Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023 Borgurum Finnlands er tryggður aðgangur að fæðu, orku, lyfjum, lækningavörum og öllu því sem þarf til að halda samfélaginu gangandi ef allar aðfangakeðjur lokast. Helsti hvatinn er nábýli við Rússland, þó nýlega hafi reynt á kerfið þegar Covid-19 faraldurinn herjaði á heimsbyggðina. Johan Åberg, framkvæmdastjóri landbúnaðarsviðs Samtaka bænda og skógareigenda í Finnlandi (MTK), segir þennan hugsunarhátt vera innbyggðan í erfða- efni Finna. Eftir seinni heimsstyrjöld hafi flest Norðurlöndin komið upp samsvarandi kerfi sem öll hafa verið lögð niður á undanförnum áratugum, nema í Finnlandi. Þar í landi starfi ríkisfyrirtæki sem hafi það hlutverk að halda utan um neyðarbirgðir. Á finnsku heitir það Huoltovarmuuskeskus, sem er hægt að snúa yfir á íslensku sem Neyðarbirgðastofnun ríkisins. Johan segir markmið stofnunarinnar að halda samfélaginu gangandi með lágmarks- röskunum á neyðartímum með birgðum af korni, eldsneyti, áburðarefnum, lyfjum og lækningabúnaði til níu mánaða. Lengst af hafi neyðar- birgðirnar verið til sex mánaða, en vegna óstöðugleika á sviði alþjóðamála var sú ákvörðun tekin fyrir hálfu ári að stækka birgðirnar. Fyrirkomulag sem allir hagnast á Huoltovarmuuskeskus vinnur náið með mismunandi geirum og tekur Johan virkan þátt í þeirra starfi sem fulltrúi bændasamtaka. Hann segir hið opinbera og einkaaðila hafa bæði hag af því fyrirkomulagi sem er á geymslum fyrir varning eins og korn og eldsneyti. Fyrirtæki sem eigi korngeymslur geri samkomulag við Huoltovarmuu- skeskus um hversu miklar umfram- birgðir þau eigi öllum stundum og fái þóknun fyrir. Þá geti önnur fyrirtæki, sem eigi ekki nægan aðgang að geymslum, samið við Neyðarbirgðastofnun ríkisins um að þau haldi sinn lager í geymslum á vegum hins opinbera. Með þessu sé tryggð velta á vörum sem annars rynnu út ásamt því sem þeim er dreift um landið. Rekstur sjálfbær Johan segir Huoltovarmuuskeskus rekið fyrir hagnað sem hlýst af sölu og kaupum á varningi sem sveiflast í verði, sem og sérstökum fæðu- öryggisskatti. Eignir stofnunarinnar eru tveir milljarðar evra, sem samsvarar þrjú hundruð milljörðum íslenskra króna, að mestu bundnar í neyðarbirgðum. Neyðarbirgðastofnunin kaupi sitt korn þegar verðið er lágt, til að mynda í kjölfar uppskeru á haustin þegar bændur skortir geymslupláss, og selji þegar verð er hátt. Stofnuninni sé óheimilt að hafa áhrif á markaðinn og þarf að selja hverjum þeim innlenda aðila sem býður hæsta verðið. Með þessu afli stofnunin talsverðra tekna sem komi á móti tapi sem fylgir geymslu á lyfjum og lækningabúnaði sem þarf að farga eftir ákveðinn árafjölda. Miðla reynslu til annarra þjóða „Ég held að ekkert annað Evrópuland sé með jafnöflugt kerfi. Það eru líklegast einhverjar neyðarbirgðir hér og þar, en ekki nálægt því eins stórar og okkar,“ segir Johan. Á undanförnum árum hafi sendinefndir frá Svíþjóð, Noregi, Bandaríkjunum og fleiri löndum komið til Finnlands til að læra af þeirra reynslu. Viðhorf almennings er mjög jákvætt til Huoltovarmuuskeskus, en ólíkt flestum þjóðum heims þá hafi Finna ekki skort sýnatökupinna, handspritt og andlitsgrímur þegar Covid-19 heimsfaraldurinn skall á. Þá hafi verið skortur á korni sumarið 2022 og fóðurframleiðendur hvergi getað nálgast hráefni. Veitt var heimild til að selja nokkur hundruð tonn af fóðurkorni til að tryggja að ekki yrði rof í kjarnfóðurframleiðslu. Geirar stilla saman strengi Í Finnlandi er enn herskylda og er allt ungt fólk kallað í herþjónustu. Eftir það fer fólk á æfingar með hernum á fimm ára fresti þar til það kemst á fertugs- aldurinn. J o h a n segir sumt fólk halda á f r a m þjónustu sinni við h e r i n n e f t i r f e r t u g t m e ð a n n a r r i nálgun, þar sem ekki er gert ráð fyrir að það sé sent á víg- völlinn. Þegar Bændablaðið ræddi við Johan var hann nýkominn af þjóðvarnarnámskeiði hjá hernum, sem sé fyrir fullorðna einstaklinga sem gegni leiðandi stöðum í mismunandi geirum, bæði í einkafyrirtækjum, hagsmunasam- tökum og opinberum stofnunum. Námskeiðin miði að því að efla samvinnu milli þjóðhagslega mikilvægra starfsgreina og koma á tengslum milli einstaklinga sem í þeim starfa. Johan tók þátt sem fulltrúi bænda og vann þá náið með fimmtíu manna hópi sem hittist þrisvar á ári. „Þetta hefur mjög mikið að gera með fæðuöryggi, því það er einn af hornsteinum þjóðaröryggis að tryggja nægar matarbirgðir á krísutímum.“ Á þessum námskeiðum sé farið yfir alla mögulega flöskuhálsa í samfélaginu með því að setja á svið mismunandi áföll, hvort sem það er stríð við Rússland, lagnaðarís sem lokar Eystrasaltinu eða heimsfaraldur. /ÁL Jólin nálgast, og Reykjavíkurborg óskar eftir að kaupa 200 heybagga til að hjálpa til við að skapa hlýlega og notalega stemmingu á torgum borgarinnar á aðventunni. Við þyrftum að fá baggana afhenta í lok nóvember. Hafðu samband á upplysingar@reykjavik.is ef þú getur hjálpað okkur, eða vilt fá frekari upplýsingar. Heylaust í Borginni - getur þú hlaupið undir bagga? Fæðuöryggi: Neyðarbirgðir til 9 mánaða – Þjóðaröryggi einn af grunnunum á bak við landbúnaðarstefnu Finnlands Finnski herinn skipuleggur þjóðarvarnarnámskeið þar sem fólk í þjóðhagslega mikilvægum geirum stillir saman strengi. Dómkirkjan í Helsinki. Mynd / Tapio Haaja Johan Åberg fer fyrir landbúnaðar- sviði MTK, finnskum systursam- tökum Bændasamtaka Íslands. Mynd / ÁL Í DEIGLUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.