Bændablaðið - 02.11.2023, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Mér líður satt að segja hálf
hjárænulega að setjast við skriftir
um þrasið og ósættið sem ríkir um
íslenskan sjávarútveg, mitt í því
ástandi að stríðsátök í heiminum
lita allar fréttir.
Þrát t fyr i r
h ö r m u n g a r
tveggja heims-
styrjalda og stór-
stríða hist og
her undanfarna
áratugi virðist
mannskepnan
ekki læra eitt
né neitt af
reynslunni. Fórnar mannslífum
eins og ekkert sé sjálfsagðara. Ef ég
man rétt lét Einstein það út úr sér að
tvennt í heimi hér væri óendanlegt:
alheimurinn og heimska manna.
Hann efaðist þó um hið fyrrnefnda.
Ég fæddist 10 árum eftir síðari
heimsstyrjöldina og alinn upp við
að „Ísland væri fjarri heimsins
vígaslóð“. Á unga aldri fannst mér
þetta ekki passa því mér var og er í
fersku minni lýsing móður minnar
heitinnar af skelfingunni sem greip
hana við að verða vitni að því sem lítil
stúlka í Glerárþorpinu við Akureyri
að sjá þýskar herflugvélar nasista
fljúga lágflug inn Eyjafjörðinn.
Móðir mín losnaði aldrei við þessa
hræðilegu upplifun.
Ísland var og er ekki svo fjarri
„heimsins vígaslóð“. Stórveldin
líta vafalaust svo á að um sé að
ræða 100 þúsund ferkílómetra
ósökkvandi flugmóðurskip og
eftirsóknarvert sem slíkt undir
„réttum“ kringumstæðum. Dagar
bernsku minnar eru liðnir. Dagar
sem ég svo sannarlega óskaði dóttur
minni og fóstursonum. Dagar friðar
og sátta.
Ísland ræður yfir 0,16%
af yfirborði jarðar
Á litla Íslandi ríkir enginn friður
né sátt. Þó svo ekki sé um blóðug
átök að ræða er ósætti, togstreita
og skautuð orðræða daglegt brauð.
Við búum, eins og áður sagði, á
100 þúsund ferkílómetra eyju með
tæplega 740 þúsund ferkílómetra
efnahagslögsögu. Samtals um 840
þúsund ferkílómetrar. Jörðin er
rúmlega 510 milljónir ferkílómetra,
þar af er þurrlendi tæplega 130
milljónir ferkílómetrar. Semsagt:
Ísland ræður yfir um það bil 0,16%
af yfirborði jarðar en Íslendingar eru
einungis 0,05% hluti mannkynsins.
Það er með ólíkindum að ekki
ríki sátt um nýtingu þeirrar auðlindar
sem skapaði þá velferð sem við
búum við.
Hinn 21. október sl. var boðið upp á
fyrirlestur á Háskólatorgi þar sem
Gary Libercap, prófessor í auðlinda-
hagfræði við Kaliforníuháskóla
Santa Barbara. Hann hefur
sérhæft sig í auðlindahagfræði
og flutti erindi undir
fyrirsögninni „Mikilvægi eignar-
réttinda í fiskveiðum og áskoranir“.
Ég mætti fullur vonar um að heyra
eitthvað nýtt – annað en síbylju
íslenskra hagfræðinga / stjórnmála-
fræðiprófessora í gegnum árin. Sú
von varð að engu.
Að loknu erindi dr. Libercap
var gefinn kostur á spurningum. Ég
ákvað að spyrja prófessorinn þriggja
spurninga:
1. Er það ekki grundvallaratriði við
lögleiðingu fiskveiðikerfis, hvernig
svo sem því er háttað, að það stuðli
að verndun og uppbyggingu þeirra
fiskistofna sem um ræðir?
2. Hvaða stofnar í íslenska
fiskveiðikerfinu sýna merki þess
að vel hafi til tekist?
3. Þarf ekki að huga að því strax
í upphafi hversu auðvelt/erfitt
er fyrir stjórnvöld að hverfa frá
viðkomandi kerfi, reynist það ekki
ná upphaflegum markmiðum?
Skemmst er frá því að segja að
ég fékk ekki svar við þessum
spurningum. Í mínum huga snýst
þetta um fyrstu spurninguna og
hvernig til hafi tekist. Kvótakerfið var
hálfa leið til öndvegis í febrúar 1984
og nánast að fullu árið 1990. Því er
löngu tímabært að skoða árangurinn.
Svartar skýrslur Hafró og
skilyrðislausar kröfur stofnunarinnar
um hlýðni við kröfum hennar voru
lagðar til grundvallar árið 1984.
Þetta er árangurinn frá upphafsári
kvótakerfisins:
• Langlúra: Veiðin hefur dregist
saman um meira en helming.
• Stofnstærðarmat sandkola hefur
dregist saman um 95% síðan
2003/2004.
• Stofnstærðarmat skrápflúru
dróst saman um 95% á fimm
fiskveiðiárum frá 2004/2005 til
2009/2010.
• Ráðlagður afli í löngu hefur
dregist saman um rúm 60% síðan
2015/2016.
• Ráðgjöf í blálöngu hefur dregist
saman yfir 90% síðan 2011/2012.
• Ráðgjöf í steinbít hefur dregist
saman um 40% síðan 2003/2004
• Veiðiráðgjöf í keilu hefur dregist
saman um 70% síðan 2011/2012
• Veiðiráðgjöf í skötusel hefur
minnkað um tæp 85% síðan
2011/2012.
• Veiðiráðgjöf í úthafsrækju er innan
við 10% af því sem áður var.
• Veiðiráðgjöf í gullkarfa á
Íslandsmiðum minnkaði um 45%
síðan 2013/2014.
• Þá leggur Hafró til veiðibann á
humri. 2009/2010 var veiðin 2.200
tonn.
• Veiðiráðgjöf í djúpkarfa hefur
dregist saman um meira en helming
síðan fiskveiðiárið 2018/2019.
Ég hef áður birt á þessum vettvangi
töflu um árangurinn varðandi þá
nytjastofna sem rötuðu inn í fyrstu
reglugerðina árið 1984. Í framhaldi af
framangreindri upptalningu er rökrétt
að birta nýtt súlurit sem sýnir þennan
glæsilega árangur. Eða hitt þó heldur.
Kvótakerfið heldur upp á 40 ára
afmæli á næsta ári og barátta
smábátaeigenda gegn ofríki
stjórnvalda og ónefndra hagsmuna-
aðila upp á 39 ára afmæli. Dettur
þessum aðilum aldrei í hug að semja
um frið og sátt?
Þessu tengt birti ég hér minnisblað
að loknum fundi Landssambands
smábátaeigenda, Strandveiðifélags
Íslands og Samtaka fiskframleiðenda
og útflytjenda með forsætisráðherra,
Katrínu Jakobsdóttur, hinn 14. ágúst
síðastliðinn:
• Í áliti Mannréttindanefndar
Sameinuðu þjóðanna hinn 24.
október 2007 segir að íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfið brjóti á
jafnræði/mannréttindum borgaranna
um atvinnufrelsi og rétt til að velja sér
búsetu. Viðbrögð stjórnvalda voru
að heita allsherjarskoðun á íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfinu í náinni
framtíð með breytingar í huga þannig
að komið verði til móts við kröfur
mannréttindanefndarinnar, eftir því
sem unnt væri.
• Strandveiðikerfið er ekki afrakstur
af allsherjarskoðun á íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfinu. Hins vegar
geta stjórnvöld sagt það vera svar við
áliti mannréttindanefndarinnar.
• Strandveiðikerfið er eini gluggi
almennings (ásamt grásleppu-
veiðum) inn í fiskveiðarnar. Þetta
eru sóknarmarkskerfi og passa því
engan veginn inn í aflamarkskerfi.
Fyrsta grein laga um stjórn fiskveiða
kveður skýrt á um að nytjastofnar á
Íslandsmiðum eru sameign íslensku
þjóðarinnar.
• Rýmið sem þessar veiðar
þurfa eiga að vera forgangsmál
í upphafi hvers fiskveiðiárs en
ekki afgangsstærð eins og raunin
hefur verið allt frá upphafsári
strandveiðikerfisins 2009.
Rökin fyrir eflingu strandveiða:
• Umhverfisrök: Strandveiðar
eru umhverfisvænustu veiðarnar,
hvort sem litið er til kolefnisspors,
röskunar á lífríki sjávar, meðafla eða
plastmengunar.
• Gæðarök: Afli strandveiða er
fyrsta flokks vara sem er eftirsótt á
dýrustu ferskfiskmörkuðum heims,
enda er söluverð á strandveiðifiski
umtalsvert hærra en skuttogarafiski.
• Byggðarök: Strandveiðar eru
mikilvægur liður í því styrkja
brothættar byggðir og glæða
sjávarpláss nýju lífi. Kosturinn
við strandveiðar er að þær eru
alfarið sjálfsprottin grasrótarlausn
á byggðavandanum. Þær eru að
auki algjörlega sjálfbær liður í
því að styrkja brothættar byggðir.
Þeim fylgir enginn kostnaður fyrir
skattgreiðendur.
• Sjálfstæðisrök: Strandveiðar
opna dyr fyrir þá sem vilja stunda
sjósókn óháð ákvarðanatöku
stórútgerðarinnar, enda er
kerfið sprottið af úrskurði
mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna um rétt til atvinnufrelsis
og rétt til að velja sér búsetu.
Strandveiðar njóta mikillar
velvildar meðal þjóðarinnar.
Samkvæmt skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands vilja 72,3% Íslendinga að
hærra hlutfall aflaheimilda renni til
strandveiða.
Aflamark hvers árs miðast við
vísindalega ráðgjöf. Mikil vantrú
ríkir meðal sjómanna á ráðgjöf Hafró.
Það er tvennt ólíkt að hafa hana til
hliðsjónar eða sem trúarbrögð:
• Í greinargerð Jóhanns
Sigurjónssonar frá október 2022
um haf- og fiskirannsóknir segir
orðrétt: „Við endurskoðun aflareglu
fyrir þorsk hefur ítrekað fengist
sama niðurstaða um að 20–22%
veiðihlutfall sé skynsamlegt markmið
og tryggi sjálfbærni veiðanna.“ 20%
talan er því ekki heilög og hafa
má í huga að strandveiðiafli hefur
að jafnaði verið innan við 1% af
útreiknuðum veiðistofni þorsks.
• Minna má á, að hér var notuð
aflaregla upp á 25% frá 1995-2005 en
hún síðan lækkuð og frá 2007 hefur
verið notuð 20% aflaregla. Veiðiárin
2004/2005 var ráðgjöfin 205 þús.
tonn af þorski en nú (2022/2023) 18
árum síðar er hún 208.846 tonn. Þetta
þýðir að breytileiki í aflareglu hefur
ekki breytt neinu í „uppbyggingu“
þorskstofnsins.
• Það er grundvallaratriði að
staðið verið við það lagaákvæði
um „að hverju skipi sé heimilt að
stunda strandveiðar í 12 veiðidaga
á mánuði mánuðina maí, júní,
júlí og ágúst.“ Það verður aldrei
hægt meðan strandveiðarnar eru
tengdar kvótakerfinu með tilteknu
aflahámarki. Það er raunar í mótsögn
við rökhugsun og fer einnig gegn áliti
mannréttindanefndar SÞ frá 2007 um
framkvæmd kvótakerfisins.
Allt að 5 ára tilraun um
framkvæmd strandveiða
Þeirri hugmynd var varpað fram á
fundinum með forsætisráðherra að
gera 3-5 ára tilraun með að leyfa 4
x 12 veiðidaga á strandveiðum (skv.
lögum) án þess að setja upp tiltekið
heildaraflamark á þær og skoða síðan
reynsluna að því er varðar þróun
þorskstofnsins, fjölda báta sem og
byggðapólitíska þróun.
Rökin fyrir þessari hugmynd eru
eftirfarandi:
1. Með þessu fyrirkomulagi hyrfi öll
keppni milli svæða, staða og útgerða
úr strandveiðikerfinu. Öryggið væri
í fyrirrúmi.
2. Ef strandveiðiafli er tekinn út úr
aflamarkskerfinu yrði svokallaður
5,3% pottur minnkaður niður í ca
3% ef menn vilja halda því sem þar
er að finna að óbreyttu (línuívilnun,
byggðakvóti, tómstundaveiðar o. fl.).
Strandveiðiafli væri því ekki „tekinn
af“ neinum „kvótaeigendum“
og togstreita milli þeirra og
strandveiðiútgerða myndi hverfa.
3. Með því að skilja að
aflamarkskerfið og sóknarkerfi
strandveiða væri verið að fara til fulls
eftir úrskurði mannréttindanefndar
SÞ frá 2007. Trúlega myndi ekkert
stuðla að meiri sátt í stéttinni þótt
fleira þurfi væntanlega að koma til
að ná sátt við þjóðina.
4. Fullkominn fyrirsjáanleiki yrði
fyrir alla aðila sem hagsmuna eiga að
gæta; sjómenn, fiskkaupendur, fjölda
landfyrirtækja og sveitarfélaga/
hafna að ekki sé talað um þá sem
flytja ferskan fisk á erlenda markaði.
5. Samkvæmt fv. forstjóra Hafró
getur sk. aflaregla verið 20-22% án
þess að það hafi nein áhrif á þróun
stofnsins. Í þessari tilraun væri
aflaregla upp á 20% áfram í gildi
en strandveiðiafli sem hingað til
hefur verið að jafnaði verið innan
við 1% af útreiknuðum þorskstofni
myndi hugsanlega fara í 1-1,5% af
veiðistofninum en vera samt innan
þess ramma sem ekki er talinn valda
neikvæðum áhrifum á þróun hans.
6. Í ljós kæmi hvort um „stjórnlausa“
fjölgun báta yrði að ræða á
tímabilinu. Hafa verður í huga að
nánast allir sem stunda strandveiðar
eru virkir atvinnusjómenn eða menn
sem hafa mismikla reynslu af
fiskveiðum. Þeir fáu sem ekki fylla
þennan hóp eru oftast fyrrverandi
og/eða eldri sjómenn með mismikla
og misgamla reynslu af fiskveiðum.
Hér verður að hafa í huga að fyrir
um aldarþriðjungi voru fiskveiði-
sjómenn hér á landi rúmlega 6.000
en eru nú um 2.500. Það fækkar
því ört í „heldri manna“ hópi
strandveiðimanna.
Aflabrögð á strandveiðum fara fyrst
og fremst eftir veðri og fiskimagni
á miðunum. Breytilegur afli allt í
kringum landið yrði því mikilvæg
viðbót við rannsóknargögn sem
vísindamenn fengju þá aðgengi að.
Svo mörg voru þau orð.
Svo er að sjá hvernig stjórnvöld
bregðast við. Boltinn er þeirra megin.
Arthur Bogason,
formaður Landssambands
smábátaeigenda.
NYTJAR HAFSINS
Kjötvinnsluvélar til sölu
Við hjá Multivac erum með notaðar
kjötvinnsluvélar til sölu,
hakkavélar, kjötsagir - snitzelvélar
– farsvél og filmupökkunarvélar.
Allar nánari upplýsingar má finna
á Facebook síðu okkar:
www.facebook.com/MULTIVACISLAND
Einnig má senda fyrirspurn á
netfangið sala@is.multivac.com
Arthur Bogason.
Hinn glæsilegi árangur