Bændablaðið - 02.11.2023, Síða 38
Í stjórn NorFor er einn
fulltrúi frá hverju landi
og sömuleiðis er hvert
land með ábyrgðarmann
fyrir rekstri, þróun og
þjónustu notendaumhverfis
hvers lands. Innan NorFor
vinnur einnig faghópur þar
sem fremstu vísindamenn
Norðurlandanna í fóðurfræði nautgripa vinna
saman að þróun kerfisins. Sömuleiðis er
þróunarteymi sem sér um framkvæmdahluta
þróunar kerfisins og innleiðingu á nýjungum.
Íslenskir útreikningar
NorFor reiknar orku- og próteinþarfir
gripa, áætlar gróffóðurát og reiknar hve
mikið kjarnfóður þarf til að uppfylla
næringarþarfir gripanna miðað við tiltekið
gróffóður. Fyrir mismunandi kúakyn eru
mismunandi átgetulíkön sem byggð eru á
rannsóknargögnum. Þegar reiknuð er áætlun
fyrir íslenskar kýr er notast við reiknilíkan
byggt á íslenskum gögnum fyrir átgetuna
sem skilar nákvæmum útreikningum fyrir
íslenska kúakynið.
Gott samstarf við fóðurfyrirtæki
Notagildi NorFor byggir á svokallaðri
fóðurtöflu sem inniheldur stöðluð fóðurgildi
á öllum helstu hráefnum sem notuð eru í
fóður nautgripa. Heyefnagreiningar eru
grunnurinn að fóðuráætlunum en einnig eru
upplýsingar um kjarnfóðurtegundir sem eru
á markaði, nauðsynlegar. RML hefur átt
mjög gott samstarf við íslensk fóðurfyrirtæki
og fengið uppskriftir kjarnfóðurtegunda og
valið réttar hrávörur til að reikna NorFor-
fóðurgildi fyrir kjarnfóðurtegundirnar. Þetta
góða samstarf hefur skilað mikilvægum
upplýsingum inn í NorFor og þar af leiðandi
gert fóðuráætlanagerðina nákvæmari og í
gæðaprófunum yfir Norðurlöndin hafa íslenskar
kjarnfóðurtegundir komið mjög vel út. Flest
fóðurfyrirtæki í landinu hafa einnig nýtt sér
NorFor í sinni fóðurráðgjöf og því snertir
NorFor mun fleiri bændur en bara þá sem fá
ráðgjöf frá RML, sem er virkilega ánægjulegt.
Fóðuráætlanagerð
Fóðuráætlanir byggja á heyefnagreiningum
hvers bús þar sem oftast er unnið eftir ákveðnu
meðaltali út frá sýnum og heyforða. Oftast er
ekkert svigrúm við val á heygerðum og þarf
oftast að nota allt hey sem er til á hverju
búi og því byggir áætlanagerðin frekar á
að velja heppilegt kjarnfóður til að gefa
með gróffóðrinu sem er til. Þegar áætlun er
reiknuð eru hafðar til hliðsjónar niðurstöður
tanksýna og afurðaskýrsluhald í Huppu. Út frá
heyefnagreiningunum eru reiknaðar kjarnfóður-
þarfir fyrsta kálfs kvígna annars vegar og
eldri kúa hins vegar, eftir fyrirfram ákveðnum
nytflokkum og stöðu á mjaltaskeiði. Einnig
er hægt að reikna áætlun út frá nýjustu
mjólkurskýrslu til að fá einstaklingsmiðaða
útreikninga en sú áætlanagerð krefst meiri
handstýringar á kjarnfóðurgjöfinni.
Gjafatækni
Sjálfvirkir kjarnfóðurbásar og mjaltaþjónar
verða stöðugt algengari í íslenskum fjósum en
þessi búnaður býður oftast upp á uppsetningu á
svokölluðum fóðurtöflum og með þeim er hægt
að færa áætlunina inn í kerfið og láta kerfið fóðra
eftir áætluninni. Með aukinni tæknivæðingu
getur þetta sparað kjarnfóður þar sem kerfið
minnkar og eykur sjálfkrafa kjarnfóðurgjöfina
eftir mjólkurframleiðslu hvers grips.
Umhverfismál
Líkur eru á því að NorFor muni í framtíðinni
gegna lykilhlutverki í útreikningum á kolefnis-
spori í tengslum við fóðrun. Hægt er að
reikna áætlaða metanlosun gripanna út frá
hvaða gróffóður og kjarnfóður þeir éta og er
hægt að reikna fóðuráætlun út frá minnkaðri
losun gróðurhúsalofttegunda. Sömuleiðis
er nýlega búið að innleiða reikniformúlur
sem áætla minni losun á metani við notkun
íblöndunarefnanna Bovaer® og nítrats. Þar
sem útskolun köfnunarefnis er vandamál er
nauðsynlegt að reikna réttar próteinþarfir
til að hámarka afurðir án þess að offóðra á
próteini og tapa þá of miklu köfnunarefni
með saur og þvagi.
RML
RML býður upp á faglega og óháða
fóðurráðgjöf byggða á NorFor-útreikningum
og afurðaskýrsluhaldinu í Huppu. Hjá RML
starfa tveir fóðurfræðingar, undirritaður og
Ditte Clausen, með mikla faglega þekkingu
að auki er mikil reynsla í fóðurráðgjöf
hjá fleiri starfsmönnum. Það hefur aukist
hjá RML að útvíkka ráðgjöfina og tengja
við fleiri þætti svo sem tækni, rekstur og
jarðrækt. Má nefna að í sumar var boðið
upp á nýjan ráðgjafarpakka sem kallaður
var Sproti+ en þar kemur saman jarðrækt
og fóðrun í heildrænni ráðgjöf, sem skilar
af sér fóðuráætlun og áburðaráætlun ásamt
sýnatökum og heimsóknum. Stabbi og Stæða
eru síðan sjálfstæðir fóðurráðgjafarpakkar
sem RML hefur boðið upp á lengi.
Höfundur er ráðunautur hjá RML.
NorFor er samnorrænt fóðurmatskerfi fyrir nautgripi sem Danmörk, Noregur, Svíþjóð
og Ísland standa að baki. Samstarfið hófst árið 2002 en NorFor var síðan tekið í notkun
árið 2006. Kerfið byggir á rannsóknargögnum frá Norðurlöndunum. Bændasamtök
Íslands höfðu umsjón með hlut Íslands í samstarfinu en svo hefur Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML) gert frá því það tók við því hlutverki við stofnun hennar árið 2013.
NorFor og fóðuráætlanagerð á Íslandi
Baldur Örn
Samúelsson.
Eldri kýr.
Fyrsta kálfs kvígur. Mynd 1. Dæmi um kjarnfóðurtöflu eftir nyt, við birtum áætlaða metanlosun með
öllum áætlunum.
Mynd 2 Myndræn framsetning á ferlum fóðurmatskerfisins NorFor.
EEfni blaðsins gefur innsýn í brot
af fjölbreyttri starfsemi RML en í
leiðinni erum við einnig að minna á
afmælisráðstefnu sem verður haldin á Hótel
Selfossi þann 23. nóvember næstkomandi.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Áskoranir og
tækifæri í landbúnaði en sjá má dagskrá
ráðstefnunnar á öftustu síðu þessa aukablaðs.
Áskoranir fyrirtækisins RML hafa verið
margar frá því það var sett á laggirnar þann 1. janúar 2013.
Fyrirtækið fór af stað með lítið veganesti fjárhagslega en
mikinn mannauð og einkenndust fyrstu 2-3 árin af því að
halda fyrirtækinu gangandi frá mánuði til mánaðar.
Frá byrjun hefur verið ötullega unnið að því að styrkja
stoðir fyrirtækisins og kannski einmitt vegna þess hve lítinn
fjárhagslegan arf það fékk í byrjun þá var ekki um annað að velja
en bæta reksturinn og gera það skipulega. Ráðgjafarþjónustan
hefur þurft að takast á við miklar skerðingar á framlögum frá
stofnun RML og við blasa meiri skerðingar en tekjustofnar
fyrirtækisins eru breiðari en þeir voru og verkefnin eru
fjölbreyttari og stærri. RML hefur haft það meginhlutverk
að vera ráðgjafarfyrirtæki í landbúnaði og er að fullu í eigu
Bændasamtaka Íslands og þar af leiðandi bænda en hefur sem
slíkt ansi víðtækt hlutverk.
Auk þess að veita bændum hlutlausa og óháða ráðgjöf sinna
starfsmenn RML ýmsum lögbundnum verkefnum og veita
ráðgjöf til ýmissa hagaðila svo sem ríkisstofnana, ráðuneyta
og einkaaðila.
Áskoranir í landbúnaði í dag eru víða, miklar hækkanir
á aðföngum, gríðarlegur vaxtakostnaður, áskoranir vegna
loftslagsmála, hert samkeppni, og breyttar neysluvenjur.
Tækifærin eru hins vegar mörg en umræðan um þær nýjungar
og möguleika sem eru að verða til í íslenskum landbúnaði
hverfur oft og tíðum vegna þeirrar stöðu sem landbúnaðurinn
er í, eðlilega þar sem bændur eru hreinlega að róa lífróður
um þessar mundir. Það er því full ástæða til þess að minna
á að þrátt fyrir allt þá eru tækifæri í landbúnaði óvíða meiri
en á Íslandi. Gæði og hreinleiki vatns og lands eru einstök
í heiminum, bændur hafa á síðustu árum fjárfest í tækni og
dýravelferð þannig að aðbúnaður hvort sem það er dýra eða
plantna er einstakur á heimsvísu. Lyfja- og varnarefnanotkun
er ein sú alminnsta í heiminum.
Það eru ótrúlega spennandi hlutir að gerast núna í íslenskum
landbúnaði. Loksins hillir undir það að nýr áfangi sé að nást í
baráttu við riðu og mun eitt erindi á ráðstefnunni fjalla um þann
árangur sem er að verða með ræktun á verndandi arfgerðum
gegn riðu. Erfðamengisúrval í mjólkurframleiðslu er að umbylta
öllu ræktunarstarfi þar og má áætla að á næstu árum verði
erfðaframfarir hraðari en verið hefur auk þess sem kyngreining
nautasæðis er líklega handan við hornið, bæði kyngreiningin
og erfðamengisúrvalið munu hafa verulega jákvæð áhrif á
mjólkurframleiðsluna og þar með hag kúabænda.
Tækniframfarir, aukinn sjálfvirknivæðing, meiri nákvæmni
og nýting gagna skila betri nýtingu aðfanga, meiri gæðum
og meiri afurðum. Við höfum góðar forsendur hér á landi til
þess að nýta okkur þau tækifæri sem felast í tæknivæddum
landbúnaði. Söfnun gagna og þátttaka í skýrsluhaldi er góð,
tæki og búnaður eru til staðar og menntunarstig og þekking
innan landbúnaðarins er mikil. Ræktunarskilyrði hafa farið
batnandi með hlýrra loftslagi og nú hillir undir að hægt verði að
hleypa nýju lífi í kornrækt með stuðningi ríkisins við kornrækt
og kynbætur á korni.
Um þessi tækifæri og fleiri til verður fjallað á ráðstefnunni,
því vil ég hvetja bændur og aðra hagaðila að koma á ráðstefnuna
þann 23. nóvember og hlýða á þau fjölmörgu góðu erindi
sem þar er boðið upp á og gleðjast með okkur yfir daginn og
jafnvel fram á kvöld.
Kæru bændur. Til hamingju með afmælið!
Starfsmenn RML hlakka til að sjá ykkur á Selfossi
Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri.
Um síðustu áramót voru 10 ár frá því að Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) var stofnuð og höfum við verið að fagna þeim tímamótum með
margs konar hætti á þessu ári. Meðfylgjandi Bændablaðinu að þessu sinni
er „aukablað“ sem starfsfólk RML á veg og vanda af.
RML 10 ára
Karvel L.
Karvelsson.
RML Í 10 ÁR