Bændablaðið - 02.11.2023, Síða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Þann 1. september 2024 hefst gjaldtaka á bílastæðum
við Dyrhólaey í Mýrdal.
Í Dyrhólaey hafa innviðir verið efldir síðustu ár með
nýjum bílastæðum, göngustígum og salernishúsi svo
eitthvað sé nefnt. Rukkað er inn á salernin á staðnum.
Mikil aukning gestafjölda hefur verið á svæðinu og
rekstrarkostnaður fer því samhliða ört hækkandi. Má
þar nefna viðhald, umsjón bæði svæðis og salernis,
landvörslu og fleira. Þjónustugjöldin, sem verða innheimt
á bílastæðunum munu alfarið renna í rekstur svæðisins,
samkvæmt upplýsingum frá Ingu Dóru Hrólfsdóttur hjá
Umhverfisstofnun.
„Fundað hefur verið með sveitarfélaginu, sem er
Mýrdalshreppur, og fulltrúa landeiganda og hefur komið
fram á þeim fundum að þau séu sátt við þessa leið okkar.
Þjónustugjöld, sem eru innheimt á bílastæði, eru einfaldari
í framkvæmd heldur en fyrirkomulagið er núna, sem er
gjaldavél og hlið inn á salernið. Verið er að vinna í að
senda póst til helstu ferðaþjónustufyrirtækja og SAF til
upplýsingar. Ákveðið var að gildistíminn væri um haustið
því fyrirtæki eru þegar byrjuð að selja ferðir fyrir næsta
sumar,“ segir Inga Dóra. Dyrhólaey er í óskiptu landi
jarðarinnar Austurhúsa, sem er í eigu Mýrdalshrepps,
og þriggja einstaklinga; Matthildar Ólafsdóttur Valfells,
Jóns Valfells og Vigfúsar Ásgeirssonar. Mýrdalshreppur
á 53,86% Dyrhólaeyjar. Austur- og Vesturhúsajarðir í
Dyrhólahverfi eiga sameiginlega nytjar í Dyrhólaey.
Dyrhólaey var friðlýst sem friðland árið 1978 og er í
umsjón Umhverfisstofnunar. / MHH
Nýtt hús undir um 400 gyltur og
grísi þeirra er risið frá grunni á
Sölvastöðum í Eyjafjarðarsveit.
Um 3.000 gyltur eru nú í landinu.
Gyltuhúsið er 2.900 m2 að stærð
og hús fyrir starfsmannaaðstöðu og
fóðurblöndun er 300 m2.
Ingvi Stefánsson, svínabóndi í
Teigi í Eyjafjarðarsveit og formaður
Félags svínabænda, segir vonir standa
til að húsin verði fullkláruð að utan og
hægt verði að setja upp innréttingar
og fóðurkerfi eftir áramótin. Gangi
það eftir gætu fyrstu gripirnir farið
inn í húsin í apríl 2024.
„Þetta eru fyrst og fremst
byggingar fyrir gyltur þar sem
framleiddir verða smágrísir sem
fara á önnur bú til áframeldis,“ segir
Ingvi. „Þó verður um helmingur af
grísunum alinn upp í 30 kg á búinu.“
Í upphafi eru keypt lífdýr inn á
búið. Það eru unggyltur. Þær þurfa
svo að ná ákveðnum aldri til að hægt
sé að hleypa þeim til. Þá er meðganga
og mjólkurskeið eftir. Þetta er ferli
sem tekur 6-9 mánuði. Þá fer búið
fyrst að skila frá sér grísum til
áframeldis.
Viðbragð við samdrætti
Aðspurður um hvernig aðbúnaði
svínanna verði háttað segir Ingvi
stærstu breytinguna felast í því að
afleggja alveg hefðbundið básahald
þar sem gyltur eru komnar í
lausagöngu.
„Þannig eru gylturnar einnig
í lausagöngu á mjólkurskeiði.
Jafnframt eru stíur stækkaðar mikið
frá því sem áður var,“ segir hann. Í
takt við reglur sem fela í sér auknar
kröfur um aðbúnað svína þótti
skynsamlegt að byggja nýja aðstöðu
frá grunni. Áætlaður kostnaður mun
vera rúmlega 700 m.kr.Ingvi er í
samstarfi við Kjarnafæði/Norðlenska
og Bústólpa um uppbyggingu hins
nýja svínabús.
„Framleiðsla hér fyrir norðan hefur
verið að dragast saman og að óbreyttu
hefði hún getað horfið alfarið af
svæðinu innan tveggja til þriggja ára,
ef ekkert hefði verið gert,“ segir hann
og heldur áfram: „Bæði þessi félög
hafa hagsmuna að gæta að viðhalda
þessari framleiðslu á svæðinu. Það
eru bæði störf og samlegðaráhrif
með öðrum kjötvörum í húfi. Því var
stofnað félag um þennan rekstur og
KN og Bústólpi eru hluthafar í því
ásamt svínabúinu á Teigi.“
Um framtíðarsýn hans fyrir
hönd Sölvastaðabúsins segir Ingvi
að metnaður standi til að hafa allan
aðbúnað eins og best verði á kosið,
bæði fyrir menn og dýr.
„Sem dæmi má í því samhengi
nefna að við höfum gotstíur
umtalsvert stærri en regluverkið fer
fram á. Við leggjum einnig mikið upp
úr því að öll ásýnd og umgengni verði
til fyrirmyndar. Höfum líkað skoðað
hvernig við getum nýtt svínaskítinn
til húshitunar og á sama tíma
minnkað kolefnissporið í rekstrinum.
Vonandi verður hægt að takast á við
þá áskorun i nánustu framtíð.“
Miklar áskoranir en líka bjartsýni
Ingvi er spurður hvaða augum hann
líti stöðu svínaræktar á Íslandi í dag
og hverjar hann telji vera helstu
áskoranir.
„Maður fer ekki af stað í
svona verkefni nema að hafa trú á
framtíðinni í greininni,“ segir hann
og heldur áfram: „Helsta áskorunin
er nú sennilega sú að vera í síaukinni
samkeppni við kollegana erlendis
sem fá talsverðan afslátt af kröfum
er snúa að dýravelferð og nota
margfalt meira magn af sýklalyfjum
en við gerum í okkar búskap. Svo er
nú vaxtastigið ekki heldur að hjálpa
okkur þessi misserin. Einnig er maður
alltaf hræddur við pólitíkina, við erum
að stunda það sem ESB skilgreinir
sem heimskautalandbúnað. Það
ásamt miklum kaupmætti þýðir að
landbúnaður á Íslandi verður ekki
stundaður án þokkalega skilvirkrar
tollverndar.
Á móti kemur að við höfum hreina
vatnið og ódýra og endurnýjanlega
orku, ásamt gnægð landrýmis. Þetta
tel ég að muni hjálpa okkur meira á
næstu áratugum en við gerum okkur
grein fyrir í dag,“ segir Ingvi að
endingu. /sá
FRÉTTIR
ZipWake
stöðugleikabúnaður fyrir báta.
Báturinn verður fljótari á plan,
stöðugri á ferð og sparar eldsneyti.
Svansson ehf, Melabraut 19, 220 Hafnarfjörður
Sími 697 4900, Netfang : sala@svansson.is
Ístex:
Námskeið í rúningi
og ullarflokkun
ÍSTEX stendur fyrir tveimur
námskeiðum í rúningi og
kynningu á ullarflokkun nú í
byrjun nóvember. Tilgangurinn
er að auka almenna fagmennsku í
rúningi og meðhöndlun ullarinnar.
Sigurður Sævar Gunnarsson,
framkvæmdastjóri ÍSTEX, segir að
rétt vinnubrögð skipti miklu máli
varðandi rúning og frágang á ull.
„Til dæmis er mjög mikilvægt að
fá ekki tvíklippur eða óhreinindi í
ullina. Þá er mikilvægt að þetta sé
sem auðveldast fyrir bæði kindina
og rúningsmanninn. En oft fer þetta
mjög vel saman.“
Það er skoski rúningskennarinn
Robbie Hislop sem kemur
aftur til landsins og mun stýra
námskeiðunum sem verða haldin
annars vegar 1.–3. nóvember í
Mýrdal, Kolbeinsstaðahreppi,
og hins vegar 5.–7. nóvember á
Hákonarstöðum, Jökuldal. Hislop
hélt vel sótt námskeið í vor, en
hann er kunnur rúningskennari og
sauðfjárbóndi í Skotlandi.
Sigurður segir að samhliða
rúningsnámskeiðinu verði boðið
upp á kynningu á ullarflokkun á
vegum starfsmanna ÍSTEX. Hann
segir að hafa þurfi allnokkra hluti í
huga til að hámarka gæði ullarinnar
og frágangsins. „Ull tekur fljótt
í sig óhreinindi eftir að sauðfé er
tekið á hús. Þess vegna skiptir máli
að komast í rúning sem allra fyrst.
Vöntun á reyndum rúningsmönnum
hjálpar því ekki til við að auka gæði á
ull. Góð ull er lykilatriði fyrir ÍSTEX.
Að sögn Sigurðar hefur Unnsteinn
Snorri Snorrason, á Syðstu-Fossum
í Borgarfirði, verið aðalhvatamaður
að því að fá Hislop til landsins.
„Það eru ansi margir íslenskir
bændur og áhugafólk um íslenska
ull sem fylgjast með honum á
samfélagsmiðlum. Þetta var klárlega
til gagns og gamans fyrir þá sem tóku
þátt í vor.“
Eykur þekkingu og tengsl
„Þetta er skemmtilegt verkefni
sem margir bændur hafa áhuga
á. Einnig er skortur á reyndum
rúningsmönnum víða um land og
ákveðin kynslóðaskipti virðast
vera að eiga sér stað. Við vildum
því halda áfram að styðja svona og
gera meira úr þessu, til dæmis með
ullarflokkunina.
Von okkar er að þessi rúnings-
námskeið auki ekki aðeins þekkingu
og skilning í greininni, en einnig
tengsl á milli fólks. Þannig geta góðir
siðir og reynsla dreifst sem víðast á
sem skemmstum tíma. Jafnframt
hvetjum við sauðfjárbændur með
góðar hugmyndir í heimahéraði um
að auka veg og gæði ullar að hika ekki
við að hafa samband. Svoleiðis gerast
oft góðir hlutir,“ segir Sigurður enn
fremur. /smh
Námskeiðunum er ætlað að auka fagmennsku í rúningi og meðhöndlun
ullarinnar. Mynd / ghp
Svínarækt:
Fyrstu gylturnar inn næsta vor
Selma Dröfn Brynjarsdóttir og Ingvi Stefánsson standa að uppbyggingu hins stóra Sölvastaðabús sem mun hýsa
um 400 gyltur og grísi þeirra á komandi árum. Aðbúnaður dýra og manna mun verða til fyrirmyndar. Myndir / SÁ
Sölvastaðasvínabúið risið. Stefnt er á að taka húsið í notkun næsta vor.
Dyrhólaey:
Gjaldtaka hefst á bílastæðum
Gjaldskráin frá 1. september 2024
a) Fólksbifreið með allt að 5 sætum kr. 750
b) Fólksbifreið með 6 til 9 sætum kr. 1.000
c) Rútur með 10 til 18 sætum kr. 2.000
d) Rútur með 19 til 32 sætum kr. 4.000
e) Rútur með 33 til 64 sætum kr. 7.500
f ) Bifhjól kr. 300