrulegu vistkerfi,
Re-wilding eða Regeneration er þetta
tundum kallað.“
Ólafur hvetur til að gætt sé hófs við
notkun á erlendum plöntutegundum
og telur að þegar fram líða stundir
muni skógrækt og önnur svæði með
mjög einsleitri tegundasamsetningu
framandi trjátegunda ekki vera
tekin gild til kolefnisjöfnunar.
„Ef umhverfisáhrifin eru mjög
neikvæð eða stuðla að miklum
breytingum á því sem er náttúrulegt,
þá er umhverfisávinningurinn um-
deilanlegur. Allt land sem er í fram-
för er hægt að fá til að binda mikið
kolefni, sérstaklega það sem hefur
verið í slæmu ástandi. Það er meira
kolefni í moldinni á hnattræna
vísu en í gróðri og andrúmsloftinu
samanlagt. Moldin er langmikil-
vægasti geymirinn þegar upp er
staðið,“ segir Ólafur. Hann nefnir að
erlendis finnist graslendi með svartri
mold. Sú jörð bindur mjög mikið
kolefni ef hún fær að vera graslendi
og er hóflega beitt. Vegna þeirra
agna sem myndast við efnaveðrun í
moldinni á Íslandi er eðli jarðvegsins
sérstakt og getur hann bundið mjög
mikið kolefni.
„Efnaveðrun hér er mjög ör.
Birkiskógar sem vaxa upp hér á
illa grónu landi binda á endanum
margfalt meira en frjósöm svartjörð
erlendis. Þetta eru mjög sérstök
kerfi og þetta gerist annars staðar á
eldfjallasvæðum jarðar.
Það er eðli íslenskrar moldar að
binda kolefni. Mikil nýting kemur í
veg fyrir að þessi binding verði og
það getur gengið á forðann.
Þar sem land er í slæmu ástandi,
þar sem mikið er af rofdílum og
það er opið, getur það andað frá sér
koltvísýringi í stórum stíl,“ segir
Ólafur Gestur Arnalds. /ÁL
Ólafur segir að birkiskógur geti vaxið á rýru landi ef beitar nýtur ekki við.
Þess sjást dæmi á eyjum og klettasyllum þar sem sauðfé hefur ekki náð til.
Hér sést birkihrísla á Héraði. Mynd / Áskell Þórisson