Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 41
Fyrirmyndin er fengin frá Finnlandi þar sem
mjög góður árangur hefur náðst með þessari
tegund ráðgjafar.
Finnskur sérfræðingur, Anu Ella, hefur veitt
RML kennslu og ráðgjöf en mikilvægt er að
hafa reynslumikinn einstakling með sér í þessu
verkefni þar sem aðferðir og nálganir eru ólíkar
því sem ráðunautar almennt nota í ráðgjöf til
bænda. Hver hópur samanstendur af 10 búum
og tveimur ráðanautum.
Unnið er með viðfangsefni sem bændur
taka þátt í að velja og móta en nú er unnið
með efni sem tengist jarðrækt, svo sem
bættri nýtingu áburðar og hagkvæmari
gróffóðuröflun.
Nú fer að líða að lokum fyrsta ársins hjá
tveimur fyrstu hópunum og það hefur verið
gefandi og skemmtilegt að vinna saman með
bændunum að þeim viðfangsefnum sem voru
valin í upphafi með fjölbreyttum aðferðum
og nálgunum.
Á næsta ári geta hóparnir svo haldið áfram
saman og boðið verður upp á nýja hópa í þessu
spennandi verkefni.
Fagráð í nautgriparækt
tók þá ákvörðun að
hagnýta þessa aðferð
strax í ræktunarstarfinu,
byggja val nautkálfa á stöð
eingöngu á erfðamati og hætta
afkvæmaprófun ungnauta. Í
þessu felst gríðarlega mikil
breyting sem ekki er hægt að
kalla neitt annað en byltingu. Þau naut sem nú
eru keypt á stöð eru keypt í þeim tilgangi að þau
verði strax notuð eins og um reynd naut væri að
ræða, það er naut sem í eldra kerfi höfðu lokið
afkvæmaprófun. Þetta þýðir að nautin koma
nú til fullrar notkunar rétt rúmlega ársgömul
eða á sama tíma og áður var sent úr þeim sæði
til prófunar. Eldra kynbótaskipulag byggði á
afkvæmaprófun nautanna þar sem verulegur
tími fór í bið. Í fyrsta lagi þurfti að bíða eftir
að nautin yrðu kynþroska og gæfu sæði. Í öðru
lagi þurfti að bíða eftir því að dætur nautanna
fæddust og eignuðust að tveimur árum liðnum
sinn fyrsta kálf. Í þriðja lagi þurfti að bíða eftir
því að fá upplýsingar um afurðir dætranna og þá
fyrst var hægt að reikna áreiðanlegt kynbótamat
fyrir nautin. Frá því naut fæddist og þar til
það lauk prófun liðu því að jafnaði nálægt 70
mánuðum eða nærri sex ár. Í nýju skipulagi,
með hagnýtingu erfðamengisúrvals, líða ekki
nema 14-16 mánuðir frá því naut fæðist og þar
til útsending sæðis úr því getur hafist.
En hvað er erfðamat? Án þess að kafa djúpt
í tæknileg smáatriði má segja að erfðamat sé
frábrugðið hefðbundnu kynbótamati að því
leyti að arfgerðir eru notaðar til að meta
skyldleika á milli gripa í stað ættartölu. Þörf
er á að arfgreina viðmiðunarhóp sem tengir
arfgreiningar við frammistöðu gripanna í þeim
eiginleikum sem við reiknum kynbótamat
fyrir, t.d. afurðir, frumutölu og sköpulag.
Tölfræðilíkön kynbótamatsins eru svo
„þjálfuð“ til þess að meta kynbótagildi gripa í
stofninum. Viðmiðunarhópnum þarf síðan að
viðhalda um ókomna tíð þannig að hann sé sem
skyldastur stofninum á hverjum tíma.
Vert er að minna á að erfðamatið eru engin
töfrabrögð. Þótt að nautastöðvarnaut séu valin
inn á stöð með meira öryggi þegar valið byggir á
arfgerð er öryggið á matinu ekki alveg jafn hátt
og á nautum sem lokið hafa afkvæmaprófunum.
Meiri erfðaframfarir í nýju kerfi byggjast á
að kynslóðabilið styttist (um 4-5 ár í tilfelli
nautanna). Líkönin sem meta kynbótagildið
gera okkur jafnframt kleift að velja foreldra
næstu kynslóðar með meiri nákvæmni en
áður sem leiðir aukins úrvalsstyrks og enn
hraðari erfðaframfara. Einnig sýna rannsóknir
erlendis að eftir því sem fleiri arfgerðum er
safnað og viðmiðunnarhópurinn sem er bæði
arfgreindur og eru með svipfarsmælingar
fyrir útreikningana stækkar, eykst öryggi
erfðamatsins fyrir óreynda gripi.
Í doktorsverkefni sínu fann Egill Gautason
út að öryggi erfðamats gripa sem ekki eru með
arfgreiningu er ekki hærra en hefðbundins
kynbótamats. Því var ákveðið að arfgreina
allar kvígur og til þess að gera sýnatöku
sem ódýrasta, öruggasta og skilvirkasta var
jafnframt ákveðið að hún færi fram um leið
og einstaklingsmerki er sett í gripinn. Þannig
er komið á kerfi sem er ódýrt og öruggt auk
þess sem erfðamat gripanna liggur fyrir á
þeim tiltölulega ungum. Það þýðir að sé
svigrúm til þess að velja úr kvígunum má
nota erfðamatið til þess að grisja kvíguhópinn
og lækka þannig rekstrarkostnað búanna. Þá
opnast leið til þess að velja betur en áður
hvaða naut hentar á hvaða kvígu að teknu
tilliti til kosta og galla.
Í upphafi skyldi endinn skoða, en það
liggur fyrir að stjórnlaus notkun þeirra
gripa sem hæst hafa erfðamat getur
aukið skyldleikarækt umfram það sem
æskilegt er. Til þess að hamla á móti
aukningu skyldleikaræktar er gjarnan beitt
svokölluðum kjörerfðaframlögum. Það þýðir
að í einhverjum tilvikum getur verið betra að
nota hátt metna gripi minna en þá sem lægra
eru metnir vegna þess að þeir eru minna
skyldir stofninum. Kjörerfðaframlögum má
þannig beita við ákvörðun um kaup á nautum
á nautastöð eða við ákvörðun um notkun
þeirra. Með því að hamla skyldleikarækt
nást minni erfðaframfarir til styttri tíma
litið en með langtímahagsmuni í huga verða
erfðaframfarir meiri þegar upp er staðið.
Nú er unnið að því að formgera nýtt
kynbótaskipulag. Það felst m.a. í því að
reiknað verður út hversu marga nautkálfa á að
arfgreina til þess að velja þann fjölda nautkálfa
sem þarf til endurnýjunar nautastofnsins á
hverjum tíma. Jafnframt þarf að ákvarða hve
mikið skal nota hvert og eitt naut og hvort
nota eigi nautin mismikið, m.a. með hliðsjón
af ætterni og skyldleika við stofninn.
Sú bylting sem nú stendur yfir í nautgripa-
ræktinni er ekki eingöngu falin í innleiðingu
erfðamengisúrvals. Margt annað kemur til og
má nefna að útreikningar á erfða-/kynbótamati
hafa verið endurforritaðir auk þess sem
innleiddar hafa verið nýrri og betri aðferðir.
Þannig hefur tekist að straumlínulaga ferlið
og nú tekur vinnsla erfðamats innan við tvo
sólarhringa í stað 1-2 vikna áður.
Auk þessa er stöðugt verið að horfa til
nýrra eiginleika. Nú er unnið að því að skoða
eiginleika er varða lifun og má þar nefna
kálfadauða, burðarerfiðleika og tengda þætti.
Einnig er verið að skoða eiginleika sem hafa
áhrif á vaxtarhraða, stærð og fóðurnýtingu
gripa. Stefnt er að birtingu erfðamats fyrir
þessa þætti innan tíðar.
Höfundur er ráðunautur hjá RML.
Fyrir um sex árum síðan hófst undirbúningur að innleiðingu erfðamengisúrvals í íslenskri
nautgriparækt. Sú vinna stendur enn, en í lok síðasta árs var stigið stórt skref þegar
kynbótamat byggt á erfðamengisaðferðum (erfðamat) var birt í fyrsta skipti.
Bylting í íslenskri nautgriparækt
Guðmundur
Jóhannesson.
Sprotinn – jarðræktarráðgjöf
Um er að ræða einstaklingsmiðaða samsetningu
þar sem þjónustan er útfærð eftir óskum og
þörfum á hverju býli fyrir sig.
Þjónustuliðir í grunnpakka Sprotans
• Aðstoð við skráningu á áburðargjöf,
ræktun og uppskeru í Jörð.is.
• Aðstoð við að viðhalda túnkorti og grunn-
upplýsingum um spildur í Jörð.is.
• Aðstoð við umsókn um jarðræktarstyrk
og landgreiðslur eftir því sem við á.
• Aðstoð við sáðskiptaáætlun.
• Greining á áburðarkostnaði út frá uppskeru
túna.
• Áburðaráætlun er lokaafurð Sprotans
hverju sinni og er hún unnin út frá upplýsingum
sem safnað hefur verið saman undangengið
ræktunarár.
Aðrir valbundnir þjónustuliðir í Sprotanum
• Jarðvegssýnataka og túlkun á niðurstöðum.
• Ræktunaráætlun og úttekt á ræktarlandi.
• Túlkun og ráðgjöf er varðar efnagreiningu
á búfjáráburði.
Bændahóparáðgjöf – hvað er það?
Bændahóparáðgjöf
RML
Við hvetjum bændur til að kynna sér jarðræktarráðgjöf
okkar í gegnum SPROTANN.
Í upphafi árs bauð RML í fyrsta skipti upp á Bændahópa,
sem er ný nálgun er kemur að ráðgjöf til bænda.
Sprotinn
jarðræktarráðgjöf
Sprotinn jarðrækt
og fóðurráðgjöf
Mynd - Halla Eygló Sveinsdóttir.
Mynd - Oddný K. Guðmundsdóttir. Mynd - Helga Halldórsdóttir.
RML Í 10 ÁR