Bændablaðið - 02.11.2023, Side 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Hestamenn rífa
upp stemninguna
Uppskeruhátíð hestamanna hefur
verið haldin árlega af Lands-
sambandi hestamannafélaga (LH)
og Félagi hrossabænda.
Þátttaka hefur verið dræm
síðastliðin ár en nú stendur til að
rífa upp stemninguna.
Til margra ára voru uppskeru
hátíðir hestamanna haldnar við góðar
undirtektir í glæsilegum veislusal
Hótel Broadway en eftir að staðnum
var breytt hefur uppskeruhátíðin
verið á hálfgerðum hrakhólum.
Til nokkurra ára var hátíðin haldin
í veislusal Gullhamra en ekki
hefur náðst að búa til sambærilega
stemningu þar líkt og áður var.
Á uppskeruhátíðum hafa hesta
menn komið saman og glaðst ásamt
því að þeir knapar og hrossaræktarbú
sem skarað hafa fram úr á árinu hafa
verið veittar viðurkenningar fyrir
glæstan árangur.
Skipulagning uppskeruhátíðar
hestamanna er hafin og fyrir
undirbúningsnefnd fer Edda Rún
Ragnarsdóttir, stjórnarmaður LH.
„Uppskeruhátíð hestamanna fer
fram 18. nóvember í Gamla bíói.
Snillingarnir Jógvan og Friðrik
Ómar munu veislustýra og þeir
hafa lofað að það verði mikið
hlegið. Ásamt því munum við bjóða
upp á þriggja rétta kvöldverð. Svo
mun Sigga Beinteins trylla lýðinn
ásamt DJ Atla sem skemmtir fram
á kvöld.“
Edda segir að stefnan sé að færa
hátíðina í nýjan búning en þó að
halda í gömlu góðu hefðirnar sem
hafa skapast. „Okkur langar að
koma uppskeruhátíð hestamanna á
þann stall sem áður var, það mun
örugglega taka smá tíma, en við
vonum innilega að hestamenn séu til
í þetta verkefni með okkur. Það væri
gaman að sameinast og gleðjast yfir
góðum árangri okkar hestamanna á
liðnu tímabili.“
Verðlaun hátíðarinnar í ár verða
stórglæsileg, sérhönnuð af Inga í
Sign. Miðaverði er stillt í hóf og er
miðasala hafin á lhhestar.is.
/þag
Edda Rún Ragnarsdóttir, sem situr í stjórn LH og tekur þátt í skipulagningu
Uppskeruhátíðarinnar, og með henni á myndinni er systir hennar, Jóna
Margrét Ragnarsdóttir. Mynd / Aðsend
Í DEIGLUNNI
Hrossarækt:
Stofnuðu sæðingastöð
um einn hest
Nú er farið að hausta og flestar
ræktunarhryssurnar komnar
aftur til síns heima. Víðs vegar um
land voru starfræktar sæðinga-
stöðvar og var ein slík í Hjarðar-
túni, þar sem sæðingastöð var
stofnuð fyrir einn hest.
Hrossaræktendur kannast flestir
við Sindra frá Hjarðartúni en hann
sló í gegn á síðasta Landsmóti þegar
hann hlaut hæstu hæfileikaeinkunn
sem gefin hefur verið íslenskum
hesti. Mikil aðsókn var í hestinn eftir
Landsmótið og tóku eigendur á það
ráð að vera með hestinn í sæðingum.
„Þó að allir hrossaræktendur
stefni leynt eða ljóst að því að rækta
falleg og hæfileikarík hross sem fara
í góðan dóm, er ekki víst að menn
átti sig á því hverjar afleiðingar geta
orðið að eiga Landsmótssigurvegara.
Eftir Landsmótið í fyrra opnuðust
tækifærisgluggar. Freistandi
fyrirspurnir bárust í hestinn bæði
innanlands en aðallega að utan.
Sindri var greinilega orðinn
verðmætur og spurning hvort selja
ætti hann hæstbjóðanda,“ segja
Kristín Heimisdóttir og Bjarni
Elvar Pjetursson, hrossaræktendur
í Hjarðartúni.
Annir í sæðingum
Kristín og Bjarni tóku þá ákvörðun
um að selja ekki hestinn. Sindri
hefði þá líklegast farið úr landi
og hugnaðist þeim það ekki. „Það
stendur vel að honum og okkar
skoðun er sú að hann eigi að þjóna
íslenskri ræktun. Við tókum því, án
mikillar umhugsunar, þá ákvörðun
að eiga hestinn áfram og hafa
hann heima í Hjarðartúni,“ segir
Kristín. Ljóst var að til að anna
mikilli eftirspurn þyrfti að sæða
við hestinum. Yfir 100 hryssur
fyljuðust við Sindra það árið en tók
hesturinn bæði á móti hryssum á
húsi, í sæðingum og síðan í hólfi.
„Álagið var gríðarlegt og segja
má að önnur starfsemi búsins hafi
verið í lágmarki á meðan.
Eftir síðasta sumar ákváðum
við að kynna okkur sæðingar betur
og heimsóttum hrossaræktendur
og dýralækna bæði innanlands og
utan til að sjá hvernig ná mætti
sem bestum árangri. Frændur vorir,
Danir, sem hafa náð mjög góðum
árangri í sæðingum íslenska hestsins
sem og Þjóðverjar, veittu okkur góð
ráð,“ segir Bjarni.
Í framhaldinu var ákveðið að fara
alla leið og setja á laggirnar löggilta
sæðingastöð í Hjarðartúni í samvinnu
við öflugt teymi dýralækna, þeirra
Charlottu Oddsdóttur, Huldu
Jónsdóttur, Helgu Gunnarsdóttur
og Tómasar Jónssonar.
„Charlotta er sérmenntuð í
frjósemi hryssna, Hulda er reynslu
mikil í sæðingum og sér um daglegar
sæðingar í Hjarðartúni, Helga er
tengiliður okkar á Norðurlandi og
sæðir með skömmtum sem sendir
eru þangað, og Tómas heldur svo
utan um reksturinn,“ segir Bjarni.
Útbúið var nýtt hesthús ásamt
gerði sem er eingöngu ætlað í
sæðingastarfsemina og sæðisvinnslu
herbergi innréttað.
Þannig næst að halda sæðinga
starfseminni algjörlega aðskilinni frá
annarri starfsemi hesthússins. „Við
vorum líka heppin að Anna Margrét
Geirsdóttir, sem hafði verið hjá okkur
í starfsnámi eftir annað árið á Hólum,
var áfram í Hjarðartúni og hélt utan
um sæðingastarfsemina.“
Vel í lagt
„Eins og flestar mæður hafa áttað sig
á, þá skiptir hryssuna miklu máli að
heilbrigði og rólegheit séu í fyrirrúmi
í öllu ferlinu,“ segir Kristín og bætir
Bjarni við; „það var kannski svolítið
vel í lagt að byggja sæðingastöð fyrir
einn stóðhest. Hugmyndin er að geta
verið með tvo stóðhesta í sæðingum
á stöðinni. Því var mikilvægt að fá
annan hest til að nýta teymið og
aðstöðuna.”
Fengu þau Seið frá Hólum til sín
en hann er hæst dæmdi stóðhesturinn
í ár með 8,83 í aðaleinkunn. „Árangur
sæðinga hefur verið framar vonum og
náðu þeir félagar, Sindri og Seiður, að
anna öllum þeim hryssum sem komu
á nýju sæðingastöðina í sumar. Þetta
er búið að vera ótrúlegt ævintýri sem
gaman hefur verið að taka þátt í,“
segja þau Kristín og Bjarni / hf
VARAHLUTIR Í
KERRUR
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
Bílabúðin
Stál og stansar
Útbúið var nýtt hesthús ásamt gerði sem er eingöngu ætlað í sæðinga-
starfsemina og sæðisvinnsluherbergi innréttað.
Bjarni Elvar Pjetursson og Kristín Heimisdóttir í Hjarðartúni halda í þá SIndra
frá Hjarðartúni og Seið frá Hólum. Myndir / Aðsend