Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 18

Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023 Í lögum um starfsumhverfi bænda er kveðið á um að kjör starfs­ stéttarinnar skuli vera sambærilegar við aðrar stéttir þar sem krafa um þekkingu og ábyrgð gagnvart rekstri er svipuð. Í þessu samhengi er yfirleitt miðað við laun iðnmenntaðra starfsgreina. Til að gera samanburðinn sem skýrastan hafa BÍ sett saman pott af iðnmenntuðum starfsstéttum, sumar í ábyrgðarstöðum, aðrar ekki, sótt meðal mánaðarlaun þeirra af Hagstofu Íslands og reiknað meðallaun úrtaksins. Sést úrtakið í töflu hér til hliðar. Þegar vísað er í laun samanburðarstéttar er vísað í meðallaun þessara starfstitla. Til að reikna út kjör bænda ár hvert er stuðst við bæði laun og hagnað býlisins af rekstri, eins og þau eru gefin upp í rekstrar reikningum í gögnum Hagstofunnar. Gefur þetta réttasta mynd af stöðunni því hagnaður af rekstri fer vissulega einnig í vasa bændanna eins og um hefðbundinn einkarekstur sé að ræða og sama sinnis hefur tap af rekstri einnig áhrif á heimilishaldið. Aðeins eru til opinber gögn fram til ársins 2021, nægar eru forsendurnar til að framreikna þau til ársins 2022 með ágætis nákvæmni. Er það byggt á aðfangaverði, afurðaverði, vaxtastigi og öðrum verðhækkunum. Er stuðst við Rekstrarrannsókn RML við þann uppsetning þar sem hægt er að sjá rekstur býla skipt niður í kostnaðar- og tekjuliði á ítarlegan hátt. Til eru áætlanir fyrir stöðuna 2023 og teljum við okkur hafa ágætis yfirsýn yfir stöðu þessa árs en á þessum tímapunkti væri óábyrgt að birta þær, bæði vegna þess að árinu er ekki lokið og þar sem þau byggja á framreikningi af framreikningi. Það er nú orðið frekar langt síðan opinberar tölur fyrir þennan málaflokk hafa verið uppfærðar. Sést í töflunni hér að ofan hversu mikið bil er á kjörum launa bænda og þeirra sem bændur eiga að vera miðuð við. Eins og sést þarna áætlum við að meðalafkoma sauðfjárbýlis sé neikvæð um tæplega hálfa milljón yfir árið og nautgripabús hafi verið neikvæð um rúmlega fjórar milljónir. Á síðasta ári var afkoma kúabús næg til greiðslu upp á tæplega 115.000 krónur á mánuði að meðaltali. Vakin er athygli á að þessir útreikningar miða við einföld mánaðarlaun til samanburðar en ljóst er að flestum býlum er ekki sinnt af einu starfsgildi og því má áætla að munurinn sé í raun mun meiri. Ljóst er að staðan hefur versnað til muna árið 2023, sér í lagi í kúa- og nautgripabýlum þar sem fjármagnskostnaður er farinn að vega mikið, rúmlega tvöfaldast á undanförnum tveimur árum og er nú vel rúmlega 5 milljarðar samanlagt fyrir kúabú. Er ekki óalgengt að býli séu farin að greiða um og yfir 12 milljónir á ári í fjármagnskostnað, sem er langt um meira en bændurnir lifa á sjálfir. Teljum við yfirgnæfandi líkur á að allar þrjár búgreinar muni skila neikvæðri afkomu á þessu ári og að launagreiðslugeta verði engin nema með skuldaaukningu. /SFB HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS Weckman stálklæðningar 30 ára reynsla á Íslandi BÁRUJÁRN verð kr. 3.300 m2 TRAPISA verð kr. 3.300 m2 STALLAÐ STÁL verð kr. 4.500 m2 Öll verð eru með vsk. H. HAUKSSON EHF. Ögurhvarfi  8,  203  Kópavogur | 588  1130 | hhauksson.is | hhauksson@hhauksson.is Úrtak starfsheita til útreikninga á samanburðarlaunum Yfirmenn framleiðslu- og rekstrardeilda í iðnaði Yfirmenn framleiðslu- og rekstrardeilda í byggingariðnaði og mannvirkjagerð Störf byggingarsmiða - iðnlærðir Störf húsasmiða - iðnlærðir Störf trésmiða - iðnlærðir Störf byggingarmanna við frágang - iðnlærðir Störf pípulagningarmanna - iðnlærðir Störf málmsmiða, logsuðumanna, blikksmiða og stálsmiða - iðnlærðir Störf vélvirkja - iðnlærðir Störf vélvirkja - iðnlærðir verkstjórar Störf rafvélavirkja - iðnlærðir Störf rafeindavirkja - iðnlærðir Búgrein Sauðfjárbú Kúabú Nautgripabú Samanburðarstétt 2021 Meðallaun á mánuði 154.227 598.085 239.087 938.800 Hagnaður/tap deilt á mánuði 40.882 114.259,8 -128.968 Afkoma á mánuði (meðallaun+hagnaður) 195.109 712.345 110.119 Mismunur frá mánaðarlaunum samanburðarstéttar -742.691 -225.455 -827.681 2022 Afkoma á mánuði - 34.449 14.038 -336.006 1.018.700 Mismunur frá mánaðarlaunum samanburðarstéttar -1.052.149 -903.662 -1.051.301 Mismunur frá meðallaunum 2022 (745.000) -779.449 -630.962 -1.081.006 Hver eru laun bænda í samanburði við aðra í landinu? Bændablaðið kemur næst út 16. nóvember
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.