Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 73
73 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Býli? Vesturkot.
Staðsett í sveit? Skeiða- og
Gnúpverjahreppur.
Ábúendur? Hulda Finnsdóttir,
Þórarinn Ragnarsson og synir okkar
tveir, Einar Ingi, 5 ára og Arnór Elí,
2 ára.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Við erum fjögur í heimili og síðan
hundarnir Tara og Freyja og kötturinn
Ísleifur.
Stærð jarðar?180 ha.
Gerð bús? Hrossaræktarbú
Fjöldi búfjár? Í kringum 80 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Drengjunum er skutlað í leik-
skólann og síðan er hafist handa
við tamningar, þjálfun og umhirðu
hrossa. Það stendur yfir fram undir
kvöldmat.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Þegar folöldin fæðast
og maður röltir út í haga til að sjá
hvað maður fékk. Það er alltaf
skemmtilegasti tími ársins.
Leiðinlegast er að kveðja gamla vini.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Með
svipuðum hætti. Vonandi verða
komnar fleiri hryssur í ræktun frá
Vesturkoti.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Það
er alltaf til mjólk, piparostur, coke
zero og collab og líka eitthvað sem
enginn vill borða – það endist lengst.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Það fer eftir því hvern þú
spyrð. Ætli það sé ekki nautalund hjá
eldri kynslóðinni en hakk og spaghettí
eða kjúklingur með karrígrjónum hjá
þeim yngri.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þau eru nú flest tengd
honum Spuna frá Vesturkoti.
Fyrst þegar hann setti heimsmet
5 vetra á Landsmóti 2011, síðan
þegar hann vann A flokkinn á
Landsmóti 2014, Íslandsmeistaratitill
í fimmgangi og þegar hann hlaut
Sleipnisbikarinn á Landsmóti 2018.
DROPS mynstur: ai-448
Stærð: ca 13-14 cm á hæð mælt meðfram miðju og ca 80
cm á breidd mælt meðfram efri hlið.
Garn: DROPS Air, fæst hjá Handverkskúnst, www.garn.is
Litur á mynd: mosagrænn nr 12.
Heklunál: 5mm
Heklfesta: 14 stuðlar = 10 cm
Heklleiðbeiningar: Allar umferðir byrja með 3 loftlykkjum
sem koma í stað fyrsta stuðuls í hverri umferð. Í lok næstu
umferðar er heklað um þessar 3 loftlykkjur.
Úrtaka: Heklið 1 stuðul í næsta stuðul, en bíðið með að
bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í
gegn í lokin (2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 tvíbrugðinn
stuðul um loftlykkjur frá fyrri umferð, en bíðið með að
bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í
gegn í lokin (3 lykkjur á heklunálinni). Bregðið þræðinum
1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3
lykkjurnar á heklunálinni. Það hefur fækkað um 1 lykkju.
Uppskriftin: Sjalið er heklað frá hlið.
1. umf (ranga): Heklið 4 loftlykkjur, heklið 2 stuðla í fyrstu
loftlykkju. Það eru 3 stuðlar í umferð. Snúið stykkinu.
2. umf (rétta): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í næsta
stuðul og heklið 2 stuðla um 3 loftlykkjur frá fyrri umferð.
Það eru 4 stuðlar í umferð. Snúið stykkinu.
3. umf (ranga): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvorn
af næstu 2 stuðlum og heklið 1 stuðul um loftlykkjur frá
fyrri umferð. Það er engin lykkja aukin út í umferðinni.
Snúið stykkinu.
4. umf (rétta): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvorn
af næstu 2 stuðlum og heklið 2 stuðla um loftlykkjur frá
fyrri umferð. Það eru 5 stuðlar í umferð. Snúið stykkinu.
5. umf (ranga): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern
af næstu 3 stuðlum og heklið 1 stuðul um loftlykkjur frá
fyrri umferð. Það er engin lykkja aukin út í umferðinni.
Snúið stykkinu.
6. umf (rétta): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í
hvern stuðul fram að loftlykkjum frá fyrri umferð, heklið
2 stuðla um loftlykkjur. Það hefur aukist um 1 stuðul.
Snúið stykkinu.
7. umf (ranga): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í
hvern stuðul fram að loftlykkjum frá fyrri umferð og heklið
1 stuðul um loftlykkjur. Það er engin lykkja aukin út í
umferðinni. Snúið stykkinu. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram að hekla eins og í 6. og 7. umferð þar til
19 stuðlar eru í umferð og síðasta umferð er hekluð frá
röngu, stykkið mælist ca 13-14 cm mælt á breiddina og
ca 38 cm á lengdina.
Nú er heklað fram og til baka án þess að auka út þannig:
8. umf (rétta): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern
stuðul fram að loftlykkjum frá fyrri umferð, heklið 1 stuðul
um loftlykkjur. Snúið stykkinu.
Endurtakið 8. umferð frá réttu og frá röngu alls 4 sinnum
(ca 3½ cm án útaukningar), næsta umferð er frá réttu.
Nú er heklað og lykkjum fækkað þannig:
9. umf (rétta): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í
hvern stuðul þar til 1 stuðull er eftir og 3 loftlykkjur frá
fyrri umferð – lesið ÚRTAKA og fækkið um 1 lykkju.
Snúið stykkinu.
10. umf (ranga): Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í
hvern stuðul fram að loftlykkjum frá fyrri umferð, heklið
1 stuðul um loftlykkjur. Snúið stykkinu. Endurtakið 9. og
10. umferð þar til 3 stuðlar eru í umferð. Stykkið mælist
ca 80 cm. Klippið þráðinn og gangið frá endum.
Heklkveðja
Stelpurnar í Handverkskúnst - www.garn.is
Vesturkot
BÆRINN OKKAR
HANNYRÐAHORNIÐ
Happy Laurel Shawl
– Smásjal heklað úr DROPS Air
Vesturkot er vestasti bærinn á Ólafsvallartorfunni og lengst af hefur
verið rekin þar hefðbundinn landbúnaður. Foreldrar Huldu keyptu
jörðina árið 2005 og síðan þá hefur verið stunduð hrossarækt á bænum
og byggingar aðlagaðar að þeirri starfsemi. Hulda og Þórarinn, maður
hennar, tóku síðan við rekstrinum árið 2014.
Við hvetjum sem flesta til að hafa samband ef ykkur langar að vera með!
Hafið samband: sigrunpeturs@bondi.is