Bændablaðið - 02.11.2023, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Borgurum Finnlands er tryggður
aðgangur að fæðu, orku, lyfjum,
lækningavörum og öllu því sem þarf
til að halda samfélaginu gangandi ef
allar aðfangakeðjur lokast.
Helsti hvatinn er nábýli við
Rússland, þó nýlega hafi reynt á
kerfið þegar Covid-19 faraldurinn
herjaði á heimsbyggðina. Johan Åberg,
framkvæmdastjóri landbúnaðarsviðs
Samtaka bænda og skógareigenda
í Finnlandi (MTK), segir þennan
hugsunarhátt vera innbyggðan í erfða-
efni Finna. Eftir seinni heimsstyrjöld
hafi flest Norðurlöndin komið upp
samsvarandi kerfi sem öll hafa verið
lögð niður á undanförnum áratugum,
nema í Finnlandi.
Þar í landi starfi ríkisfyrirtæki sem
hafi það hlutverk að halda utan
um neyðarbirgðir. Á finnsku heitir
það Huoltovarmuuskeskus, sem er
hægt að snúa yfir á íslensku sem
Neyðarbirgðastofnun ríkisins. Johan
segir markmið stofnunarinnar að halda
samfélaginu gangandi með lágmarks-
röskunum á neyðartímum með birgðum
af korni, eldsneyti, áburðarefnum,
lyfjum og lækningabúnaði til níu
mánaða. Lengst af hafi neyðar-
birgðirnar verið til sex mánaða, en
vegna óstöðugleika á sviði alþjóðamála
var sú ákvörðun tekin fyrir hálfu ári að
stækka birgðirnar.
Fyrirkomulag sem allir hagnast á
Huoltovarmuuskeskus vinnur náið
með mismunandi geirum og tekur
Johan virkan þátt í þeirra starfi sem
fulltrúi bændasamtaka. Hann segir
hið opinbera og einkaaðila hafa bæði
hag af því fyrirkomulagi sem er á
geymslum fyrir varning eins og korn
og eldsneyti.
Fyrirtæki sem eigi korngeymslur
geri samkomulag við Huoltovarmuu-
skeskus um hversu miklar umfram-
birgðir þau eigi öllum stundum
og fái þóknun fyrir. Þá geti önnur
fyrirtæki, sem eigi ekki nægan
aðgang að geymslum, samið við
Neyðarbirgðastofnun ríkisins um
að þau haldi sinn lager í geymslum
á vegum hins opinbera. Með þessu
sé tryggð velta á vörum sem annars
rynnu út ásamt því sem þeim er
dreift um landið.
Rekstur sjálfbær
Johan segir Huoltovarmuuskeskus
rekið fyrir hagnað sem hlýst af sölu
og kaupum á varningi sem sveiflast
í verði, sem og sérstökum fæðu-
öryggisskatti. Eignir stofnunarinnar
eru tveir milljarðar evra, sem
samsvarar þrjú hundruð milljörðum
íslenskra króna, að mestu bundnar í
neyðarbirgðum.
Neyðarbirgðastofnunin kaupi
sitt korn þegar verðið er lágt, til að
mynda í kjölfar uppskeru á haustin
þegar bændur skortir geymslupláss,
og selji þegar verð er hátt.
Stofnuninni sé óheimilt að hafa
áhrif á markaðinn og þarf að selja
hverjum þeim innlenda aðila sem
býður hæsta verðið. Með þessu afli
stofnunin talsverðra tekna sem komi á
móti tapi sem fylgir geymslu á lyfjum
og lækningabúnaði sem þarf að farga
eftir ákveðinn árafjölda.
Miðla reynslu til annarra þjóða
„Ég held að ekkert annað Evrópuland
sé með jafnöflugt kerfi. Það eru
líklegast einhverjar neyðarbirgðir
hér og þar, en ekki nálægt því eins
stórar og okkar,“ segir Johan. Á
undanförnum árum hafi sendinefndir
frá Svíþjóð, Noregi, Bandaríkjunum
og fleiri löndum komið til Finnlands
til að læra af þeirra reynslu.
Viðhorf almennings er mjög
jákvætt til Huoltovarmuuskeskus,
en ólíkt flestum þjóðum heims þá
hafi Finna ekki skort sýnatökupinna,
handspritt og andlitsgrímur þegar
Covid-19 heimsfaraldurinn skall á.
Þá hafi verið skortur á korni sumarið
2022 og fóðurframleiðendur hvergi
getað nálgast hráefni. Veitt var
heimild til að selja nokkur hundruð
tonn af fóðurkorni til að tryggja að
ekki yrði rof í kjarnfóðurframleiðslu.
Geirar stilla saman strengi
Í Finnlandi er enn
herskylda og er allt
ungt fólk kallað
í herþjónustu.
Eftir það fer fólk
á æfingar með
hernum á
fimm ára
fresti þar til
það kemst
á fertugs-
aldurinn.
J o h a n
segir sumt
fólk halda
á f r a m
þjónustu
sinni við
h e r i n n
e f t i r
f e r t u g t
m e ð
a n n a r r i
nálgun, þar
sem ekki
er gert ráð
fyrir að
það sé
sent á víg-
völlinn.
Þegar Bændablaðið ræddi
við Johan var hann nýkominn af
þjóðvarnarnámskeiði hjá hernum,
sem sé fyrir fullorðna einstaklinga
sem gegni leiðandi stöðum í
mismunandi geirum, bæði í
einkafyrirtækjum, hagsmunasam-
tökum og opinberum stofnunum.
Námskeiðin miði að því að
efla samvinnu milli þjóðhagslega
mikilvægra starfsgreina og koma
á tengslum milli einstaklinga sem
í þeim starfa. Johan tók þátt sem
fulltrúi bænda og vann þá náið með
fimmtíu manna hópi sem hittist
þrisvar á ári. „Þetta hefur mjög
mikið að gera með fæðuöryggi,
því það er einn af hornsteinum
þjóðaröryggis að tryggja nægar
matarbirgðir á krísutímum.“
Á þessum námskeiðum sé farið
yfir alla mögulega flöskuhálsa
í samfélaginu með því að setja
á svið mismunandi áföll, hvort
sem það er stríð við Rússland,
lagnaðarís sem lokar Eystrasaltinu
eða heimsfaraldur. /ÁL
Jólin nálgast, og Reykjavíkurborg óskar eftir að
kaupa 200 heybagga til að hjálpa til við að skapa
hlýlega og notalega stemmingu á torgum
borgarinnar á aðventunni.
Við þyrftum að fá baggana afhenta í lok nóvember.
Hafðu samband á upplysingar@reykjavik.is ef þú
getur hjálpað okkur, eða vilt fá frekari upplýsingar.
Heylaust
í Borginni
- getur þú hlaupið undir bagga?
Fæðuöryggi:
Neyðarbirgðir til 9 mánaða
– Þjóðaröryggi einn af grunnunum á bak við landbúnaðarstefnu Finnlands
Finnski herinn skipuleggur þjóðarvarnarnámskeið þar sem fólk í þjóðhagslega
mikilvægum geirum stillir saman strengi. Dómkirkjan í Helsinki. Mynd / Tapio Haaja
Johan Åberg fer fyrir landbúnaðar-
sviði MTK, finnskum systursam-
tökum Bændasamtaka Íslands.
Mynd / ÁL
Í DEIGLUNNI