Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Verkefni Byggðastofnunar undir
yfirskriftinni Brothættar byggðir
hefur teygt sig víða um landið en
alls hafa 14 byggðarlög tekið þátt.
Eins og áður hefur komið fram er
markmið þess að stöðva viðvarandi
fólksfækkun í smærri byggðarkjörnum
landsins og er m.a. unnið í samvinnu
við íbúa, landshlutasamtök, sveitar-
félög og aðra með það fyrir augum
að ráða bót á þessum vanda.
Litið er til örðugra viðfangsefna
sem eiga við á fleiri en einum stað á
landinu, gætt er þess að stilla saman
strengi yfirvalds og íbúa og á allan hátt
efla mótstöðuafl brothættra byggða. Fá
íbúar hvers byggðarlags fyrir sig kost
á að forgangsraða þeim málefnum er
þeim þykja að helst mætti taka til og sjá
verkefnastjórar Byggðastofnunar um
að virkja frumkvæði og samtakamátt
íbúanna, enda mikilvægar raddir í
hverju samfélagi.
Samfélag Stöðvarfjarðar
Eitt þeirra byggðarlaga sem fallið
hafa undir væng verkefnisins
er Stöðvarfjörður. Var þar nú
nýverið haldinn fundur meðal
íbúanna og farið yfir hvað áunnist
hefur síðastliðna átján mánuði, en
verkefnið, sem ber nafnið Sterkur
Stöðvarfjörður, hófst snemma árs
2022. Hafði þá komið í ljós að
íbúum hafði fækkað allverulega, eða
um 32% síðan um aldamót.
Á þessum fyrsta fundi helgina 5.-6.
mars í fyrra komu fram allmargar
uppástungur frá íbúum sem greitt var
úr eftir bestu getu og stefnan gróflega
mótuð. Skiptust meginmarkið niður í
fjóra flokka, en þeir eru eftirfarandi:
Fyrirmyndarumhverfi – Samheldið
samfélag – Öflugt atvinnulíf – Sterkir
innviðir. Var sammælst um það að
Stöðvarfjörður hafi alla burði til
þess að eflast sem ferðamannastaður,
menningar- og nýsköpunarbær.
Hæst bar umræða um miðbæjarreit
Stöðvarfjarðar, Balann, en uppbygging
hans fékk flest atkvæða íbúa
byggðarinnar sem vilja ýta undir
aðlaðandi útivistarsvæði fyrir
alla fjölskylduna. Hugmyndir um
húsnæðismál og byggingar voru hátt á
lofti, göngustígar og umhverfisfegrun
auk atvinnuskapandi greina. Allt eru
þetta málefni sem komust ofarlega
í forgangsröðun verkefnisins, en
spurningunni „Hvað eigum við?“ var
kastað upp á fundinum. Nefndar voru
náttúruperlur staðarins, mannauður
auk þátta sem væru ríkir en þörfnuðust
styrkingar. Verkefnisstjóri var ráðinn,
Valborg Ösp Árnadóttir Warén, auk
nokkurra aðila í verkefnisstjórn, en
að lokum var framtíðarsýn fyrir árið
2025 komið í orð.
Samkvæmt skýrslu Byggða-
stofnunar er hún svohljóðandi:
Stöðvarfjörður iðar af mannlífi
og íbúar á öllum aldri eru virkir
þátttakendur í samfélaginu. Atvinnulíf
er öflugt og störfum hefur fjölgað,
hvort sem það eru störf í bænum
eða óstaðbundin störf. Íbúum hefur
fjölgað og Stöðvarfjörður er þekktur
sem fjölskylduvænt og gott samfélag
sem tekur vel á móti nýbúum.
Stöðvarfjörður hefur byggst upp
sem eftirsóttur ferðamannastaður og
menningar- og nýsköpunarbær og í
þorpinu er næg gisting og þjónusta
ásamt fjölbreyttum möguleikum til
afþreyingar. Balinn er orðinn að
skjólgóðu og notalegu útivistarsvæði
fyrir fjölskyldur.
Svæðið er gróið og fallegt og þar
er nýr leikvöllur með leiktækjum
og afþreyingu fyrir allan aldur.
Miðbærinn hefur byggst upp og hefur
fallega og snyrtilega ásýnd. Húsin í
þorpinu eru falleg og þeim er vel við
haldið. Það liggur góður og breiður
vegur inn í fjörðinn og út í þorp.
Styrkveiting frumkvæðissjóðs
Tvennar styrkveitingar frumkvæðis-
sjóðs Sterks Stöðvarfjarðar buðust
íbúum byggðarlagsins, annars vegar
í nóvember 2022, þá 7 m. krónur
sem skiptust niður á 13 umsækjendur
og svo var úthlutun í apríl nú í ár
þar sem 7,2 m. deildust niður á 17
umsækjendur.
Kaffibrennslan Kvörn var eitt
þeirra er hlaut dágóða upphæð í
formi styrkja yfir árið, en aðspurður
telur eigandinn, Lukasz Stencel,
þetta verkefni Byggðastofnunar
af hinu góða, bæði samfélagslega
hvetjandi svo og brýn nauðsyn.
Lukasz, sem hefur staðið að
vinnslu kaffibauna sl. ellefu ár, nýtti
styrkveitinguna að stórum hluta til
kaupa á vél en hann bæði malar og
brennir sínar baunir af kostgæfni.
Ævintýralegur keimur
Þykja sumum kaffitegundir fyrir-
tækisins bragðast heldur ævintýra-
lega, en kaffibaunirnar koma víðs
vegar að úr heiminum, þ.á m. Perú,
Hondúras, Kólumbíu og Mexíkó.
Segir Lukasz fólk eiga að vera
óhrætt að smakka enda raunin sú að
fleiri en færri komast á bragðið af
góðu kaffi. Til gamans má geta að á
sínum tíma var fyrirtæki Íslenskrar
erfðagreiningar einna fyrst til þess
að leggja inn reglulega pöntun hjá
honum, þá hvorki meira né minna
en 56-60 kg mánaðarlega.
Í dag er kaffið selt víða um land.
Nýmalað kaffi frá Kaffibrennslunni
Kvörn má finna í Melabúð
Vesturbæjar Reykjavíkur, auk þess
sem nú er hægt að fá mánaðarlega
kaffiáskrift í gegnum síðu Kvarnar
á Facebook.
Blómstrandi byggðarlög
Frumkvæðissjóðir Brothættra byggða
eru styrktarsjóðir verkefna þeirra
svæða sem taka þátt. Stutt er við
verkefni sem styðja uppbyggingu
hvers byggðarlags fyrir sig, til
þróunarverkefna og annarra
samfélagseflandi verkefna.
Eiga landsmenn það sameiginlegt
að vilja sjá byggð landsins okkar
blómstra og binda forsvarsmenn
Brothættra byggða vonir um að með
verkefninu myndist sá grunnur er þarf
til þess. Frekari upplýsingar má finna
á vefsíðu Byggðastofnunar og þau
byggðarlög sem hafa áhuga á þátttöku
hvött til að sækja um.
Arctic Trucks Kletthálsi 3, 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | info@arctictrucks.is
Opið alla virka daga 8-17 | www.arctictrucks.is | Arctic Trucks á Íslandi
dekk á kynningarverði!
Frábær dekk hönnuð í Evrópu. Vönduð efni og góð hönnun skila dekkjum með
góða endingu, grip og áreiðanleika við alls konar aðstæður.
Fáanleg í flestum stærðum fólksbíla, jepplinga og jeppa.
Frábært alhliða jepplingadekk
sem hentar jafnvel á malbiki
og á grófum slóðum.
Gott grip í snjó og hálku.
Hörkufínt jeppadekk sem
veitir stöðugleika og gott
grip þegar mest á reynir í
erfiðum aðstæðum.
Öruggt heilsársdekk sem
virkar vel við allar aðstæður,
sumar og vetur.
Nýtt hjá Arctic Trucks
dekk!
Í DEIGLUNNI
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Stöðvarfjörður hóf göngu sína í verkefninu Brothættar byggðir í ársbyrjun 2022 og völdu íbúar heitið Sterkur Stöðvarfjörður á íbúaþingi. Gert er ráð fyrir
að verkefninu ljúki í lok árs 2025 hvað aðkomu Byggðastofnunar varðar. Mynd / Wikipedia
Kaffibrennslan Kvörn var eitt þeirra
fyrirtækja sem fékk styrkveitingu
frumkvæðissjóð.
Brothættar byggðir:
Sterkur Stöðvarfjörður
Styrkþegar frumkvæðissjóðs Sterks Stöðvarfjarðar í apríl síðastliðnum. Mynd / austurbru.is