Bændablaðið - 08.06.2023, Page 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
LESENDARÝNI
Í fréttatilkynningu Hafrannsókna-
stofnunar og í grein Ragnars
Jóhannssonar, rannsóknastjóra
fiskeldis hjá stofnuninni, í
Bændablaðinu hinn 9. mars, kemur
m.a. eftirfarandi fram: ,,Hann
klykkir út með því að vitna í
umsögn þess eðlis að með lög-
festingu áhættumatsins hafi
verið gefin lagaheimild til þess að
erfðablanda íslenskan lax.“
Hér er vitnað
ti l greinar
höfundar sem
birtist í Bænda-
blaðinu hinn 9.
febrúar.
Höfundur birti
einnig grein í
Bændablaðinu
hinn 04.06.2020
undir heitinu
,,Það er búið að lögfesta heimild til
erfðablöndunar á villtum íslenskum
laxastofnum“. En skoðum nú
málið betur, er þessi Valdimar Ingi
Gunnarsson einn um þessa skoðun?
Hvað segja lögfræðingarnir?
Það hafa margir verið með gagnrýni
á áhættumat erfðablöndunar, en
höldum okkur eingöngu við það sem
fram hefur komið í umsögnum við
fiskeldisfrumvarpið árunum 2018
og 2019, þar sem m.a. áhættumatið
er vistað. Fram kom í umsögnum
tveggja lögfræðinga:
• Jón Þór Ólafsson, lögfræðingur og
þáverandi formaður Stangveiðifélags
Reykjavíkur: ,,Það er raunar með
nokkrum ólíkindum að veitt sé
lagaheimild fyrir því að erfðablanda
megi villtan íslenskan lax.“
• Friðleifur Egill Guðmundsson,
lögfræðingur og formaður NASF
á Íslandi: ,,NASF hefur áhyggjur
af því að löggjafinn sé að lögfesta
með beinum hætti að það sé í lagi að
erfðablanda náttúrulega laxastofna
með kynbættum norskum eldislaxi.“
Hér er rannsóknastjóri
fiskeldis hjá Hafrannsóknastofnun
upplýstur um að það eru a.m.k.
tveir lögfræðingar sem eru á sömu
skoðun og þeir komu jafnframt fyrr
með þessa ábendingu en höfundur.
Mikill fjöldi umsagnaraðila
komu einnig með kröfu um enga
innblöndun eða erfðablöndun
við meðferð málsins á Alþingi
Íslendinga.
Áhættumatið
Tilgangur líkans áhættumats
erfðablöndunar er að gefa rétta
mynd af fjölda strokulaxa sem gætu
tekið þátt í klaki í hverri veiðiá.
Sá fjöldi er í beinu sambandi við
áhættu á erfðablöndun. Ef fjöldinn
fer yfir þröskuldsmörk á hverju
ári er hætta á því að erfðablöndun
safnist upp með tíma og hafi áhrif á
stofngerð náttúrulegra stofna.
Athyglisvert er að fram kemur
í einni umsögn Landssambands
veiðifélaga við fiskeldisfrumvarpið
þegar það var til umfjöllunar að
áhættumatið gerði ráð fyrir að
eldislax muni finnast í ám vítt
um landið og veiðiréttaeigendur
kunni að verða fyrir tjóni og því
mikilvægt að gert væri ráð fyrir
skaðabótaákvæði í lögunum.
Hugmyndafræðin röng
Hugmyndafræði áhættumats
erfðablöndunar eins og Hafrann-
sóknastofnunin lagði til árið 2017
í skýrslu sinni ,,Áhættumat vegna
mögulegrar erfðablöndunar milli
eldislaxa og náttúrulegra laxastofna
á Íslandi“ gengur út á að:
• fylgjast með þegar strokulaxar
ganga upp í veiðiár,
• grípa ekki til mótvægisaðgerða
til að lágmarka skaðann,
• mæla síðan þá erfðablöndun sem
hefur átt sér stað.
Ákveðnar betrumbætur voru
gerðar á áhættumatinu við afgreiðslu
laga um fiskeldi á árinu 2019,
einkum er varðar mótvægisaðgerðir,
vegna þrýstings margra aðila.
Þrátt fyrir það kemur fram í
skýrslu Ríkisendurskoðunar sem
kom út fyrr á þessu ári að óháðir
sérfræðingar telja að vöktunar- og
mótvægisaðgerðir í áhættumati
erfðablöndunar séu takmarkaðar
að umfangi. ,,Taka verður alvarlega
ábendingar um að hvaða leyti
vöktun og mótvægisaðgerðum af
hálfu Hafrannsóknastofnunar er
ábótavant“ kemur fram í skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
Lög um umhverfisábyrgð brotin
Rannsóknastjórinn er jafnframt
upplýstur um að hugmyndafræði
áhættumats erfðablöndunar er að
brjóta lög nr. 55/2012 um umhverfis-
ábyrgð. Við umhverfisslys gera
lög um umhverfisábyrgð ráð fyrir
úrbótum rekstraraðila í tilfelli
slysasleppinga sem felur í sér að
fjarlægja eldislax úr veiðiá, gripið
verði til aðgerða utan umráða-
svæðis fyrirtækis og kostnaður
greiddur af tjónavaldi.
Í nýlegu áliti meirihluta
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
um skýrslu Ríkisendurskoðunar
um málefni fiskeldis kemur fram:
,,Sýnir það þörfina á að beita
markvisst aðgerðum til þess að
fjarlægja eldislax úr ám í nágrenni
sleppiatvika, líkt og tíðkast í
Noregi.“ Að mati meirihlutans var
talið mikilvægt að ákvæði laga og
reglna um strok verði endurskoðað.
Fyrirhuguð er endurskoðun laga
um fiskeldi á næsta ári og ef
þessi breyting kemst í gegn mun
áhættumat erfðablöndunar eflaust
standast lög um umhverfisábyrgð.
Fórna til að auka
framleiðsluheimildir
Hugmyndafræði áhættumats
erfðablöndunar gerir ráð fyrir að
verja stærri veiðiár en fórna þeim
minni til að hægt væri að úthluta
meiri framleiðsluheimildum til
eldis á frjóum laxi. Hér hefur
jafnræðisreglan að engu verið höfð.
Mikilvægt er að bera virðingu
fyrir eigum íslenskra landeigenda
þar sem er að finna litlar veiðiár á
eldissvæðum og í næsta nágrenni.
Þær ár vega ekki þungt í stóra
samhenginu en geta verið mikil
verðmæti fyrir einstaka landeigendur.
Eigendur lítilla laxveiðiáa hafa
verið algjörlega hunsaðir af
höfundum áhættumats erfða-
blöndunar og stjórnvöldum og
þannig er þeirra eigum sýnd mikil
vanvirðing. Það er löngu tímabært
að stjórnvöld sýni eigum íslenskra
landeigenda virðingu og vonandi
verður það gert við fyrirhugaða
breytingu á lögum um fiskeldi á
næsta ár.
Að lokum
Höfundur er hvorki eigandi veiðiáa
eða laxeldisfyrirtækja og hefur því
ekki meiri hagsmuna að gæta í þessu
máli en almennt gerist með íslenska
skattgreiðendur. Stækkandi hópi
er að verða það ljóst að áhættumat
erfðablöndunar hefur lítið sem
ekkert með náttúruvernd að gera og
er fyrst og fremst notað til að úthluta
framleiðsluheimildum til erlendra
fjárfesta og fulltrúa þeirra.
Staðreyndin er sú að áhættumat
erfðablöndunar opnar fyrir það að
umhverfissóðarnir fái að njóta sín
á kostnað þeirra sem vilja standa
sig vel. Hugmyndafræði áhættumats
erfðablöndunar er röng, stenst ekki
lög um umhverfisábyrgð, en því er
alltaf hægt að breyta.
Valdimar Ingi Gunnarsson
sjávarútvegsfræðingur.
Lögfesta erfðablöndunar á laxi
Valdimar Ingi
Gunnarsson.
Notkun sýklalyfja í landbúnaði
Í nóvember 2022 kom út tólfta
skýrsla Evrópsku eftirlits-
stofnunarinnar um notkun sýkla-
lyfja í landbúnaði (ESVAC),
þ.e. í búfé sem haldið er til
matvælaframleiðslu að sölu
sýklalyfja til fiskeldis meðtaldri.
S k ý r s l a n
nær til ársins
2021 og tekur
til 31 lands;
ESB ríkjanna
27 auk Bret-
lands, Sviss,
Noregs og
Íslands.
Sala sýkla-
lyfja í Evrópu er borin saman sem
sala í milligrömm (mg) á samræmda
búfjáreiningu, PCU. PCU vísar
til „Population Correction Unit“
sem tekur annars vegar tillit til
stofnstærðar og hins vegar áætlaðs
meðalþunga gripanna þegar
sýklalyfjameðferð fer fram. Í ESB
löndunum 27 hefur sala sýklalyfja
dregist saman frá árinu 2018 úr
118,3 mg/PCU í 96,6 mg/PCE eða
18,3%. Það samsvarar um 1/3 af
markmiði ESB um 50% samdrátt í
sölu sýklalyfja árið 2030. Markmið
ESB hljóðar upp á að þá nemi
salan að hámarki 59,2 mg/PCU.
Til samanburðar er sala sýklalyfja
í landbúnaði á Íslandi einungis
3,6 mg/PCU.
Þegar horft er til allra landanna,
alls 31, þá nam sala sýklalyfja að
meðtali 84,4 mg/PCU eða ívið
minna en innan ESB. Samfelldar
upplýsingar fyrir árin 2011–2021
liggja fyrir frá 25 löndum og hefur
sala á sýklalyfjum fyrir búfé dregist
saman í þeim um 46,5%. Frá 2017
–2021 dróst salan saman um 20,9%
í því 31 landi sem tekur nú þátt í
starfi ESVAC.
Sala sýklalyfja á Íslandi
Meðfylgjandi mynd sýnir sölu
á sýklalyfjum fyrir búfé sem
milligrömm á búfjáreiningu (mg/
PCU). Segja má að Ísland og
Noregur skeri sig úr þessum hópi
nú líkt og áður. Löndin fjögur í
samanburðinum sem standa utan
ESB eru öll í hópi þeirra tíu landa
þar sem salan er minnst.
Sala á sýklalyfjum
til hópmeðferðar
Þegar litið er á sölu sýklalyfja fyrir
búfé eftir því á hvaða notkunarformi
þau eru voru 86,3% sölunnar á
formi sem fyrst og fremst er ætlað
til hópmeðferðar. Þetta skiptist
þannig að lyf til að blanda í vatn til
drykkjar var söluhæsta vöruformið
eða 57,9% af heildarsölu í þessu
31 landi. Þar á eftir koma lyf til
blöndunar í fóður (21,8%) og duft
til inntöku (6,6%). Önnur notkun
skiptist síðan í lyf til notkunar í
sprautuformi sem nam 12,6%,
sýklalyf til inndælingar í spena/
júgur, 0,71% og aðrar vörur sem
námu 0,42% af heildarsölunni.
Í samanburði við þau lönd sem
innfluttar búvörur koma frá, sem
eru helst Danmörk, Þýskaland,
Holland, Pólland og Ítalía, hefur
Ísland algera sérstöðu. Sala
sýklalyfja í þessum löndum er frá
því að vera ríflega níföld á við
sölu á Íslandi í Danmörku upp í
tæplega 49 föld í Póllandi, miðað
við sölu í mg/PCU. Í umfjöllun um
sýklalyfjanotkun á Íslandi kemur
skýrt fram að engin framleiðsla er
á fóðri með viðbættum sýklalyfjum,
hjá íslenskum fóðurframleiðendum.
.
Sýklalyf og umhverfið
Á undanförnum árum hafa
vísindamenn hert rannsóknir
á áhrifum útskolunar lyfja í
búfjáráburði á umhverfið.
Í grein Frontiers síðan í
september 2022, „Insights into
the impact of manure on the
environmental antibiotic residues
and resistance pool“, er margan
fróðleik að finna um þetta auk
tilvitnana í eldra efni.
Í henni kemur fram að notkun
búfjáráburðar í landbúnaði sé nú
álitin lykiláhrifaþáttur á útbreiðslu
gena (erfðaefnis) sem hafa myndað
ónæmi gegn sýklalyfjum (ARG;
Antibiotic resistance genes) hjá
mannfólki, dýrum og í umhverfinu
bæði á láði og legi, þar með talið
grunnvatni. Margar rannsóknir hafa
sýnt fram á að notkun búfjáráburðar
frá húsdýrum sem hafa verið
meðhöndluð með sýklalyfjum
hefur leitt til aukningar á sýkla-
lyfjaþolnum bakteríum (ARB;
Antimicriobial resistant bacteria)
og sýklalyfjaþolnum genum (ARG)
í jarðvegi, samanborið við jarðveg
sem fékk verksmiðjuframleiddan
tilbúinn áburð eða engan áburð.
Sérstaða Íslands er ótvíræð
Af myndinni sem sýnir sölu
sýklalyfja sést glöggt það mikilvæga
forskot sem Ísland hefur á flestar
aðrar Evrópuþjóðir. Þetta forskot
nær einnig til óhjákvæmilegra
áhrifa á umhverfið og hvernig
lyfjaleifar og lyfjaþolið erfðaefni
getur síðan borist með drykkjarvatni
og beit búfjár inn í fæðukeðjuna á
ný. Þetta eykur enn á þá ógn sem
stafar af vaxandi sýklalyfjaónæmi
í heiminum.
Í ljósi alls þessa, hví ættu
Íslendingar þá að sækjast eftir að
flytja inn og neyta búfjárafurða
sem eru framleiddar við margfalda
notkun sýklalyfja á við það sem
gerist hér á landi og með tilheyrandi
áhrifum á umhverfið og þar með
íbúa viðkomandi landa? Meiri
sómi væri að því að kappkosta
að vera okkur sjálf næg um þær
búfjárafurðir sem við kjósum að
neyta og getum framleitt hér á landi.
Erna Bjarnadóttir,
hagfræðingur hjá MS.
Kýpur
Pólland
Spánn
Ítalía
Grikkland
Belgía
Þýskaland
Holland
Írland
Danmörk
Bretland
Litháen
Finnland
Svíþjóð
Ísland
Sala sýklalyfja fyrir búfé
eftir löndum
Noregur 2,5 *
3,6 *
10,9 *
17 *
20,3 *
28,3 *
33,4 *
42,4 *
47,6 *
73,2 *
95,3 *
108,8 *
157,2 *
173,5 *
175,5 *
296,5 *
*mg/PCU
Sýklalyfjaónæmi er ein af
þremur stærstu heilsufarsógnum
samtímans að mati framkvæmda-
stjórna ESB og WHO. Hættan á
sýkingum af völdum fjölónæmra
baktería, sem geta borist úr
dýrum í fólk, eykst með auknum
innflutningi á hráu kjöti frá löndum
þar sem sýklalyfjanotkun er mikil.
Það felast gríðarleg lýð-
heilsuleg og fjárhagsleg verð-
mæti í þeirri sérstöðu sem fylgir
takmarkaðri notkun sýklalyfja í
landbúnaði á Íslandi.
Heimild: European Surveillance of Veterinary Antimicrobial Consumption - ESVAC
Erna Bjarnadóttir.
Klakaruðningar í Laxá í Dölum. Mynd / Valdimar Ingi Gunnarsson