Bændablaðið - 08.06.2023, Qupperneq 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
Eykur fóðurgæði Betri inntaka Meiri meltanleiki Heilbrigðari kýr Betri afkoma
BETRI ÁRANGUR MEÐ
JOSILAC íblöndunarefni
Stæðuplast
12*50m - 14*50m - 16*50m
SilaWRAP rúlluplast
75cm*1500m
Hvítt - Svart - Grænt
Öll verð eru án vsk
9.390 kr. pr./bréf
Afsláttur er
veittur þegar
keyptur er kassi -
10 bréf!
Athugið!
10.190 kr. pr./bréf
Verð frá: 41.614 kr.
Brettatilboð
17.450 kr.
Innsýn í efni
til orkuskipta
– Fróðleikur um orkumál og orkuskipti – 9. hluti
Ýmis frumefni og efnasambönd eiga
við orkuskipti. Hvað er skylt með
vetni og ammoníaki?
Vetni
Vetni (H) er einfaldasta og léttasta
frumefni alheimsins (um 75% alls efnis
sem sjá má). Tvær vetnisfrumeindir
mynda sameind (mólikúl) og þannig
er efnið að finna í náttúru jarðar á
loftkenndu formi (sem gas). Vetni er
einnig í fjölda sameinda með öðrum
frumefnum, t.d í vatni með súrefni
(O) eða með kolefni (C) sem metan
og sem flókin blanda af sameindum
með kolefni og vetni sem óhreinsuð
jarðolía. Vetni má framleiða t.d. úr
jarðgasi eða vatni. Í því tilviki er vatn
klofið í vetni og súrefni með raforku
(kallast rafgreining) og vetninu safnað
á geymi. Vegna umhverfisverndar er
mikilvægt að raforkan sé framleidd
með vistvænum hætti. Vetni er lit- og
lyktarlaust, mjög eldfimt og hættulegt
lífverum.
Ammoníak
Ammoníak er gulbrún og biturlega súr
lofttegund. Hún er efnasamband vetnis
(H) og niturs (N). Gasið er kæfandi
og eitrað. Ammoníak hefur verið
framleitt m.a. til áburðarframleiðslu.
Þá er nitur unnið úr andrúmsloftinu
og bundið vetni sem búið er til dæmis
með rafgreiningu vatns eins og gert
var í Áburðarverksmiðjunni.
Víðar er ammoníak þó framleitt
með bruna metans sem losar vetnið
(um leið myndast koldíoxíð –
koltvíildi) sem unnt er að tengja
við nitur. Ammoníak er nothæfur
vetnisberi fyrr vetnisvélar vegna þess
að unnt er að kljúfa efnið í vetni, til
nota á vélina, og nitur sem skilað er
út í loftið, þaðan sem það var unnið.
Alkóhól
Alkóhól eru efnahópur samsettur úr
vetni, kolefni og súrefni. Þekkust eru
metanól (tréspíri) og etanól (vínandi).
Báðar tegundirnar eru rokgjarnar,
eldfimar og eitraðar en metanólið
sýnu verra (einnig blandað). Etanól
(ásamt vatni) er vímugjafi áfengra
drykkja, algengast á bilinu um 4%
til 60% að stykleika. Alkóhóli er
blandað í jarðefnaeldsneyti (3 til 5%,
sums staðar meira) til þess að minnka
umhverfisáhrif útblásturs. Vélar geta
gengið á alls konar blöndum alkóhóls
og annarra efna og á hreinu alkóhóli.
Metanól er t.d. framleitt úr metani
í jarðgasi eða úr koldíoxíði sem er
fylgigas vinnslu á háhitasvæðum
(sbr. framleiðslu Carbon Recycling
í Svartsengi). Etanól er t.d. framleitt
úr gerjuðum sykurtegundum en líka
er unnt að nota hitakærar örverur
og plöntulífmassa (sbr. verkefni við
Háskólann á Akureyri).
Lífeldsneyti
Repjuolía og sojabaunaolía eru
dæmigert lífeldsneyti og fyrrnefnda
tegundin er framleidd í smáum stíl
á Íslandi (repjufræ pressuð og olían
hreinsuð). Fita úr plöntum eða dýrum
er grunnur lífeldsneytisolíu (sbr.
unnið eldsneyti úr húsdýrafitu eða
lýsi) en alkóhól eða skyld efni þarf
til framleiðslu sumra tegunda hennar.
Lífdísli er gjarnan blandað í
dísilolíu en hann er líka notaður hreinn
og er orkuinnihald hans heldur lægra
en dísilolíunnar.
Metan
Metan eða hauggas (samband vetnis
og kolefnis) verður m.a. til við
rotnun lífrænna leifa. Þjappað og
hreinsað metan úr úrgangshaugum
(landfyllingum) er nýtt víða um lönd
sem vélaeldsneyti. Einng er metan
framleitt í þessu skyni úr jarðgasi og
líka úr koldíoxíði (koltvíildi) sem
losnar við málmframleiðslu (t.d. á áli)
eða finnst í eldfjallagasi í útblæstri
háhitavirkjana. Mikið af metan er
bundið í sífrera á heimskautasvæðum
og í háfjöllum. Metan er mjög virkt
gróðurhúsagas. /ATG
Vetnisstöð Orkunnar. Vetni verður ein helsta tegund rafeldsneytis þegar fram
í sækir. Enn eru mjög fáar áfyllingarstöðvar á landinu. Við Vesturlandsveg
er vetnisstöð þar sem vatn er rafgreint og vetni afgreitt. Mynd / ATG