Bændablaðið - 02.11.2023, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
FRÉTTASKÝRING
Ég skil því að margir kalli eftir
því að einfaldlega fækka fuglum
innan þessara stofna en ég tel að
málið sé hreinlega ekki svo einfalt og
rannsóknir hafa bent til þess að slíkt
gæti haft þveröfug áhrif og aukið
orkuþörf fuglanna þ.e.a.s. að þeir
færi sig meira á milli svæða og þurfi
því að éta meira. Sömuleiðis eykst
streita hjá þeim og minni tími gefst í
fæðuinntöku og þá þurfa fuglarnir að
verja lengri tíma á ræktarlandi,“ segir
Hafrún Gunnarsdóttir, sem starfar
sem líffræðingur hjá Náttúrustofu
Vesturlands.
„Þéttleikaháð áhrif geta valdið
því að veiðar hafi lítil áhrif á
stofninn í heild sinni og í sumum
tilfellum jafnvel fjölgað fuglum.
Það getur t.d. virkað þannig að við
fækkun batni afkoma eftirlifandi
fugla og þeir framleiði fleiri unga
Annar möguleiki er að óskipulögð
fækkun innan stofna fækki fuglum
um of og minnki fjölbreytileika
innan stofnanna, sem getur skaðað
þá til framtíðar.
Það er því ljóst að ef fækka á
gæsum og álftum hérlendis með
veiðum þarf að móta vöktun í
kringum verkefnið, sem grundvallast
á því að viðhalda ákveðnum fjölda
fugla þannig að lífvænleika stofnanna
sé viðhaldið en skaðsemi af hálfu
fuglanna verði ásættanleg. Slíka
vöktun þarf að móta á vísindalegum
grunni sem byggist á gögnum sem
ná yfir grunnupplýsingar stofnana
svo sem fjölda fugla, aldursdreifingu
innan stofna, stofnsveiflur, dreifingu
fugla um landið, farleiðir yfir
landamæri og því þarf að auka
samstarf við önnur lönd en ekki síst
þurfum við að skilja sambandið á
milli fjölda fugla og umfangs tjónsins
sem þeir valda,“ segir Hafrún.
Því sé ljóst að aðgerðir sem miða
að því að fækka fuglum með veiðum
yrðu alltaf mjög kostnaðarsamar.
Tækniframfarir gætu
hjálpað við fælingar
Hafrún bendir á að tjón af völdum
fugla sé miklu frekar fólgið í hegðun
þeirra heldur en fjölda. Þannig
valdi grágæs töluvert meira tjóni
en heiðagæs, þrátt fyrir að stofninn
sé miklu minni. Ástæðan er að
grágæsir kjósa að dvelja á láglendi
en heiðagæsir halda sig á hálendinu
á varptíma.
Í grein Hafrúnar, Róberts og
Menju er lögð áhersla á að fara aðrar
leiðir en að grípa til stórfelldra veiða
til að fækka gæsum, annars vegar
með því að nota einhvers konar
fælingaraðferðir og hins vegar
að beita atferlisvistfræðilegum
nálgunum.
Fæling snýst um að valda fuglum
óþægindum eða hræðslu svo þeir
forðist ákveðin svæði. Hafrún
nefnir nokkur dæmi: „Þær geta verið
sjónrænar, svo sem fuglahræður,
flugdrekar, borðar sem endurkasta
ljósi eða annars konar eftirlíkingar
af rándýrum. Hljóðrænar fælur hafa
verið notaðar á flugvöllum en ég veit
ekki til þess að slíkt sé mikið notað
á ræktarlöndum. Þetta geta verið
gasbyssur sem framleiða háværa
hvelli, stundum eru neyðarköll
fugla spiluð til að vekja óttaviðbrögð
hjá fuglum. Svo eru sumir fuglar
næmir fyrir hátíðnihljóðum, sem
geta valdið forðun en í tilfelli álfta
og gæsa er óvíst hvort slíkar fælur
komi að gagni. Hundar, ekki síst
smalahundar, hafa reynst vel til þess
að fæla fugla af ræktarlandi en hins
vegar er það ekki á allra færi að ala
upp hund og ljóst er að töluverður
tími fer í þjálfun þeirra, auk þess
sem finna þarf leiðir til að hundarnir
traðki sem minnst á uppskerunni, þar
sem það á við.“
Þá telur Hafrún líklegt að drónar
gætu spilað stærri þátt í framtíðinni
við fælingu fugla. „Fyrirtækið The
Drone Bird Company hefur þróað
sérstaka dróna sem ætlaðir eru til þess
að verjast tjóni vegna ágangs fugla.
Drónarnir þeirra líkjast ránfugli á
flugi sem hægt er að nota án mikillar
fyrirhafnar með sjálfstýringu.“
Fælingaraðferðir hafa verið
gagnrýndar fyrir að virka aðeins í
skamman tíma, enda hafa álftir og
gæsir töluverða vitsmunalega getu til
að þekkja og læra á umhverfið sitt.
Þess vegna segir Hafrún mikilvægt
að blanda saman ólíkum fælum til að
viðhalda forðun hjá fuglum. Einnig
geti verið gott að færa kyrrstæðar
fælur reglulega úr stað til að koma
fuglunum á óvart og tryggja að
fælingarátakið sé sem öflugast þegar
gróður er á viðkvæmu vaxtarstigi.
Atferlisvistfræðilegar nálganir
Skilningur á atferli álfta og gæsa er
grundvallarforsenda þess að hægt
verði að stemma stigu við tjóni af
þeirra völdum. Tjón virðist oft vera
fremur staðbundið, þ.e.a.s. sumir
bændur verða endurtekið fyrir miklu
tjóni á meðan aðrir verða ekki varir
við fuglana.
„Ég tel að þetta geti verið vegna
þess að gæsir og álftir velji alltaf
hagstæðasta dvalarstaðinn hverju
sinni. Slíkir staðir eru oft í nálægð
við vötn eða votlendi, henta vel
til flugtaks og lendingar, hafa gott
útsýni og hætta á afráni er lítil. Því
má gera ráð fyrir að þótt fuglum
verði fækkað með veiðum, sé ekki
víst að það muni hafa áhrif á tjón
á svæðum sem myndu teljast til
hagstæðra fuglasvæða, því álftir
og gæsir munu jú halda áfram að
sækjast í slík svæði,“ segir Hafrún
og bendir á að kannski sé mögulegt
að hagnýta þá þekkingu og breyta
svæðunum þannig að þau verði
minna aðlaðandi fyrir fugla. Jafnvel
með því að planta skjólbeltum sem
bæði skerða útsýni og draga úr
hentugleika til lendingar og flugtaks.
Hún segir að víða erlendis
hafi verið brugðið á það ráð að
útbúa sérstaka fuglabeitarakra þar
sem fuglar fá að dvelja óáreittir
og uppfylla orkuþörf sína. „Á
Norðurlöndunum hafa bændur fengið
sérstaklega greitt fyrir að útbúa og
viðhalda slíkum ökrum. Það getur
verið hagkvæmt að nota fælingu og
fuglabeitarakra sem sameiginlegt
úrræði þannig að hægt sé að fæla
fugla frá einum stað og laða þá að
öðrum. Rannsóknir benda til þess að
ef rétt er að þessu staðið megi draga
umtalsvert úr tjóni. Hins vegar gefur
augaleið að notkun fuglabeitarakra
kostar mun meira land heldur en ella
og því þarf að vega og meta hverju
sinni hvort réttlætanlegt sé að eyða
náttúrulegum heimkynnum annarra
dýra til að laða að álftir og gæsir.
Mögulega er einnig hægt að nýta
ræktarland sem nú þegar er búið að
uppskera, enda sækja gæsir og álftir
gjarnan í slíkt land þar sem mikið
af korni fellur til við uppskeru og
verður því auðveldlega aðgengilegt.
Seinkun á plægingu akra getur
því þjónað svipuðum tilgangi og
fuglabeitarakrar ef gæsir og álftir fá
að dvelja þar óáreittar og fita sig upp
fyrir far eða vetrardvöl á Íslandi,“
segir Hafrún.
Aukin þekking nauðsynleg fyrir
árangursríkar ákvarðanir
Ágangur og tjón af völdum álfta
og gæsa er flókið viðfangsefni sem
krefst rannsókna, ítarlegs samráðs,
stefnumótunar og áætlanagerðar. Ef
ráðast á í það verkefni að lágmarka
tjón af völdum ágangs þarf bæði
að greina umfang vandans og auka
skilning á honum. Í niðurstöðu
greinar Náttúrustofu Vesturlands er
lögð áhersla á að rannsóknaraðilar
og bændur efli samstarf sín á milli.
„Þetta er mikilvægt vegna þess
að veiðar á innlendum dýrum til
að verjast tjóni ættu alltaf að vera
þrautaráð og ættu ekki einungis
að ráðast af efnahagslegum
sjónarmiðum. Allar aðgerðir sem
beinast að villtum dýrum þurfa
einnig að taka mið af líffræðilegri
fjölbreytni, vistfræðilegum áhrifum
og dýravelferðarsjónarmiðum.
Einnig er Ísland aðili að
alþjóðasáttmálum um náttúruvernd,
þar á meðal Bernarsamningnum
um verndun villtra dýra og
plantna og því ber okkur skylda
til að vernda þær tegundir sem
falla þar undir. Nauðsynlegt er
að fá ólíka aðila að borðinu, svo
sem bændur, rannsóknaraðila,
náttúruverndarsinna og stjórnvöld,
til að móta saman stefnu sem byggð
er á þekkingu. Því burtséð frá því
hvar hver og einn stendur í garð
náttúruverndar, hlýtur sameiginlegt
markmið okkar að miðast við að
auka þekkingu svo hægt sé að taka
upplýstar ákvarðanir sem skila
árangri,“ segir Hafrún Gunnarsdóttir.
Hafrún Gunnarsdóttir.
Fæling snýst um að valda fuglum óþægindum eða hræðslu svo þeir forðist ákveðin svæði. Fyrirtækið The Drone
Bird Company hefur þróað sérstaka dróna sem ætlaðir eru til þess að verjast tjóni vegna ágangs fugla. Drónarnir
líkjast ránfugli á flugi sem hægt er að nota með sjálfstýringu. Mynd / Drone Bird Company
Fyrirtækið Bird - X hefur þróað alls kyns fælingarlausnir, þar á meðal
leysigeisla og LED ljós eins og hér sést. Mynd / Bird-X
Þétt leikaháð
áhrif geta valdið
því að veiðar hafi lítil
áhrif á stofninn í heild
sinni og í sumum til-
fellum jafnvel fjölgað
fuglum ...“