Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 74

Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 74
74 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023 Silkitoppa er mjög skrautlegur og gæfur fugl. Heimkynni hennar eru í Skandinavíu, Síberíu og Kanada. Þegar æti er af skornum skammti í vetrarheimkynnum hennar er þekkt að þær leggjast á flakk. Þá flækjast þær meðal annars hingað til Íslands en fjöldinn getur verið mjög misjafn milli ára. Stundum eru einungis stakir fuglar sem hingað berast en endrum og sinnum berast þær hingað í stórum hópum. Haustið sem leið var frekar rólegt hvað flækingsfugla varðar enda veðrið búið að vera nokkuð milt og gott. Svo gerðist það loksins í október að við fengum hraustlega haustlægð, með henni barst mikið magn af flækingsfuglum frá Evrópu og sumir þeirra afar sjaldgæfir. Silkitoppan er hins vegar árviss gestur og barst núna nokkuð mikið af þeim til landsins. Þær hafa dreift sér um svo að segja allt land og sjást víða í görðum þar sem fuglum er gefið. Þessi skrautlegi fugl er afar félagslyndur og ekki óalgengt að sjá nokkrar saman. Það er því tilvalið núna þegar dagarnir eru orðnir stuttir og veturinn byrjar að sýna klærnar að gefa fuglum sem hér munu hugsanlega þreyja þorrann. Epli, sólblómafræ, fita, matarafgangar og vatn eru dæmi um það sem er vinsælt að gefa. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Tíska: Drungi og dimmar nætur Í tilefni langra skugga, dimmra nátta og hrekkjavökunnar er ekki úr vegi að velta fyrir sér klæðaburði Addamsfjölskyldunnar. Þessi lífseiga fjölskylda sem flestir kannast við kom fram á sjónarsviðið í blöðum tímaritsins New Yorker árið 1938. Teiknimyndasmiðurinn Charles Addams átti heiðurinn af þeirri skemmtun, en hann byggði myndasöguna lauslega á sinni eigin fjölskyldu. Á sjöunda áratugnum, árunum 1964-66, í sam- vinnu við David nokkurn Levy, samdi Charles sjónvarpsþáttaröð um Addamsfjölskylduna og á skjánum birtust þær persónur sem margir kannast við í dag. Enn fleiri minnast þó sjálfsagt einnar vinsælustu jólamyndar árið 1991, bíómyndar- innar Addamsfjölskyldan, sem sýnd var í kvikmyndahúsum hérlendis fram á næsta ár. Þótti kvikmyndargerðarfólki tilefni til þess að halda áfram með söguna og í desembermánuði 1993 var framhald hennar kynnt, bíógestum til mikillar gleði. Áhugafólk um þessa fjölskyldu hefur svo væntanlega kynnt sér þætti sem finna má á Netflix, undir nafninu Wednesday, en þar er daglegu lífi dótturinnar, Wednesday Addams, fylgt eftir. Stundar hún nám við heimavistarskóla nokkurn þar sem finnast hinar ævintýralegustu persónur. Sterk persónusköpun og búningar Það verður að segjast að meðlimir Addams- fjölskyldunnar beri afar sterk persónueinkenni og séu yfir höfuð mjög áberandi. Fyrir utan skapgerðina þá vekur klæða- burður þeirra hvað mesta athygli – en hver og einn klæðist einungis svörtum fötum, með tilbrigði við hvítt. Rendur eða annað mynstur koma fyrir og er klæðaburðurinn í takt við það sem þekkist undir tískuheitinu „goth“ eða gotneskt á íslensku. Kannski er ekki að undra að yfir þáttum Netflix svífi sá andi yfir bæði leikmynd og búningum, en leikstjórinn er enginn annar en hinn bandaríski Tim Burton. Glöggir lesendur muna sjálfsagt eftir myndum hans, Edward Scissorhand, Sleepy Hollow, Sweeny Todd og teiknimyndinni Corpse Bride, þar sem það yfirbragð er einnig afar ríkjandi. Goth má semsé skilgreina sem drungalega tísku dökkra klæða og fölleitra andlita. Þessi dökka rómantík á rætur að rekja til sorgarklæða Viktoríutímans þegar ekkjur klæddust jafnan svörtum fötum, hvert sem tilefnið var, en vildu oft bera skraut og glingur innan þess ramma. Vilja sumir meina að ímynd vampýra komi einnig við sögu í gotneskri tísku, en vampýrur eru jafnan álitnar bæði glæsilegar og afgerandi í klæðaburði svo og framkomu. Tískuveldin hafa tekið þennan stíl upp á sína arma með reglulegu millibili eins og nærri má geta. Þar ofarlega á lista er merki Chanel sem hefur verið þekkt fyrir slík áhrif í gegnum árin, ekki bara í fatnaði heldur einnig innan veggja verslana sinna – allt frá árum stofnandans, hinnar stílhreinu Coco Chanel. Hún lét eitt sinn hafa eftir sér að til þess að allur dauði væri upprisa lífs og til þess að tíska gæti verið blásin lífi þyrfti að tortíma henni. Sjarmi korsettsins og upprisa gothsins Á meðan tíska dagsins í dag er ærið frjálsleg og bylgjur þess sem vinsælt er falla og hefjast hraðar en nokkru sinni, þá hefur goth-stefnan risið hægt og sígandi. Svartar blúndur, uppháir meðalþykkir sokkar og þröngar perluhálsfestar er eitthvað sem allir þurfa að eiga í dag, auk þess sem korsett færast æ ofar á vinsældalistann. Korsettin þykja fallegust úr þungum efnum á borð við flauel eða flauelslíki, þá dökkgræn, vínrauð eða svört og þeim má klæðast yfir skyrtur eða boli, nú eða ein sér við hátíðleg tilefni. Kjólar þar sem efri hluti er korsett þykja móðins og há svört stígvél, gjarnan támjó, setja punktinn yfir i-ið. Til viðbótar við flauelsefni og blúndur má bæta við svörtu klassísku leðri og jafnvel latexi en mikið er lagt upp úr vandaðri áferð og vel saumuðum flíkum. Fyrir þá sem vilja finna sína innri drama- tísku drungalegu samsetningu er ágætt að horfa á áðurnefnda þætti um ungfrúna hana Wednesday á Netflix eða líta við í búðinni Rokk & rómantík á Laugaveginum, en þar er ýmislegt sem gleður augað. /SP Addamsfjölskyldan eins og hún lítur út í dag, með dótturina Wednesday í forgrunni. Chanel er þekkt fyrir tímalausa klassík, þar sem klæðin eru úr flaueli, blúndum, svört eða hvít. Addamsfjölskyldan var jólamynd ársins 1991.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.