Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 40
Hér á landi var kartöflu-
mygla landlæg frá
1890–1960. Eftir það
varð nokkurt hlé, líklega vegna
kólnandi veðurfars. Árið 1990
kom upp faraldur á Suðurlandi,
og aftur árið eftir. Á tíunda
áratugnum og eftir aldamót
kemur mygla upp af og til en
með nokkurra ára hléum á milli. Árið 2019 sást
mygla á litlu svæði í Þykkvabæ en náði ekki
útbreiðslu. Eftir það hefur myglan sést á hverju
ári á Suðurlandi, að þessu ári meðtöldu.
Einkenni og smitleiðir
Sjúkdómnum veldur sveppurinn Phytophtora
infestans. Við hlý og rök veðurskilyrði getur
kartöflumyglan orðið að faraldri á skömmum
tíma. Fyrstu einkenni eru dökkir blettir á blöðum
og við frekari útbreiðslu rotna blöð og stönglar.
Af sýktum plöntum berast gró sveppsins með
vindi og smita ný svæði. Smit getur svo borist
í hnýðin, annaðhvort við upptöku eða með
regnvatni niður í jarðveginn og þá verður
uppskeran meira eða minna ónýt.
Algengasta smitleið myglu er með sýktu
útsæði. Smitið lifir þá í kartöflunni yfir veturinn,
berst upp með plöntunni og smitar svo út frá
sér til nærliggjandi plantna ef rétt veðurskilyrði
eru fyrir hendi. Villiplöntur sem spíra upp frá
kartöflum sem hafa orðið eftir í garðinum, og
lifa af veturinn, geta verið smitaðar af myglu og
borið smit áfram. Einnig geta úrgangskartöflur
sem ekki eru urðaðar tryggilega spírað upp, og
borið smit í nærliggjandi kartöflugarða.
Við ákveðin skilyrði geta tvær arfgerðir af
myglu æxlast og myndað svokölluð kynjuð gró.
Þessi gró geta lifað í jarðveginum í nokkur ár
og smita plöntur frá jarðvegsyfirborði. Ekki
hefur orðið vart við slíkt smit hér á landi. Má
því með nokkurri vissu fullyrða að uppruni
smits í ræktun hér komi frá smituðu útsæði,
íslensku eða innfluttu, villikartöflum frá fyrra
ári, eða úrgangskartöflum sem ekki hefur verið
fargað tryggilega.
Skipulagðar mygluvarnir í ljósi breyttra
aðstæðna
Leiða má líkum að því að með hlýnandi
veðurfari verði mygluhætta viðvarandi hér á
landi og að kartöfluræktendur þurfi þá að setja
sig í viðeigandi stellingar til varna til frambúðar.
Í ljósi myglutjóns sumarið 2021, og smitaðs
útsæðis vorið eftir, var ákveðið að snúa til
varna gegn myglu með skipulögðum hætti. Sótt
var um styrk í fagfé garðyrkju með eftirtalin
markmið: Að koma á fót mygluspákerfi, vakta
myglu hjá bændum, taka sýni af myglu til
arfgerðargreininga og fjölga varnarefnum á
markaði hér á landi. Styrkur fékkst, og vann
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins verkefnið
í samstarfi við Háskólann í Århus, BJ-Agro
í Danmörku, og sunnlenska kartöflubændur.
Arfgerðargreining myglu er mikilvæg til að
fylgjast með uppruna og útbreiðslu mismunandi
arfgerða. Komið hafa fram nýjar arfgerðir sem
eru þolnar fyrir ákveðnum varnarefnum sem
gagnast þá ekki gegn myglunni. Sýni af myglu
sem hefur greinst hér 2021 og 2022 hafa öll
verið af sömu arfgerð, E41- A2. Sá stofn er
talinn eiga uppruna sinn í Danmörku en er nú
algengur víða í norðanverðri Evrópu.
Mygluvarnir byggjast aðallega á því að úða
fyrirbyggjandi með varnarefnum, eða nota efni
sem stöðva mygluna ef hún hefur náð útbreiðslu.
Mikilvægt er að hafa nokkur mismunandi efni
að velja úr, bæði til að koma í veg fyrir að
mótstaða myndist og til að geta brugðist við
þolnum myglustofnum.
Til að auðvelda bændum mygluvarnir eru
veðurupplýsingar og veðurspár notaðar til að
meta hættu á myglusmiti. Þar sem kartöflu-
myglan þarf hitastig yfir 10 °C og hátt rakastig í
ákveðinn tíma, er hægt að reikna líkur á smiti út
frá veðurmælingu og veðurspá til nokkurra daga.
Sumarið 2022 var sett upp sjálfvirk veðurstöð í
Þykkvabæ sem tengd var við mygluspárkerfið
Euroblight. Það kerfi hefur verið þróað og
notað með góðum árangri á Norðurlöndum,
Þýskalandi, Hollandi og víðar í Evrópu.
Þar sem úðun með mygluvarnarefnum
er kostnaðarsöm er mikilvægt að geta metið
þörfina á úðun og ef hægt er að fækka úðunum
eða minnka styrk efnanna þegar smitálag er
lítið, geta sparast umtalsverðir fjármunir. Einnig
getur mygluspáin virkað sem viðvörun fyrir
bændur þannig að þeir bregðist við tímanlega
sem minnkar þá líkur á því að myglan komi
ræktendum að óvörum.
Auk Þykkvabæjar eru helstu kartöfluræktar-
svæði landsins í Eyjafirði og Hornafirði, en þar
hefur myglan ekki látið á sér kræla undanfarin ár.
Í Eyjafirði er þurrara loftslag þegar hlýtt er, og
í vætutíð er oftast svöl norðanátt. Mygluskilyrði
eru því mjög sjaldgæf þar og aðeins vitað um
eitt tilfelli árið 2014 þar sem mygla sást án þess
þó að valda verulegu tjóni. Á Hornafirði er aftur
á móti svipað veðurfar og í Þykkvabæ, en þar
hefur mygla ekki sést í yfir 60 ár. Því ber líklega
að þakka þeirri stefnu ræktenda á svæðinu að
nota eingöngu útsæði úr Eyjafirði og Hornafirði.
Vöktun fleiri svæða – Mygluspá aðgengileg
á heimasíðu RML
Síðastliðið sumar voru settar upp veðurstöðvar
í Eyjafirði og Hornafirði til að fylgjast með
mygluhættu á þeim svæðum. Mygluspáin var
tengd við heimasíðu RML þar sem bændur gátu
séð reiknaða mygluhættu frá degi til dags fyrir
sitt svæði yfir ræktunartímann. Á mynd 1 má sjá
hvernig mygluspáin birtist yfir ræktunartímann
sumarið 2023. Út frá myndinni má lesa að
veðurfar í Þykkvabæ og á Hornafirði hefur verið
svipað með tilliti til mygluhættu. Smitálag er
meira í Hornafirði í júní, en minna í lok júlí –
byrjun ágúst samanborið við Þykkvabæ. Þó er
ljóst að talsverð mygluhætta var á báðum svæðum
eftir þurrkatímabilið í júlí. Niðurstaða mælinga
sumarsins styðja því Hornfirðinga í þeirri
stefnu að kaupa ekki útsæði af myglusvæðum
og reyna þannig að koma í veg fyrir að myglan
berist til þeirra.
Mælingar í Eyjafirði staðfesta að þar eru
sjaldan mygluskilyrði og smitálag var mjög
lítið þar í allt sumar. Eyfirðingar flytja þó inn
útsæði þannig að smit getur borist á svæðið, en
veðurskilyrðin virðast í flestum árum koma í
veg fyrir útbreiðslu myglu.
Góð reynsla af verkefninu og áfram bætt við
þekkingu á mygluspá
Reynsla af mygluvörnum síðustu tveggja
ára sýnir að með markvissum aðgerðum er
hægt að koma í veg fyrir, eða takmarka mjög
tjón af völdum myglu, þó smit sé til staðar og
veðurskilyrði séu myglunni hagstæð. Áframhald
verður því á verkefninu, sem miðar að því
að veita bændum ráðgjöf út frá mygluspá,
fylgjast með útbreiðslu og arfgerðum myglu
og þróa aðferðirnar áfram í ljósi reynslu
og nýrrar þekkingar sem bætist við á hverju
ræktunartímabili.
Höfundur er ráðunautur hjá RML.
Kartöflumygla er vel þekktur og algengur sjúkdómur sem hefur fylgt kartöfluræktun
árum saman. Myglan hefur oft valdið uppskerubresti og þekktastar eru hörmungar og
hungursneyð á Írlandi 1845–1849. Írar voru þá mjög háðir kartöfluræktun og þegar
uppskeran brást ítrekað af völdum myglu dó um ein milljón manna úr hungri og yfir ein
milljón fluttist búferlum, flestir til Ameríku.
Helgi
Jóhannesson.
Kartöflumygla
– Mygluspá og mygluvarnir í hlýnandi loftslagi
Tölvudeild BÍ færðist til RML
árið 2020
Þann 1. janúar 2020 færðist tölvudeild BÍ yfir
til RML. Frá þeim tíma hefur rekstur forrita
BÍ og kerfisumsjón verið á hendi RML.
Við tilfærslu deildarinnar þá bættust við
níu starfsmenn í starfsmannahóp RML. Óhætt
er að segja að þessi tilfærsla hafi verið mikið
framfaraskref.
Verkefni deildarinnar eru
margvísleg og munu án efa
styrkja starfsemi RML
og byggja upp aukna
þekkingu starfsfólks.
Skýrsluhaldsforritin
eru gríðarlega verð-
mæt fyrir bændur og
þær upplýsingar sem
þau geyma.
Tækniþróun í landbúnaði
er mjög hröð og mikilvægt að þekking
sé sem breiðust innan raða RML.
Á heimasíðu RML undir Forrit og
skýrsluhald má skoða þau forrit sem eru
í boði og leiðbeiningar með þeim.
Loftslagsvænn landbúnaður
Samstarfsverkefni stjórnvalda, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins,
Skógræktarinnar og Landgræðslunnar sem hófst í ársbyrjun 2020. Hér
má sjá aðgerðaráætlun verkefnisins.
A. Aðgerðir sem lúta að því að dregið sé úr losun gróðurhúsategunda
1. Betri nýting tilbúins áburðar og nýting lífrænna áburðarefna
2. Meta möguleika á niturbindandi jurtum
3. Minni olíunotkun
4. Verndun jarðvegs
5. Endurheimt votlendis
6. Draga úr innyflagerjun
B. Aðgerðir sem lúta að aukinni kolefnisbindingu
1. Uppgræðsla
2. Endurheimt skóglendis (birkiskóga og víðikjarrs)
3. Skjólbeltaræktun og ræktun hagaskóga
4. Ræktun nytjaskóga
C. Hugsað út fyrir boxið
Aðgerðaáætlunin
Loftslagsvænn
landbúnaður
Mynd 1. Mygluspá fyrir Hornafjörð, Þykkvabæ og Eyjafjörð sumarið 2023.
RML Í 10 ÁR
Mynd - Helgi Jóhannesson.