Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Í lögum um starfsumhverfi bænda
er kveðið á um að kjör starfs
stéttarinnar skuli vera sambærilegar
við aðrar stéttir þar sem krafa
um þekkingu og ábyrgð gagnvart
rekstri er svipuð.
Í þessu samhengi er yfirleitt miðað
við laun iðnmenntaðra starfsgreina.
Til að gera samanburðinn sem
skýrastan hafa BÍ sett saman pott af
iðnmenntuðum starfsstéttum, sumar í
ábyrgðarstöðum, aðrar ekki, sótt meðal
mánaðarlaun þeirra af Hagstofu Íslands
og reiknað meðallaun úrtaksins.
Sést úrtakið í töflu hér til hliðar.
Þegar vísað er í laun samanburðarstéttar
er vísað í meðallaun þessara starfstitla.
Til að reikna út kjör bænda ár hvert
er stuðst við bæði laun og hagnað
býlisins af rekstri, eins og þau eru gefin
upp í rekstrar reikningum í gögnum
Hagstofunnar. Gefur þetta réttasta
mynd af stöðunni því hagnaður af
rekstri fer vissulega einnig í vasa
bændanna eins og um hefðbundinn
einkarekstur sé að ræða og sama
sinnis hefur tap af rekstri einnig áhrif
á heimilishaldið. Aðeins eru til opinber
gögn fram til ársins 2021, nægar eru
forsendurnar til að framreikna þau til
ársins 2022 með ágætis nákvæmni. Er
það byggt á aðfangaverði, afurðaverði,
vaxtastigi og öðrum verðhækkunum.
Er stuðst við Rekstrarrannsókn RML
við þann uppsetning þar sem hægt
er að sjá rekstur býla skipt niður í
kostnaðar- og tekjuliði á ítarlegan hátt.
Til eru áætlanir fyrir stöðuna
2023 og teljum við okkur hafa ágætis
yfirsýn yfir stöðu þessa árs en á
þessum tímapunkti væri óábyrgt að
birta þær, bæði vegna þess að árinu
er ekki lokið og þar sem þau byggja á
framreikningi af framreikningi. Það er
nú orðið frekar langt síðan opinberar
tölur fyrir þennan málaflokk hafa verið
uppfærðar.
Sést í töflunni hér að ofan hversu
mikið bil er á kjörum launa bænda og
þeirra sem bændur eiga að vera miðuð
við. Eins og sést þarna áætlum við að
meðalafkoma sauðfjárbýlis sé neikvæð
um tæplega hálfa milljón yfir árið og
nautgripabús hafi verið neikvæð um
rúmlega fjórar milljónir.
Á síðasta ári var afkoma kúabús
næg til greiðslu upp á tæplega
115.000 krónur á mánuði að meðaltali.
Vakin er athygli á að þessir útreikningar
miða við einföld mánaðarlaun til
samanburðar en ljóst er að flestum
býlum er ekki sinnt af einu starfsgildi
og því má áætla að munurinn sé í raun
mun meiri.
Ljóst er að staðan hefur versnað
til muna árið 2023, sér í lagi í
kúa- og nautgripabýlum þar sem
fjármagnskostnaður er farinn að
vega mikið, rúmlega tvöfaldast á
undanförnum tveimur árum og er nú
vel rúmlega 5 milljarðar samanlagt
fyrir kúabú.
Er ekki óalgengt að býli séu farin
að greiða um og yfir 12 milljónir á
ári í fjármagnskostnað, sem er langt
um meira en bændurnir lifa á sjálfir.
Teljum við yfirgnæfandi líkur á
að allar þrjár búgreinar muni skila
neikvæðri afkomu á þessu ári og að
launagreiðslugeta verði engin nema
með skuldaaukningu. /SFB
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Weckman stálklæðningar
30 ára reynsla á Íslandi
BÁRUJÁRN verð kr. 3.300 m2
TRAPISA verð kr. 3.300 m2
STALLAÐ STÁL verð kr. 4.500 m2
Öll verð eru með vsk.
H. HAUKSSON EHF.
Ögurhvarfi 8, 203 Kópavogur | 588 1130 | hhauksson.is | hhauksson@hhauksson.is
Úrtak starfsheita til útreikninga á samanburðarlaunum
Yfirmenn framleiðslu- og rekstrardeilda í iðnaði
Yfirmenn framleiðslu- og rekstrardeilda í byggingariðnaði og mannvirkjagerð
Störf byggingarsmiða - iðnlærðir
Störf húsasmiða - iðnlærðir
Störf trésmiða - iðnlærðir
Störf byggingarmanna við frágang - iðnlærðir
Störf pípulagningarmanna - iðnlærðir
Störf málmsmiða, logsuðumanna, blikksmiða og stálsmiða - iðnlærðir
Störf vélvirkja - iðnlærðir
Störf vélvirkja - iðnlærðir verkstjórar
Störf rafvélavirkja - iðnlærðir
Störf rafeindavirkja - iðnlærðir
Búgrein Sauðfjárbú Kúabú Nautgripabú Samanburðarstétt
2021
Meðallaun á mánuði 154.227 598.085 239.087 938.800
Hagnaður/tap deilt á mánuði 40.882 114.259,8 -128.968
Afkoma á mánuði (meðallaun+hagnaður) 195.109 712.345 110.119
Mismunur frá mánaðarlaunum samanburðarstéttar -742.691 -225.455 -827.681
2022
Afkoma á mánuði - 34.449 14.038 -336.006 1.018.700
Mismunur frá mánaðarlaunum samanburðarstéttar -1.052.149 -903.662 -1.051.301
Mismunur frá meðallaunum 2022 (745.000) -779.449 -630.962 -1.081.006
Hver eru laun bænda í samanburði
við aðra í landinu?
Bændablaðið kemur næst út
16. nóvember