Bændablaðið - 02.11.2023, Side 24

Bændablaðið - 02.11.2023, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023 Eitt öflugasta áhugaleikfélag landsins, Leikfélag Keflavíkur, setur nú upp hina víðfrægu Jólasögu Dickens, sem samin var árið 1842 af enska rithöfundinum Charles Dickens. Hann var afar vinsæll og afkasta- mikill rithöfundur, en eftir gott gengi þessarar frægu sögu tók hann þá ákvörðun að hann skyldi skrifa svo að segja eina jólasögu á ári það sem eftir væri ævinnar. Sagan fjallar, eins og flestir vita, um nirfilinn og fyrirtækjaeigandann hann Scrooge sem hefur ímugust á jólahaldi – og raunar öllu því sem felur í sér gleði eða fjárútlát þó hann eigi fleiri aura en hann kann að telja. Á jólanótt heimsækir hann draugur fyrrverandi sameiganda hans – sem segist hafa verið dæmdur til heljar eftir dauðann fyrir framkomu sína og hegðun í lifanda lífi. Flytur hann þær fréttir að Scrooge eigi von á heimsókn þriggja jólaanda sem munu reyna að leiða hann á betri vegu. Scrooge bregður við, en telur þetta hið mesta rugl. Það reynist ekki rétt og er hann leiddur í gegnum líf sitt, fortíð, framtíð og loks nútíð, sem verður til þess að hann ákveður að bæta ráð sitt, gera betur og létta öðrum lífið eins vel og hann kann. Leikfélag Keflavíkur hefur haft ærið gaman af að setja þessa sýningu upp, en að henni koma rúmlega 50 manns og líkt og alltaf er líf og fjör í mannskapnum. Þess má geta að af 24 manna leikhópi eru 16 börn en sýningin er sett upp í samstarfi við Regnbogaraddir, barnakór Keflavíkurkirkju, og í honum eru um það bil 25 börn á grunnskólaaldri. Um ræðir nútímauppfærslu af sögunni sem gerist í hvorki meira né minna en í Reykjanesbæ samtímans, en leikgerðin er skrifuð af þeim Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaugi Ómari Guðmundssyni. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og danshöfundur Sigríður Rut Ragnarsdóttir Ísfeld. Stefnt er á frumsýningu þann 10. nóvember í húsnæði félagsins að Vesturbraut 17 í Reykjanesbæ. Miða má nálgast á tix.is og miðaverð er 3.000 krónur. /SP Freyvangsleikhúsið í Eyjafirðinum er mörgum kunnugt, en undanfarið hafa þar staðið yfir æfingar á frumsamda verkinu Bangsímon og Gríslingur í jólasveinaleit, en höfundur er engin önnur en formaður leikfélagsins, hún Jóhanna Sigurbjörg Ingólfsdóttir. Leikhúsgestir fá að fylgja ferðalagi þeirra Bangsímons og Gríslings, sem Disney gerðu svo ódauðlega, en þessir ástsælu félagar eru komnir alla leið til Íslands. Ástæða þess er að þeir höfðu haft fregnir af því að hér væru heilir þrettán jólasveinar, í stað þess eina sem býr í Bandaríkjunum. Kynnast Bangsímon og Gríslingur klassísku íslensku verunum okkar sem allir þekkja – þá með talinn jólaköttinn – á leið sinni um fjöllin blá, en gengur ferðin upp og ofan eins og vænta má. Til viðbótar við að hafa samið verkið er leikstjórn einnig í höndum Jóhönnu. Er þetta í annað sinn sem hún leikstýrir barnaverki hjá Freyvangsleikhúsinu, fyrir jólin í fyrra. leikstýrði hún nefnilega verkinu um þá Karíus og Baktus. Miðasalan er þegar hafin á www.tix.is og í síma 857 5598 enda má enginn missa af þessu stórskemmtilega verki. Áætlaðar sýningar eru sex talsins, frá 17. nóvember til 3. desember og er miðaverð 2.500 krónur. Sýnt verður í Freyvangsleikhúsinu en þar má einnig kaupa sér eitthvað gott í munninn til að njóta meðan á sýningunni stendur. /SP Á döfinni ... MENNING Leikfélag Austur-Eyfellinga: Maður í mislitum sokkum Leikfélag Austur-Eyfellinga var stofnað 1970 og hefur á þessum áratugum sett upp klassísk stórverkefni á borð við Kardimommubæinn og Önnu í Stóruborg auk þess að sinna leiklistarkennslu. Nú í ár, um miðjan september, hóf leikfélagið æfingar á gamanleiknum Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund S. Backman. Um ræðir grátbroslegan farsa þar sem ekkjan Steindóra er í aðalhlutverki. Hún er búsett í blokk eldri borgara og lifir heldur tilbreytingarsnauðu lífi þar til dag einn að hún finnur ókunnan mann sitjandi í farþegasætinu í bílnum hennar. Sá er illa áttaður, þekkir hvorki nafn sitt né hvernig stendur á því að hann situr í bílnum – veit hvorki hvort hann er að koma eða fara. Steindóra ákveður í einhverju fáti að fara með hann heim til sín sem í kjölfarið veldur bæði alls kyns misskilningi og vandamálum, enda skilja nágrannar hennar og vinir ekkert í því hvaða (mögulega spennandi) maður þetta er og hvort megi bara hirða fólk upp af götunni sisvona? Býður þessi bráðfyndni farsi bæði upp á hlátur og grátur undir leikstjórn Gunnsteins Sigurðssonar, en áætlað er að frumsýna um miðjan nóvember í félags- heimilinu Heimalandi. /SP Leikfélag Keflavíkur: Jólasaga Dickens Æfingaferlið er skemmtilegt eins og sjá má hér bak við tjöldin en af 24 manna leikhópi eru 16 börn í sýningunni. Myndir / Aðsendar Á sviðinu standa þær stöllur Anna Margrét Aðalsteins- dóttir og Þórunn Ólafsdóttir.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.