Bændablaðið - 02.11.2023, Side 10

Bændablaðið - 02.11.2023, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023 FRÉTTIR Skipulagsauglýsing Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi: Breyting á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði, Vesturbyggð. Tillagan felur í sér skilgreiningu á fjórum íbúða- lóðum við Þórsgötu, neðan við Mýrar, á svæði sem skilgreint er sem ÍB1 í gildandi Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 23. október til 4. desember 2023 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar, www.vesturbyggd.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 4. desember 2023. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Virðingarfyllst, Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar Hrútaskráin kemur út 17. nóvember Eitt vinsælasta blað landsins, Hrútaskráin, kemur úr prentun 17. nóvember nk. Í henni verða kynntir 48 glæsilegir hrútar, sem verða meðal annars í notkun á sauðfjársæðingastöðvum yfir fengitímann. Hrútakosturinn er að venju gríðar- lega öflugur, blanda af reynsluboltum og yngri köppum sem hafa nú hafið sinn fyrsta vetur á sæðingastöðvunum. Þetta er í 26. skipti sem hrútaskráin kemur út en ritstjóri hennar er Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur hjá RML. /mhh Atmonia: Viljayfirlýsing um framleiðslu á umhverfisvænu ammoníaki Fyrirtækin Qair Ísland og Atmonia hafa gert með sér samstarfssamning um framleiðslu á umhverfisvænu ammoníaki á Grundartanga. Gert er ráð fyrir að framleiðsla verði komin í gang árið 2028. Um viljayfirlýsingu er að ræða þar sem stefnt verður að því að hagnýta nýja tækni Atmonia til að framleiða ammoníak sem umhverfisvænan orkugjafa, með sjálfbæru hráefni frá Qair; eins og raforku og vatni. Orkuframleiðsla úr endurnýjanlegum auðlindum Qair Group er raforkuframleiðandi með langa reynslu af því að þróa og reka innviði til orkuframleiðslu úr endurnýjanlegum auðlindum og starfar nú í 18 löndum. Frá 2019 hefur vetnisframleiðsla verið mikilvæg stoð í stefnu Qair, sem rekur nú slík verkefni í Frakklandi, Íslandi og Brasilíu. Staðsetning framleiðslustöðvarinnar á amm­ oníakinu á Grundartanga verður einmitt við nýju vetnisvinnslustöð Qair sem er í þróun. Tvær markverðar vörur í þróun Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki, stofnað 2016, sem er með tvenns konar vöruþróun í vinnslu sem munu geta lagt mikið af mörkum í baráttunni gegn loftslagsvandanum. Önnur varan gengur út á framleiðslu á ammoníaki úr lofti og vatni án þess að losa gróðurhúsalofttegundir, en talið er að um tvö prósent af koltvísýringslosun af mannavöldum í heiminum megi rekja til núverandi framleiðsluaðferðar ammoníaks. Vinsældir ammóníaks sem orkugjafi á skip og aðrar stórar vélar eru að aukast sem gerir hina nýju aðferð Atmonia mjög vænlega til nánustu framtíðar. Hin vara fyrirtækisins gengur út á framleiðslu á sjálfbæru nítrati úr ammoníaki en núverandi nítratframleiðsla er sérstaklega mengandi ferli. Nítratið mun nýtast sem áburður og getur stuðlað að sjálfbærni og fæðuöryggi á tilteknum svæðum. Tvær viðurkenningar Atmonia hefur nýlega hlotnast tvær viðurkenningar fyrir árangur sinn. Í sumar hlaut fyrirtækið viðurkenningu úr Nýsköpunarsjóði dr. Þorsteins Inga Sigfússonar við Háskóla Íslands árið 2023. Þetta er í þriðja sinn sem viðurkenning er veitt úr sjóðnum en tilgangur hans er að stuðla að auknum áhuga á nýsköpun og styrkja efnilega frumkvöðla, nemendur eða vísindamenn, sem með einhverjum hætti sinna verkefnum eða rannsóknum er lúta að nýsköpun. Getur aukið hróður íslenskrar tækni Nýverið fékk svo Atmonia Nýsköpunar verðlaun Samorku 2023. Í greinargerð Samorku um viðurkenninguna segir að tækni Atmonia sé einkaleyfavarin sem beri vott um nýnæmi hennar. „Við mat dómnefndar var horft til ýmissa þátta eins og nýnæmis, samsetningar teymis, verðmætis fyrir Ísland, markaðstækifæra, verðmætis m.t.t. loftslagsmála og nýtingar orku, vatns og hliðarstrauma fyrir verkefnið. Það er mat dómnefndar að verkefni Atmonia mæti mjög vel lýsingu Samorku á nýsköpunar­ verðlaununum og þeim þáttum sem hér voru nefndir. Dómnefndin var einróma í mati sínu og telur að framgangur verkefnisins geti haft afar jákvæð og þýðingarmikil áhrif. Má þar nefna nýtingu hreinnar innlendrar orku fyrir eldsneytis­ og áburðarframleiðslu, minnkun kolefnislosunar, auknar útflutnings­ tekjur og minni innflutning erlendra afurða. Verkefnið getur einnig nýst víða annars staðar og aukið hróður íslenskrar tækni erlendis,“ segir í umsögn dómnefndarinnar. /smh Guðbjörg Rist, framkvæmdastjóri Atmonia, og Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair Ísland, eftir að viljayfirlýsingin var undirrituð. Mjög mikið er að gerast í uppbyggingu í kringum ferðaþjónustu í Rangárþingi ytra, bæði hjá litlum aðilum og stórum. „Það virðist ekki vera neitt lát á uppbyggingu hjá okkur, alls staðar er verið að byggja og byggja. Núna eru til dæmis 74 íbúðir í byggingu á Hvolsvelli. Hinar 23 eru í byggingu í póstnúmeri 861, það er að segja í Fljótshlíð, Landeyjum og undir Eyjafjöllum,“ segir Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, aðspurður hvort það hafi hægst eitthvað á byggingaframkvæmdum í sveitarfélaginu vegna hárrar verðbólgu og vaxta. „Við erum að fara að opna á lóðaumsóknir í þriðja áfanga Hallgerðartúns á Hvolsvelli sem eru par­, rað­ og fjölbýlishúsalóðir, alls 32 íbúðir,“ segir Anton enn fremur. En hvaða fólk er aðallega að flytja í sveitarfélagið? „Það er alls konar fólk að byggja hjá okkur, til dæmis ungt fólk sem hefur verið í minni íbúðum er að stækka við sig og eldra fólk sem er að byggja sér hentugra og viðhaldsminna húsnæði. Svo alls konar fólk sem flytur til okkar til þess að sinna sínum störfum í ferðaþjónustu, skólastofnunum og annarri þjónustu. Leigumarkaður á Hvolsvelli er mjög lítill eða enginn og þar er verulegur skortur. Við vonumst til að sú uppbygging sem er hafin og er í kortunum leysi það að einhverju leyti,“ segir Anton Kári. „Það er mest megnis í dreifbýli, en þar eru áætlanir um talsverða uppbyggingu eins og nokkur stór hótel og gríðarlega flott spa. Einnig eru minni aðilar í uppbyggingu smáhýsa og fleira. Talsverð plön eru líka í gangi á Hvolsvelli, t.d. fyrsti áfangi 200 herbergja hótels sem verður staðsett við LAVA og svo er líka að fara í gang núna á næstu dögum uppbygging á miðbæjarreitnum okkar, en þar verða íbúðir í bland við verslun og þjónustu,“ segir Anton Kári og telur þróunina mjög ánægjulega og góða fyrir sveitarfélagið. „Að vísu kallar það að sjálfsögðu á að okkar innviðir ráði við fjölgunina, sem við gerum nú þegar með nægu leikskólaplássi, skólaplássi og góðu úrvali af verslun og þjónustu.“ /MHH Uppbygging á Hvolsvelli Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, getur ekki verið annað en ánægður með þá miklu uppbyggingu sem á sér stað í sveitarfélaginu. Mynd/MHH Kjötafurðastöðvar: Stjórnarfrumvarp um heimild til samstarfs Svandís Svavarsdóttir matvæla­ ráð herra mun leggja fram stjórnar­ frumvarp um heimild kjöt­ afurðastöðva til aukins samstarfs. Var tilkynnt um þetta á vef matvælaráðuneytisins í gær þar sem fram kom að samþykkt hefði verið í ríkisstjórn að leggja málið fram sem stjórnarfrumvarp um framleiðendafélög. Því er ætlað að styrkja stöðu framleiðenda búvara og skapa tækifæri til aukinnar samvinnu og verðmætasköpunar. Heimild til samstarfs eins og á Norðurlöndunum Í frumvarpinu er lagt til að fyrir­ tækjum sem eru í eigu eða undir meirihlutastjórn frumframleiðenda verði heimilt að eiga með sér samstarf um afmarkaða þætti líkt og tíðkast í nágrannalöndum.„Við teljum þetta frumvarp vera lið í því að bæta stöðu bænda. Með skýrt afmarkaðri heimild til samvinnu í samræmi við landbúnaðarstefnu þá sem samþykkt var á Alþingi í vor“, er haft eftir Svandísi í tilkynningunni. Þar segir einnig að í landbúnaðar­ stefnunni komi fram að tryggja skuli með löggjöf að innlendir framleiðendur hafi ekki lakara svigrúm til hagræðingar og samstarfs en framleiðendur í nágranna­ löndunum. Í frumvarpinu sé einkum horft til útfærslu á reglum í Finnlandi. Fallið frá fyrri drögum Áður hafði matvælaráðherra lagt sams konar frumvarpsdrög í Sam­ ráðsgátt stjórnvalda til umsagnar í desember á síðasta ári. Það byggði meðal annars á tillögum spretthópsins frá því í júní á síðasta ári, sem ráðherra kallaði eftir vegna slæmrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Samkeppniseftirlitið lagðist hins vegar gegn þeim hugmyndum sem komu fram í frumvarpsdrögunum, um undanþágu frá grunnreglum samkeppnislaga. Var talið að undanþágan færi mögulega gegn ákvæðum EES­samningsins og var því fallið frá þeim drögum. /smh

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.