Bændablaðið - 08.06.2023, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
Suzuki á Íslandi
Skeifunni 17
Sími 568 5100
www.suzuki.is
LÁTTU EKKERT STOPPA ÞIG!
Suzuki fjórhjól eru með power stýri og 100% driflæsingu.
Þau eru létt, lipur og meðfærilegTraust, ódýr í rekstri
og þægileg í notkun.
SUZUK I FJÓRHJÓL
KINGQUAD 750AXI 4X4
VERÐ KR. 2.590.000
Hátíðir sumarsins:
Sól í hjarta, sól í sinni
HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ
Austurland & Austfirðir
22.–25. júní Humarhátíðin á Höfn. Þrjátíu ára afmæli hátíðarinnar
í ár og því mikið um skemmtan, gleði og húllumhæ fyrir alla fjölskylduna.
24. júní Skógardagurinn mikli. Árleg skógarhátíð Félags
skógarbænda á Austurlandi, Barra, Héraðs- og Austurlandsskóga,
Skógræktarfélags Austurlands og Skógræktar ríkisins verður haldinn í
Mörkinni í Hallormsstaðaskógi.
23.–25. júní Bakkafjörður Bakkafest, tónlist og allir hressir!
23.–25. júní Sólstöðuhátíð Kópaskers
24. júní–1. júlí. Gönguvikan „Á fætur í Fjarðabyggð“. Einn stærsti
útivistarviðburðum ársins, fjölskylduvænar gönguferðir og afþreying.
Norðurland & Norðausturland
14.–17. júní Bíladagar haldnir á Akureyri. Dagskráin
hljómar svo: 14. júní; Auto X, Drift. 15. júní; Rallycross, Græjukeppni,
Risa bílahittingur, Bíla Limbo, Hávaðakeppni. 16. júní; Götuspyrna.
17. júní; Bílasýning, Burnout.
23.–25. júní Bæjarhátíðin Hofsós heim – mikið stuð í gangi.
Til dæmis, þann 24. júní mæta Bjartmar og Bergrisarnir og syngja vel þekkta
smelli á borð við Ég er ekki alki, Týnda kynslóðin, Fimmtán ára á föstu o.fl.
22. júní Sólstöðuhátíð Grímseyjar
Reykjanes, Suðurland, Suðaustur- & Suðvesturland
10. júní Color Run hlaupagleðin haldin í Reykjavík
23.–25. júní Hvalfjarðardagar
23.–25. júní Jónsmessuhátíð Eyrarbakka
30. júní–2. júlí Bryggjuhátíð Stokkseyrar verður haldin
Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir
22.–25. júní Danskir dagar á Jónsmessu í Stykkishólmi auk
Landsmóts UMFÍ 50+
23. – 25. júní Brákarhátíð, fjölskylduhátíð í Borgarnesi
29. júní–2. júlí Írskir dagar á Akranesi
29. júní–2. júlí Ólafsvíkurvaka
29. júní–2. júlí Fjölskylduhátíð Bíldudals grænar baunir
Gleðigangan í Reykjavík, gengið niður Skólavörðustíginn. Mynd / Ragnar Th / Höfuðborgarstofa
Á döfinni í júní
Auðvitað hefur eitthvað ekki komist á lista, en hér að ofanverðu er ýmislegt
upptalið sem má skemmta sér við.
Nú þegar dagarnir hafa einkennst aðeins of lengi af
gráma og rigningu gefur hver sólarglæta von um heitt
og sólríkt sumar. Með það í huga er gott að rýna í
dagskrá sumarsins og hlakka til betri tíðar.
Að venju eru sólstöðuhátíðir víðs vegar um landið
og einhverjir velta sér í dögginni um Jónsmessuna.
Bíladagar á Akureyri kitla aðra, þrjátíu ára afmæli
Humarhátíðarinnar á Höfn ætti að verða lengi í manna
minnum, Color Run hlaupið gleður marga – a.m.k.
ef ekki rignir – og svo auðvitað hátíðir verslunar-
mannahelgarinnar í bland við allar þær tónlistarhátíðir,
Danska eða Franska daga, vökur og þess háttar sem
fyrirfinnast.
Eitthvað er um réttindagöngur á borð við
Druslugönguna í Reykjavík sem verður í ár haldin þann
23. júlí nk. Stendur Druslugangan fyrir því að færa
ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur.
Gleðigangan er önnur vel þekkt og vel sótt réttinda-
ganga hinsegin fólks, kröfuganga sem kallar eftir jafnrétti,
vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, en einnig til
að fagna því sem hefur unnist í baráttunni. Er hún haldin
í borgum víðs vegar um heim, þó ekki alltaf á sama tíma.
Á Íslandi hefur hún verið gengin í Reykjavík í
ágústmánuði frá árinu 2000 sem hluti af Hinsegin dögum
sem haldnir eru á sama tíma. Gleðigangan er að jafnaði
gengin fyrsta laugardag eftir frídag verslunarmanna og
upplagt að taka þátt í henni.
Hér til hliðar er svo örlítið yfirlit þess sem helst er á
döfinni í júnímánuði hérlendis. Júlí og ágúst verða eðlilega
næstir á dagskrá er líða tekur á sumarið og reynum við að
fjalla um það helsta sem er á döfinni þá mánuði.
Þeir sem hafa upplýsingar um skemmtanir eða
hátíðarhöld sem þeir vilja deila með öðrum mega hafa
samband á netfangið sigrunpeturs@bondi.is. /SP
Miðsumarshátíð norrænna manna, Jónsmessan, fagnar sumarsól-
stöðum, birtu og yl. Sumarsólstaðir, eða lengsti sólargangur ársins, er þó
21. júní en Jónsmessan haldin þann 24. júní, sex mánuðum fyrir aðfanga-
dag vegna tengingar hennar við kristni.
Er nafn Jónsmessunnar dregið af nafni Jóhannesar skírara og þýðir í raun
messa Jóhannesar, en eins og við tengjum við hana í dag fyllt náttúrutöfrum
og kyrrð, hátíð sumars, sólar og birtu. Hún hefur ætíð haft á sér ævintýralegan
blæ, en aðfaranótt Jónsmessunætur er þekkt sem ein fjögurra nátta ársins
sem magnaðastar þykja hvað varðar töfra á einhvern hátt.
Hinar eru jóla-, nýárs- og þrettándanótt. Þær eiga það sameiginlegt að vera
í nánd við sólhvörf, sumars eða vetrar og á þeim flestum rætast draumar, dýr
tala og allir yfirskilvitlegir hæfileikar og máttar koma í ljós, fólki til gleði
eða ama auk þess sem óskasteinar, lausnarsteinar, draumagras, lásagras og
huliðssteinar tala til hjörtu trúaðra á Jónsmessunni.
Það er að minnsta kosti víst að þessa messutöfra ættu menn að njóta til
fulls, að minnsta kosti innra með sér. /SP
Jónsmessan:
Hátíð töfra og sumarsólar
Miðnætursólin í Ásbyrgi í allri sinni dýrð. Mynd / Markaðsstofa Norðurlands
Ekki líður á löngu þar til þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, verður
haldinn hátíðlegur um land allt. Mynd / Ragnar Th / Höfuðborgarstofa