Bændablaðið - 02.11.2023, Side 74
74 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Silkitoppa er mjög skrautlegur og gæfur fugl. Heimkynni hennar eru í Skandinavíu, Síberíu og Kanada. Þegar æti er af skornum skammti í vetrarheimkynnum hennar er þekkt að þær leggjast á flakk. Þá flækjast
þær meðal annars hingað til Íslands en fjöldinn getur verið mjög misjafn milli ára. Stundum eru einungis stakir fuglar sem hingað berast en endrum og sinnum berast þær hingað í stórum hópum. Haustið
sem leið var frekar rólegt hvað flækingsfugla varðar enda veðrið búið að vera nokkuð milt og gott. Svo gerðist það loksins í október að við fengum hraustlega haustlægð, með henni barst mikið magn af
flækingsfuglum frá Evrópu og sumir þeirra afar sjaldgæfir. Silkitoppan er hins vegar árviss gestur og barst núna nokkuð mikið af þeim til landsins. Þær hafa dreift sér um svo að segja allt land og sjást víða í
görðum þar sem fuglum er gefið. Þessi skrautlegi fugl er afar félagslyndur og ekki óalgengt að sjá nokkrar saman. Það er því tilvalið núna þegar dagarnir eru orðnir stuttir og veturinn byrjar að sýna klærnar
að gefa fuglum sem hér munu hugsanlega þreyja þorrann. Epli, sólblómafræ, fita, matarafgangar og vatn eru dæmi um það sem er vinsælt að gefa. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Tíska:
Drungi og dimmar nætur
Í tilefni langra skugga, dimmra nátta og
hrekkjavökunnar er ekki úr vegi að velta
fyrir sér klæðaburði Addamsfjölskyldunnar.
Þessi lífseiga fjölskylda sem flestir
kannast við kom fram á sjónarsviðið í
blöðum tímaritsins New Yorker árið 1938.
Teiknimyndasmiðurinn Charles Addams átti
heiðurinn af þeirri skemmtun, en hann byggði
myndasöguna lauslega á sinni eigin fjölskyldu.
Á sjöunda áratugnum, árunum 1964-66, í sam-
vinnu við David nokkurn Levy, samdi Charles
sjónvarpsþáttaröð um Addamsfjölskylduna og
á skjánum birtust þær persónur sem margir
kannast við í dag.
Enn fleiri minnast þó sjálfsagt einnar
vinsælustu jólamyndar árið 1991, bíómyndar-
innar Addamsfjölskyldan, sem sýnd var í
kvikmyndahúsum hérlendis fram á næsta ár.
Þótti kvikmyndargerðarfólki tilefni til þess að
halda áfram með söguna og í desembermánuði
1993 var framhald hennar kynnt, bíógestum
til mikillar gleði.
Áhugafólk um þessa fjölskyldu hefur
svo væntanlega kynnt sér þætti sem finna
má á Netflix, undir nafninu Wednesday, en
þar er daglegu lífi dótturinnar, Wednesday
Addams, fylgt eftir. Stundar hún nám við
heimavistarskóla nokkurn þar sem finnast
hinar ævintýralegustu persónur.
Sterk persónusköpun
og búningar
Það verður að segjast að meðlimir Addams-
fjölskyldunnar beri afar sterk persónueinkenni
og séu yfir höfuð mjög áberandi.
Fyrir utan skapgerðina þá vekur klæða-
burður þeirra hvað mesta athygli – en hver
og einn klæðist einungis svörtum fötum, með
tilbrigði við hvítt. Rendur eða annað mynstur
koma fyrir og er klæðaburðurinn í takt við
það sem þekkist undir tískuheitinu „goth“
eða gotneskt á íslensku. Kannski er ekki að
undra að yfir þáttum Netflix svífi sá andi yfir
bæði leikmynd og búningum, en leikstjórinn er
enginn annar en hinn bandaríski Tim Burton.
Glöggir lesendur muna sjálfsagt eftir myndum
hans, Edward Scissorhand, Sleepy Hollow,
Sweeny Todd og teiknimyndinni Corpse Bride,
þar sem það yfirbragð er einnig afar ríkjandi.
Goth má semsé skilgreina sem drungalega
tísku dökkra klæða og fölleitra andlita. Þessi
dökka rómantík á rætur að rekja til sorgarklæða
Viktoríutímans þegar ekkjur klæddust jafnan
svörtum fötum, hvert sem tilefnið var, en vildu
oft bera skraut og glingur innan þess ramma.
Vilja sumir meina að ímynd vampýra komi
einnig við sögu í gotneskri tísku, en vampýrur
eru jafnan álitnar bæði glæsilegar og afgerandi
í klæðaburði svo og framkomu.
Tískuveldin hafa tekið þennan stíl upp
á sína arma með reglulegu millibili eins og
nærri má geta. Þar ofarlega á lista er merki
Chanel sem hefur verið þekkt fyrir slík áhrif í
gegnum árin, ekki bara í fatnaði heldur einnig
innan veggja verslana sinna – allt frá árum
stofnandans, hinnar stílhreinu Coco Chanel.
Hún lét eitt sinn hafa eftir sér að til þess að
allur dauði væri upprisa lífs og til þess að tíska
gæti verið blásin lífi þyrfti að tortíma henni.
Sjarmi korsettsins
og upprisa gothsins
Á meðan tíska dagsins í dag er ærið frjálsleg
og bylgjur þess sem vinsælt er falla og hefjast
hraðar en nokkru sinni, þá hefur goth-stefnan
risið hægt og sígandi.
Svartar blúndur, uppháir meðalþykkir
sokkar og þröngar perluhálsfestar er eitthvað
sem allir þurfa að eiga í dag, auk þess sem
korsett færast æ ofar á vinsældalistann.
Korsettin þykja fallegust úr þungum efnum
á borð við flauel eða flauelslíki, þá dökkgræn,
vínrauð eða svört og þeim má klæðast yfir
skyrtur eða boli, nú eða ein sér við hátíðleg
tilefni. Kjólar þar sem efri hluti er korsett þykja
móðins og há svört stígvél, gjarnan támjó, setja
punktinn yfir i-ið.
Til viðbótar við flauelsefni og blúndur má
bæta við svörtu klassísku leðri og jafnvel latexi
en mikið er lagt upp úr vandaðri áferð og vel
saumuðum flíkum.
Fyrir þá sem vilja finna sína innri drama-
tísku drungalegu samsetningu er ágætt að
horfa á áðurnefnda þætti um ungfrúna hana
Wednesday á Netflix eða líta við í búðinni
Rokk & rómantík á Laugaveginum, en þar er
ýmislegt sem gleður augað.
/SP
Addamsfjölskyldan eins og hún lítur út í dag,
með dótturina Wednesday í forgrunni.
Chanel er þekkt fyrir tímalausa klassík, þar sem klæðin eru úr flaueli, blúndum, svört eða hvít.
Addamsfjölskyldan var jólamynd ársins 1991.