Bændablaðið - 08.06.2023, Qupperneq 50

Bændablaðið - 08.06.2023, Qupperneq 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023 Þessa dagana vinnur Land- græðslan að gerð svæðisáætlana í Landgræðslu. Þær eiga uppruna sinn í lögum um landgræðslu þar sem segir að ráðherra málaflokksins gefi út land- græðsluáætlun á fimm ára fresti og til 10 ára í senn. Í áætluninni komi fram stefna stjórnvalda í landgræðslu með hliðsjón af markmiðum laganna um jarðvegs- og gróðurvernd og sjálfbæra landnýtingu. Ný áætlun var samþykkt í fyrra undir heitinu Land og líf: Landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt en þar er í fyrsta skipti birt sam- eiginleg framtíðarsýn stjórn- valda í landgræðslu og skógrækt til ársins 2031. Í sömu lögum segir einnig að Landgræðslan skuli vinna svæðisáætlun fyrir hvern lands- hluta í samræmi við landgræðslu- áætlun. Þar séu tilgreind land- græðslusvæði sem og önnur svæði þar sem lögð er áhersla á landgræðslu með tilliti til náttúruverndar og gildandi skipu- lagsáætlana og í sátt við áherslur eftir landshlutum. Áætlunin skal gerð í samráði við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila og endurskoðuð á fimm ára fresti. Samhliða vinnur Skógræktin sams konar áætlun í skógrækt en áætlanirnar tvær kallast á enda markmið þeirra það sama, að tilgreina hvernig samstarfi við sveitarfélög um landgræðslu og skógrækt verði háttað. Jafnframt vinna stofnanirnar tvær, Landgræðslan og Skóg- ræktin, að sameiginlegu verkefni sem hefur þann tilgang að bæta landnotkun sveitarfélaga. Það verkefni felur í sér að greind verði tækifæri sem felast í breyttri landnotkun innan sveitarfélaga í þágu loftslagsmála. Markmiðið er að stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda frá landi og aukinni bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi með kolefnishlutleysi að markmiði. Með því verði grunnur lagður að sameiginlegri sýn á þau tækifæri sem liggja á bættri landnotkun þar sem er horft er til sjálfbærrar landnýtingar, uppbyggingar auð- linda, jarðvegsverndar, endur- heimt vistkerfa og þannig stuðlað að aukinni sátt og samstöðu um aðgerðir. Afrakstur verkefnisins verða tillögur að loftslagsaðgerðum og landsvæðum sem talin eru geta skilað bestum árangri í þágu loftslagsmála í sátt við landeigendur og aðra landnotkun. Tillögunum er ætlað að nýtast á öllum stigum skipulags- og áætlunargerðar. Þá verði kynningarefni gert aðgengilegt og haldnir kynningarfundir og vinnustofur í öllum landshlutum um hvernig sveitarfélögin geti þróað svæðið með tilliti til bættrar landnotkunar. Fámennum og landstórum sveitarfélögum verður veitt sérstök athygli og þeim boðin frekari og nánari ráðgjöf við sína skipulagsvinnu. Verkefnin sem hér um ræðir eru brýn og munu vafalaust reynast sveitarfélögum vel við sína stefnumörkun og skipulagsvinnu. Ef vel tekst til munu þeim standa til boða leiðbeiningar og gögn til að greina og ráðstafa sínu landi með sjálfbærum hætti og mögulegu framtíðar ræktarlandi. Jafnframt til að gera áætlanir um uppgræðslu lands með viðeigandi aðferðum til lengri eða skemmri tíma. En til að svo verði þarf gott samráð við heimafólk og helstu hagaaðila á hverju svæði fyrir sig. Verkefnin eru einnig til marks um gott og náið samstarf tveggja stofnana sem báðar fást við sama viðfangsefni, að stuðla að vernd, viðgangi og heilleika íslenskra vistkerfa. Davíð Arnar Stefánsson, sérfræðingur hjá Landgræðslunni. Gerð svæðisáætlana og bætt landnotkun sveitarfélaga Starfsfólk í felti að vakta ástand lands. Mynd / Landgræðslan Á FAGLEGUM NÓTUMLANDGRÆÐSLA Umrætt rannsóknarverkefni sem fékk styrk frá Fagráð í hrossarækt og Rannsóknastofu Labor Böse, Þýskalandi, átti sér stað árið 2021 í þeim tilgangi að kanna kynheilbrigði í íslenska hrossastofninum. Ræktunarmarkmið fyrir íslenska hrossakynið er að rækta heilbrigðan, frjósaman og endingargóðan íslenskan hest. Bakteríu- og veirusýkingar á kynfærum geta verið orsök frjósemissjúkdóma í merum og í stóðhestum. Í flestum nágrannalöndum okkar gilda strangar reglugerðir um sýnatöku bæði í merum og stóðhestum til að tryggja að eingöngu fullfrískar merar séu leiddar undir hest. Sömu reglur gilda fyrir merar og stóðhesta í sæðingu. Hins vegar eru slíkar reglugerðir ekki í gildi á Íslandi. Bakeríusýking og legbólga Þekktar bakteríusýkinga í kyn- færum hrossa: • Taylorella equigenitalis (CEM) • β-hemolys. Streptokokka • Klebsiella pneumoniae • Pseudomonas aeruginosa Legbólga getur komið fram með ýmsum hætti og jafnframt komið í veg fyrir að hryssa fyljist. Útferð er talin óeðlileg þegar hún breytir um lit, verður t.d grænleit eða brúnleit eða illa lyktandi. Algengasta orsök aukinnar útferðar er sýking af völdum baktería, sveppa eða veira. Sýking í legi veldur miklum vefjaskemmdum og sterkum viðbrögðum ónæmisfrumna. Undirliggjandi legbólga hefur töluverð áhrif á frjósemi hryssa. Orsök hennar getur verið: • Eigin bakteríuflóra fær aðgang að leginu í gegnum leghálsinn. • Stóðhestur í hólfi ber smit í hryssuna. • Fastar hildir eftir köstun eru ekki teknar í tíma. Mælt er með að það sé gert innan tveggja klukkustunda. Þegar hryssa hefur verið með legbólgu í langan tíma, jafnvel án þess að hún sé greind og meðhöndluð, getur haft þau áhrif að samgróningar verða í leginu. Afleiðingar þess eru til að mynda: • Bólgur í grindarholi. • Aukin hætta á fósturláti. • Aukin hætta á fæðingu fyrir tímann. Smitandi legbólga í hrossum Sjúkdómurinn Contagious Equine Metritis (CEM) getur verið þýtt á íslensku sem smitandi legbólga í hrossum. Orsök sjúkdómsins er bakterían Taylorella equigenitalis. Einkenni hans birtast helst á hryssum í mikilli, gráleitri útferð frá skeiðinni sem hefst dagana eftir að hestur fór á hryssuna. Einkennin geta varað í rúmar tvær vikur. Hryssurnar verða ekki veikar að öðru leyti og ná sér oftast án meðhöndlunar en sýkillinn getur lifað mánuðum saman í æxlunarfærum og valdið ófrjósemi. Stóðhestar sýna ekki klínísk einkenni en eru heilbrigðir smitberar. Smit á sér einkum stað við æxlun þó það geti einnig gerst með tækjum eins og gerviskeiðum og skoðunaráhöldum. Eins geta heilbrigðir smitberar borið smitið áfram. Erlendis gilda strangar reglur um skimun fyrir sjúkdómnum, bæði hjá stóðhestum og hryssum sem koma saman í hólf, til sæðistöku eða sæðingar eða til meðhöndlunar hjá dýralæknum.CEM sjúkdómurinn er tilkynningarskyldur í útlöndum, en ekki hér á landi Tilgangur og markmið Á Íslandi er ekki vitað um hlutföll kynfærasjúkdóma í hryssum og stóðhestum. Engar birtar rann- sóknir eru til sem sýna fram á alvarleika kynfærissjúkdóma eins og CEM. Gögn um tjón kynfærasjúkdóma í hrossastofnum erlendis eru til staðar en engin gögn eru til um stöðuna hér á landi. Útflutningur á íslenskum kynbótahestum hefur aukist og gera kaupendur einnig kröfur um umfangsmeiri heilsufarsskoðanir hestanna og kröfur um að tryggja kyn heilbrigði/ frjósemi hestanna. Undanfarið ár hefur aukist eftirspurn eftir sæðingum innan- lands. Eftirspurn eftir frosnu sæði til útflutnings frá Íslandi hefur enn fremur aukist. Rannsóknaaðferðir Stroksýni voru tekið á ákveðnum stöðum í æxlunarfærum hryssa og stóðhesta með þar til gerðum pinna. Svo voru strok sett í bakteríurækt og næmnispróf eftir hraðsendingu með kælibox í Labor Böse. Nákvæmu ferli var fylgt við sýnistöku. Hrossin voru fædd á árunum 1995–2018. Faraldsfræðileg könnun á kynsjúkdómum hjá íslenskum hestum Stroksýni voru tekin á ákveðnum stöðum í æxlunarfærum hryssa og stóðhesta með þar til gerðum pinna. Stroksýni úr klítoris tekin í CEM greiningu. Legbólga. Legbólga getur komið fram með ýmsum hætti og jafnframt komið í veg fyrir að hryssa fyljist. Susanne Braun. Ulrike Nunrnus. Davíð Arnar Stefánsson. Óspakseyrargátan gerist á Vestfjörðum árið 1910 og á sér sviplegan endi eftir löng og þrúgandi réttarhöld, bæði á Ströndum og í Reykhólasveit. Óspakseyrargátan Ný íslensk sakamálasaga eftir Finnboga Hermannsson. Óspakseyrargátan fæst hjá höfundi, póstfang: finnbh@simnet.is sími: 861-8993
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.