Bændablaðið - 02.11.2023, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Stærsta karöfluupptökuvél
landsins stendur á hlaðinu á Þóru-
stöðum í Eyjafjarðarsveit. Hún
sparar mannafla og þar með launa-
kostnað en þrátt fyrir það er
reksturinn níðþungur.
Vélin er af gerðinni Grimme SE
150-60. „Við keyptum hana 2022
og erum því búin að nota hana í
tvö ár,“ segir Helgi Örlygsson,
kartöflubóndi að Þórustöðum, þar
sem lengi hefur verið einhver mesta
kartöfluframleiðsla landsins. „Hún
tekur upp tvær rásir, sem sagt tvöfalt
meira en gamla vélin gerði, og þar
af leiðandi erum við tvöfalt fljótari
með hvern hektara.“
Þetta mun vera stærsta vél af
þessari gerð hér á landi, að sögn
Helga. Margar Grimme-vélar séu
hér í notkun en þetta sé eina vélin
sem taki upp tvær rásir í einu. „Það
er einn að keyra og svo er einn og
upp í þrjá-fjóra á vélinni, það fer
náttúrlega eftir görðunum: í nýjum
görðum þurfum við fjóra,“ segir
hann og bætir við að í góðu landi
og veðri geti þau tekið upp undir
einn og hálfan til tvo ha á dag.
Vélarnar spara mannafla
Helgi útskýrir að það sem sé
frábrugðið í kartöfluupptöku með
stóru vélinni sé að kartöflurnar fari
upp í stórt síló og svo beint í kassa
á vagni. Þannig þurfi miklu sjaldnar
en ella að stoppa og losa vélina.
„Það er hagkvæmara að setja beint
á vagninn og þessi vél hjálpar okkur
mjög mikið og sparar mikla vinnu.
Tvö síðustu ár höfum við getað
minnkað launakostnað við upptöku
heilmikið,“ segir hann.
Vélin kostaði um 30 m.kr. plús
vsk. „Við keyptum þetta til að reyna
að ná böndum á launakostnað.
Það er eins með stafræna
flokkarann inni, sem flokkar
kartöflurnar eftir stærðum og útliti,
hann sparar helling í launakostnaði.
Þannig að sparnaður í launakostnaði
vegur upp á móti vöxtunum af
þessum tveimur vélum að verulegu
leyti.“ Vinnslan er í gömlu og
endurinnréttuðu fjósi og þar rúlla um
þvottatromlur, færibönd og flokkara
Gullauga, Rauðar, Premier, Milva,
Solist, Rósagull og Helga.
Juku við að hvatningu
stjórnvalda
Ekki er annar búskapur á
Þórustaðajörðinni þar sem búa þrjár
fjölskyldur. Auk Helga eru þar sonur
hans, Jón Helgi, og kona Jóns, Díana
Rós Þrastardóttir ásamt börnum
og Jón Kristjánsson og Tinna Ösp
Viðarsdóttir og börn.
Á jörðinni hafa verið ræktaðar
kartöflur í ríflega öld og var farið að
rækta þær til sölu á árabilinu 1950
til 1967. Þórustaðakartöflurnar eru
seldar á Norðurlandi, dreift gegnum
Samkaup og einnig seldar í Sölufélag
garðyrkjumanna. Þær dafna vel í
góðum jarðvegi sem hefur verið
haldið frjósömum með skiptirækt.
Helgi, sem tók við af föður
sínum og afa, hefur verið lengi í
kartöflunum, eða frá 1977, framan
af með konu sinni, Vigdísi E.
Helgadóttur, sem lést árið 2018.
Þórustaðir ehf. urðu til 2016 og þeir
Jón Helgi og Jón Kristjánsson komu
inn í reksturinn 2018.
Þau hafa árlega framleitt frá 200
upp í 500 tonn á 18-40 ha lands.
„Árið 2020 voru bændur hvattir
í búvörusamningum til að auka
grænmetisframleiðslu um 25%,“
segir Helgi og bætir við: „Við
fórum í það og tókum upp undir
100% aukningu og stuðningurinn
minnkaði! Við vorum í kringum
18–19 ha og fórum í 40. Það er engin
forsenda fyrir rekstri af þessu tagi í
dag, m.a. vegna þess að stjórnvöld
hafa ekki staðið við gefin loforð.“
Blikur á lofti í búskapnum
Þegar spurt er hvort Þórustaðafólkið
lifi af kartöfluræktinni hlær Helgi við,
kannski nokkuð kalt, og segist aldrei
hafa unnið eingöngu í kartöflum.
Þær hafi verið hálfgert hobbí.
Kannski sé landbúnaður almennt að
verða hobbí. „Það eru allavega ekki
laun í þessum búskap. Á þessu svæði
eru nokkur kartöflubú og á þeim
öllum eru bændur í aukastörfum
með kartöfluræktinni,“ segir Helgi,
sem sjálfur er framkvæmdastjóri
Kaffitárs á Akureyri.
Hann segir, líkt og svo margir
bændur í dag, að reksturinn sé afar
þungur. „Þetta er vinnufrek starfsemi
vegna þess að taka þarf upp allar
kartöflurnar á haustin á stuttum tíma.
Við vorum að borga eitt og hálft starf
en stöðugildin eru í raun fjögur. En í
dag höfum við ekki tök á að greiða
nein laun. Þó að vaxtakostnaðurinn
hjá okkur sé ekki sérlega hár þá
sjáum við fram á að við þurfum að
fara að fjárfesta meira en það er bara
ekki hægt eins og staðan er í dag.
Kostnaðarhækkanir á aðföngum
s.s. áburði, útsæði, eldsneyti og
varnarefnum hefur farið langt
umfram hækkanir á afurðaverði,
sem stýrt er af verslunum.“
Aðspurður hvernig honum lítist
á búskap í Eyjafirði um þessar
mundir svarar hann að bragði:
„Engan veginn. Vaxtaumhverfið er
náttúrlega fáránlegt. Þeir aðilar sem
voru búnir að byggja upp á annað
borð og höfðu litlar skuldir eiga
kannski möguleika.
VIÐTAL
Þórustaðir í Eyjafjarðarsveit:
Kartöfluverð þarf að hækka
– Íslenskir framleiðendur geta ekki keppt við innflutning og eru á fallanda fæti
Helgi Örlygsson tók við jörðinni Þórustöðum af föður sínum og afa og hefur stundað þar kartöflurækt nærfellt alla daga síðan ásamt fjölskyldu sinni
og fleirum. Búið er að reyna ýmislegt til að hagræða í búskapnum en Helgi er ekki bjartsýnn á stöðu mála í íslenskum landbúnaði. Myndir / SÁ.
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Hér gefur að líta stærstu kartöfluupptökuvél landsins sem tekur upp úr
tveimur rásum í einu og sparar bæði tíma og mannafla.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf