Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 28

Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023 Verkefni Byggðastofnunar undir yfirskriftinni Brothættar byggðir hefur teygt sig víða um landið en alls hafa 14 byggðarlög tekið þátt. Eins og áður hefur komið fram er markmið þess að stöðva viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarkjörnum landsins og er m.a. unnið í samvinnu við íbúa, landshlutasamtök, sveitar- félög og aðra með það fyrir augum að ráða bót á þessum vanda. Litið er til örðugra viðfangsefna sem eiga við á fleiri en einum stað á landinu, gætt er þess að stilla saman strengi yfirvalds og íbúa og á allan hátt efla mótstöðuafl brothættra byggða. Fá íbúar hvers byggðarlags fyrir sig kost á að forgangsraða þeim málefnum er þeim þykja að helst mætti taka til og sjá verkefnastjórar Byggðastofnunar um að virkja frumkvæði og samtakamátt íbúanna, enda mikilvægar raddir í hverju samfélagi. Samfélag Stöðvarfjarðar Eitt þeirra byggðarlaga sem fallið hafa undir væng verkefnisins er Stöðvarfjörður. Var þar nú nýverið haldinn fundur meðal íbúanna og farið yfir hvað áunnist hefur síðastliðna átján mánuði, en verkefnið, sem ber nafnið Sterkur Stöðvarfjörður, hófst snemma árs 2022. Hafði þá komið í ljós að íbúum hafði fækkað allverulega, eða um 32% síðan um aldamót. Á þessum fyrsta fundi helgina 5.-6. mars í fyrra komu fram allmargar uppástungur frá íbúum sem greitt var úr eftir bestu getu og stefnan gróflega mótuð. Skiptust meginmarkið niður í fjóra flokka, en þeir eru eftirfarandi: Fyrirmyndarumhverfi – Samheldið samfélag – Öflugt atvinnulíf – Sterkir innviðir. Var sammælst um það að Stöðvarfjörður hafi alla burði til þess að eflast sem ferðamannastaður, menningar- og nýsköpunarbær. Hæst bar umræða um miðbæjarreit Stöðvarfjarðar, Balann, en uppbygging hans fékk flest atkvæða íbúa byggðarinnar sem vilja ýta undir aðlaðandi útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna. Hugmyndir um húsnæðismál og byggingar voru hátt á lofti, göngustígar og umhverfisfegrun auk atvinnuskapandi greina. Allt eru þetta málefni sem komust ofarlega í forgangsröðun verkefnisins, en spurningunni „Hvað eigum við?“ var kastað upp á fundinum. Nefndar voru náttúruperlur staðarins, mannauður auk þátta sem væru ríkir en þörfnuðust styrkingar. Verkefnisstjóri var ráðinn, Valborg Ösp Árnadóttir Warén, auk nokkurra aðila í verkefnisstjórn, en að lokum var framtíðarsýn fyrir árið 2025 komið í orð. Samkvæmt skýrslu Byggða- stofnunar er hún svohljóðandi: Stöðvarfjörður iðar af mannlífi og íbúar á öllum aldri eru virkir þátttakendur í samfélaginu. Atvinnulíf er öflugt og störfum hefur fjölgað, hvort sem það eru störf í bænum eða óstaðbundin störf. Íbúum hefur fjölgað og Stöðvarfjörður er þekktur sem fjölskylduvænt og gott samfélag sem tekur vel á móti nýbúum. Stöðvarfjörður hefur byggst upp sem eftirsóttur ferðamannastaður og menningar- og nýsköpunarbær og í þorpinu er næg gisting og þjónusta ásamt fjölbreyttum möguleikum til afþreyingar. Balinn er orðinn að skjólgóðu og notalegu útivistarsvæði fyrir fjölskyldur. Svæðið er gróið og fallegt og þar er nýr leikvöllur með leiktækjum og afþreyingu fyrir allan aldur. Miðbærinn hefur byggst upp og hefur fallega og snyrtilega ásýnd. Húsin í þorpinu eru falleg og þeim er vel við haldið. Það liggur góður og breiður vegur inn í fjörðinn og út í þorp. Styrkveiting frumkvæðissjóðs Tvennar styrkveitingar frumkvæðis- sjóðs Sterks Stöðvarfjarðar buðust íbúum byggðarlagsins, annars vegar í nóvember 2022, þá 7 m. krónur sem skiptust niður á 13 umsækjendur og svo var úthlutun í apríl nú í ár þar sem 7,2 m. deildust niður á 17 umsækjendur. Kaffibrennslan Kvörn var eitt þeirra er hlaut dágóða upphæð í formi styrkja yfir árið, en aðspurður telur eigandinn, Lukasz Stencel, þetta verkefni Byggðastofnunar af hinu góða, bæði samfélagslega hvetjandi svo og brýn nauðsyn. Lukasz, sem hefur staðið að vinnslu kaffibauna sl. ellefu ár, nýtti styrkveitinguna að stórum hluta til kaupa á vél en hann bæði malar og brennir sínar baunir af kostgæfni. Ævintýralegur keimur Þykja sumum kaffitegundir fyrir- tækisins bragðast heldur ævintýra- lega, en kaffibaunirnar koma víðs vegar að úr heiminum, þ.á m. Perú, Hondúras, Kólumbíu og Mexíkó. Segir Lukasz fólk eiga að vera óhrætt að smakka enda raunin sú að fleiri en færri komast á bragðið af góðu kaffi. Til gamans má geta að á sínum tíma var fyrirtæki Íslenskrar erfðagreiningar einna fyrst til þess að leggja inn reglulega pöntun hjá honum, þá hvorki meira né minna en 56-60 kg mánaðarlega. Í dag er kaffið selt víða um land. Nýmalað kaffi frá Kaffibrennslunni Kvörn má finna í Melabúð Vesturbæjar Reykjavíkur, auk þess sem nú er hægt að fá mánaðarlega kaffiáskrift í gegnum síðu Kvarnar á Facebook. Blómstrandi byggðarlög Frumkvæðissjóðir Brothættra byggða eru styrktarsjóðir verkefna þeirra svæða sem taka þátt. Stutt er við verkefni sem styðja uppbyggingu hvers byggðarlags fyrir sig, til þróunarverkefna og annarra samfélagseflandi verkefna. Eiga landsmenn það sameiginlegt að vilja sjá byggð landsins okkar blómstra og binda forsvarsmenn Brothættra byggða vonir um að með verkefninu myndist sá grunnur er þarf til þess. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Byggðastofnunar og þau byggðarlög sem hafa áhuga á þátttöku hvött til að sækja um. Arctic Trucks Kletthálsi 3, 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | info@arctictrucks.is Opið alla virka daga 8-17 | www.arctictrucks.is | Arctic Trucks á Íslandi dekk á kynningarverði! Frábær dekk hönnuð í Evrópu. Vönduð efni og góð hönnun skila dekkjum með góða endingu, grip og áreiðanleika við alls konar aðstæður. Fáanleg í flestum stærðum fólksbíla, jepplinga og jeppa. Frábært alhliða jepplingadekk sem hentar jafnvel á malbiki og á grófum slóðum. Gott grip í snjó og hálku. Hörkufínt jeppadekk sem veitir stöðugleika og gott grip þegar mest á reynir í erfiðum aðstæðum. Öruggt heilsársdekk sem virkar vel við allar aðstæður, sumar og vetur. Nýtt hjá Arctic Trucks dekk! Í DEIGLUNNI Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Stöðvarfjörður hóf göngu sína í verkefninu Brothættar byggðir í ársbyrjun 2022 og völdu íbúar heitið Sterkur Stöðvarfjörður á íbúaþingi. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í lok árs 2025 hvað aðkomu Byggðastofnunar varðar. Mynd / Wikipedia Kaffibrennslan Kvörn var eitt þeirra fyrirtækja sem fékk styrkveitingu frumkvæðissjóð. Brothættar byggðir: Sterkur Stöðvarfjörður Styrkþegar frumkvæðissjóðs Sterks Stöðvarfjarðar í apríl síðastliðnum. Mynd / austurbru.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.