Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
LÍF&STARF
Í gegnum alla mína þáttagerð hér, hef ég
lagt mig í framkróka við að hafa höfund
að hverri vísu. Það held ég hafi lánast
bærilega, þó ugglaust sé þar eitthvað
misfarið með.
Þátturinn þessi verður samt hafinn með
einni ófeðraðri, (mæðraðri) vísu sem er
svo hnyttin að varla er tækt að birta hana
ekki, meinlega og myndræna:
Víst ég tel mig vita það
vonskufullur bófi,
hvort mér heldur horfir að
handarbak eða lófi.
Mikil tíðindi bárust mér nýverið frá einum
af lesendum þáttarins. Hafði hann í fórum
sínum ljóðkorn eftir Rósberg G. Snædal.
Næsta öruggt má telja, að þetta stutta ljóð
hefur hvergi fyrr birst, enda ort á árinu
1980, aðeins þremur árum fyrir andlát
hans. Rósberg er þetta ár kennari á Hólum
í Hjaltadal, og fannst þetta ljóð innan í
einni af bókum hans. Ljóðið er að sönnu
meistaraverk líkt og allt hans háttbundna
efni. Ljóðið nefnir höfundur „Drangey“:
Útvörður okkar fjarðar
ægifögur með kögur,
öldunnar brimrót alda
afrenndur klettur stendur.
Drangey á drafnarengi
dýrmætust perla merlar,
hillir við hafsbrún gulli
hádegi sólar slegin.
Eftir svona náttúrusköpun er hollt og
heilnæmt að birta lesendum eina perlu úr
safni Orms Ólafssonar. Ormur var eitt
sinn spurður: Hvenær kemur andinn svo
yfir þig að þú getir sett saman vísu? Ormur
svaraði með næstu þremur vísum:
Þeir sem braska í þessu og hinu
þurfa að nýta atvik hvert,
og sumir hafa á salerninu
sínar bestu vísur gert.
Með rím og stuðla reyni að þrauka,
rembist við að fornum sið.
Með hendingar sem hægðarauka
hef ég notað klósettið.
Að yrkja mér til frama og frægðar
festa kosti hefur skort.
Aðeins mér til hugar-hægðar
hef ég mínar vísur ort.
Ásgrímur Kristinsson frá Ásbrekku orti:
Ef að kynnu að bresta bönd
og brosum linna svanna,
kemst ég inn á undralönd
endurminninganna.
Eftir Ragnheiði Lýðsdóttur er þessi
veðurlýsing:
Meðan vinda vængur gnýr
velli, rinda og gjögur,
faðmar tind og töfrum býr
tíbrá yndisfögur.
Þórarinn Bjarnason járnsmiður orti í
andleysi sínu:
Minn er andi orðs við stjá
ekki í standi góðu,
brag þó vandað vildi fá
vænni bandatróðu.
Næstu tvær hringhendur Kristjáns
frá Djúpalæk eru ekki samstæðar, en
augljóslega ortar í einhverju orðaskaki:
Eg á snúinn eins og þú
orðagrúa, framar vonum.
Óviðbúinn er því nú
ekki þúfutittlingonum.
Víst í lundi Vöðluþinga
válegt stundum heyrist gelt
kjöltuhunda Húsvíkinga
hátt og undarlega hvellt.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Nemendur á Hvanneyri komu í Kópavoginn með rútu. Gefið var frí frá kennslu, enda snerti viðfangsefni fundarins framtíð þeirra.
Samtök ungra bænda (SUB) boðuðu til baráttufundar undir
yfirskriftinni Laun fyrir lífi ungra bænda og íslenskra sveita. Erindið
var rekstrarumhverfi landbúnaðar á Íslandi, sem samtökin segja
kominn að fótum fram.
Í ályktun, sem samþykkt var í lok fundar, segir að ungir bændur
standi frammi fyrir fjárhagslegum ómöguleika og engin tækifæri
séu fyrir ungt fólk sem vilji komast í greinina. Eðlileg nýliðun sé
forsenda áframhaldandi landbúnaðar í landinu og þar með fæðuöryggi
þjóðarinnar. Ályktunin endar með þessum orðum: „Það er glapræði
að leggja íslenskan landbúnað af. Þess vegna þarf að bregðast við án
tafar. Seinna er of seint.“
Mæting var með besta móti, en á fundinum voru ekki einungis
ungir bændur, heldur einnig eldri starfssystkin, stjórnmálamenn úr
öllum flokkum, ráðherrar, fulltrúar fyrirtækja sem þjóna bændum,
fjölmiðlafólk og margir fleiri. Setið var í nánast öllum sætum ásamt
því sem fimm hundruð manns fylgdust með í beinni. Þá hefur á fimmta
þúsund horft á upptökuna þegar þetta er ritað. /ÁL
Kraftur í ungum
bændum
Ályktun baráttufundar Samtaka ungra bænda fyrir launum og lífi í
sveitum landsins var samþykkt með dynjandi lófataki. Hér endar
Steinþór Logi Arnarsson, formaður SUB, vel heppnaðan fund.
Í pallborð mættu fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi. Meðal þeirra
var samhljómur um mikilvægi þess að hlúa vel að íslenskum landbúnaði.
Tíu framsögumenn héldu erindi. Hér stendur Jón Helgi Helgason
kartöflubóndi í pontu og bendir á að margir bændur stuðli að
fæðuöryggi þjóðarinnar í sjálfboðavinnu.
Nokkrir tugir búfræðinema komu á fundinn. Myndir / ÁL
Fundargestir komu alls staðar að af landinu, sem og úr fjölmörgum geirum sem snerta landbúnaðinn.
Fullt var út úr dyrum í Salnum í Kópavogi. Þá var mikið áhorf í streymi.
Tveir Skagfirðingar taka þingmann Samfylkingarinnar tali.