Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
Brasilísk stjórnvöld lýstu seint
í maí yfir neyðarástandi í
dýraheilbrigði í 180 daga vegna
fuglaflensutilfella í villtum fuglum.
H5N1-veiran er mjög smitandi
fyrir margar fuglategundir, þar á
meðal alifugla. Brasilía er stærsti
útflytjandi kjúklingakjöts á
heimsvísu.
Tilfelli H5N1 í villtum fuglum
hafa verið staðfest í landinu, einkum
á tveimur svæðum um miðbik
austurstrandarinnar, og hefur
landbúnaðarráðuneyti landsins sett
á fót neyðaraðgerðamiðstöð til að
samræma og skipuleggja aðgerðir
á landsvísu gegn vágestinum.
Útflutningur síðasta árs á kjúklinga-
kjöti frá Brasilíu nam um 9,7
milljörðum dollara, segir á fréttaveitu
Reauters. Samkvæmt leiðbeiningum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO) muni Brasilía að svo
stöddu ekki fyrirskipa sölubann á
alifuglum vegna fuglaflensunnar.
Mestu kjötframleiðslusvæðin eru í
Brasilíu sunnanverðri.
Kína er helsti kaupandi brasilísks
kjúklingakjöts og er talið líklegt
að fuglaflensutilfellin muni hafa
áhrif á innflutning frá Brasilíu.
Samkvæmt Alþjóðadýraheilbrigðis-
málastofnuninni (WOAH) hafa
nýlega fundist tilfelli fuglaflensu í
villtum fuglum og alifuglum á Ítalíu,
í Argentínu, Kanada, Tékklandi,
Danmörku, Ungverjalandi og
Suður-Afríku. Benda greiningar á
tilkynningum til WOAH um 18.620
UTAN ÚR HEIMI
Dýrasjúkdómar:
Brasilía lýsti yfir neyðarástandi
Brasilía hefur lýst yfir neyðarástandi í dýraheilbrigði landsins vegna
fuglaflensu. Mynd / E. Myznik
Pólsk bændasamtök vara við
því að mikill innflutningur
ódýrs kjúklingakjöts og eggja frá
Úkraínu beri innlenda fram-
leiðslu ofurliði.
Fyrir skemmstu fór að bera
á andstöðu pólskra bænda við
mikinn innflutning á úkraínskum
kornvörum, eftir að tollar á
innflutningi voru felldir niður í
kjölfar innrásar Rússa.
Nú hefur það sama gerst með
afurðir eggja- og kjúklingabænda
með þeim afleiðingum að afurða-
verð hefur hrunið. Poultry World
greinir frá.
Framleiðslukostnaður lægri
Áætlað er að framleiðslukostnaður
á eggjum og kjúkling í Úkraínu
sé 25 prósent lægri en í Póllandi.
Lækkað afurðaverð hefur leitt til
að pólskir bændur eiga erfitt með
að láta enda ná saman. Nokkrir
hafa brugðið til þess ráðs að blanda
kjúklingafóður heima
á bæ, en varað h e f u r
verið við að það geti minnkað
framleiðslu. Fulltrúar bænda hafa
sent pólska landbúnaðarráðuneytinu
beiðni um að taka málið til umræðu
á vettvangi Framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins.
Vilja setja framleiðslukröfur
Pólskir kjúklingaframleiðendur hafa
bent á að eina leiðin til að breyta
núverandi ástandi sé að framlengja
ekki niðurfellingu tolla á innflutningi
frá Úkraínu til Evrópusambandsins.
Engu breyti ef Pólland eitt og sér
taki aftur upp innflutningshömlur,
ef úkraínskur varningur kemst
óheftur til annarra landa ESB.
Innflutningurinn hefur áhrif á
markað allra sambandsríkjanna.
Kallað hefur verið eftir að auknar
kröfur verði settar á framleiðslu
þess kjöts sem flutt er inn, til að
jafna stöðu bænda.
Bændurnir bæta við að enginn
neiti því að þörf sé á að leggja
Úkraínu lið, en nauðsynlegt sé
að finna flöt sem kippir ekki
stoðunum undan innlendri land-
búnaðarframleiðslu.
/ÁL
Pólland:
Úkraínskur kjúklingur
kaffærir innlendan
Bændablaðið
kemur næst út
22. júní
Örverur eru langmikilvægasti
þátturinn í að ákvarða hversu
mikið kolefni geymist í jarðvegi,
samkvæmt nýrri rannsókn sem
birt var 24. maí í tímaritinu
Nature.
Í grein á vef bandaríska Cornell-
háskólans segir að rannsóknin veiti
mjög mikilvægar vísbendingar
með tilliti til loftslagsbreytinga og
bætts jarðvegsheilbrigðis, fyrir m.a.
landbúnað og matvælaframleiðslu.
Rannsóknin sé hin fyrsta sem mæli
hlutfallslegt mikilvægi örveruferla
í kolefnishringrás jarðvegs.
Rannsóknin, „Microbial Carbon
Use Efficiency Promotes Global
Soil Carbon Storage“, setji fram
nýja nálgun til að skilja betur
gangverk jarðvegskolefnis, með því
að keyra saman örverutölvulíkön,
gagnaaðlögunarkerfi og vélanám til
að greina umfangsmikil gögn sem
tengjast kolefnishringrásinni.
Niðurstöðurnar séu einkar forvitni-
legar m.a. í tengslum við búskapar-
hætti og aukið fæðuöryggi. Rann-
sakendur komust að því að geta
örvera til að geyma kolefni í
jarðvegi er hið minnsta fjórfalt
mikilvægari en nokkurt annað ferli,
þar á meðal niðurbrot lífefna. Þetta
séu markverðar upplýsingar því
jarðvegur jarðarinnar geymi þrefalt
meira kolefni en andrúmsloftið.
Mæld var skilvirkni kolefnisnotkunar
örvera, sem segi annars vegar til
um það magn kolefnis sem notað
var af örverum til vaxtar og hins
vegar hversu mikið var notað
til efnaskipta. Þegar kolefni sé
notað til vaxtar bindi örverur það
í frumum og að lokum í jarðvegi.
Notað til efnaskipta losni kolefni
sem aukaafurð í andrúmslofti sem
koltvísýringur, þar sem það virki sem
gróðurhúsalofttegund. Rannsóknin
sýni að vöxtur örvera sé mikilvægari
en efnaskipti til að ákvarða hversu
mikið kolefni geymist í jarðvegi.
Segir í frétt Cornell-háskóla að
kolefnisvirkni jarðvegs hafi verið
rannsökuð síðustu tvær aldir, en
þær rannsóknir aðallega snúist um
hversu mikið kolefni berist í jarðveg
úr plöntuleifum og rótum og hversu
mikið tapist út í andrúmsloftið í
formi CO2 þegar lífrænt efni brotnar
niður.
/sá
Jarðvegsrannsóknir:
Örverur lykillinn að bindingu
kolefnis í jarðvegi
Örverur gegna lykilhlutverki í að binda kolefni í jarðvegi samkvæmt nýrri
rannsókn.