Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 42
Í kjölfarið hófst undir-
búningur á að innleiða
ARR í íslenska sauðfjár-
stofninn með þeirri von að loks
væri hægt að sigra riðuna með
skipulögðu ræktunarstarfi.
Rannsókn á áhrifum inn-
leiðingar ARR
Fáir arfberar ARR-
samsætunnar í upphafi sem
allir eru úr sömu hjörðinni,
vekja aftur á móti áhyggjur um
að hröð innleiðing geti haft í
för með sér neikvæð áhrif á
aðra þætti ræktunarstarfsins
t.d. minni erfðaframfarir
og tap á erfðafjölbreytileika í stofninum.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins í samstarfi
við Landbúnaðarháskóla Íslands hófu því vinnu
við rannsóknarverkefni þar sem markmiðin
voru að meta áhrif mismunandi leiða við
innleiðingu ARR. Til skoðunar voru áhrifaþættir
eins og hraði innleiðingar, skyldleikarækt og
virk stofnstærð ásamt erfðaframför í öðrum
eiginleikum. Lokaskýrsla verkefnisins
„Ræktun gegn riðu – Áhrif mismunandi leiða
við innleiðingu verndandi arfgerða metin með
slembihermunum“ birtist á heimasíðu RML í
júlí síðastliðnum. Niðurstöðurnar sýna að hægt
er að innleiða ARR tiltölulega hratt hér á landi
með viðráðanlegum fjölda arfgerðagreininga
og án þess að skyldleikarækt í stofninum
fari yfir hættumörk eða að virk stofnstærð fari
undir hættumörk.
Í rannsókninni var íslenski sauðfjárstofninn
settur upp með hermilíkani í tölvu og ARR
innleitt í stofninn yfir 20 ára tímabil. Þrjár breytur
aðskildu tólf sviðsmyndir: 1) hvort áhersla á
riðumótstöðuræktun var mikil í öllum stofninum
eða mikil á riðusvæðum en minni annars staðar,
2) hversu stórt hlutfall lamba var arfgerðargreint,
og 3) hvort hrútar með verndandi arfgerðir voru
aðeins notaðir í eitt ár eða í allt að þrjú ár. Til
samanburðar var sett upp grunnsviðsmynd þar
sem aðeins fór fram hefðbundið ræktunarstarf.
Í öllum sviðmyndum báru nánast allar
kindur á riðusvæðum minnst eina ARR-
samsætu eftir 9 ár af riðumótstöðuræktun og
í öllum stofninum eftir 20 ár (mynd 1). Allar
sviðsmyndir riðumótstöðuræktunar leiddu til
meiri skyldleikaræktar en hefðbundin ræktun.
Í sviðsmyndum þar sem lögð var áhersla
á hraða innleiðingu í öllum stofninum var
skyldleikaræktin áberandi meiri samanborið
við sviðsmyndir þar sem áherslan var minni
utan riðusvæða (mynd 2). Einnig minnkaði
virk stofnstærð í öllum sviðsmyndum
riðumótstöðuræktunar en var þó alltaf yfir
því sem talið er lágmark af Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Ein af afgerandi niðurstöðum rannsóknarinnar
var að hröð endurnýjun hrúta sem bera verndandi
arfgerðir fyrstu ár riðumótstöðuræktunar, dró
úr neikvæðum áhrifum. Sviðsmyndir þar
sem hrútar voru endurnýjaðir hratt leiddu til
minni skyldleikaræktaraukningar og juku virka
stofnstærð samanborið við sviðsmyndir þar sem
endurnýjun hrúta var hefðbundin. Þessi áhrif
voru sérstaklega greinileg þegar innleiðing ARR
fór hratt fram í öllum stofninum.
Ný ræktunarstefna
Á grunni hermirannsóknanna hefur verið
mótuð ræktunarstefna af fagráði í sauðfjárrækt
sem miðar að því gera íslenska sauðfjárstofninn
þolinn gegn riðuveiki. Áætlunin felur í sér að
tekin verða stór skref í innleiðingu verndandi
arfgerða á næstu 5 árum. Hvatt er til þess
að bændur á áhættusvæðum m.t.t. riðuveiki
innleiði verndandi arfgerðir sem allra hraðast
og er markmiðið fyrir þann hóp að nánast allir
gripir séu a.m.k. arfblendnir fyrir verndandi
genasamsætum árið 2033. Fyrir stofninn í heild
er markmiðið að árið 2042 beri sem næst allar
kindur lítið næma eða verndandi arfgerð og þar
af sé a.m.k. 75% sauðfjár sem beri verndandi
genasamsætu.
Áhrifaþættir á árangur
Lykilþættir í því að ná fram þessum
markmiðum felast í umfangsmiklum arfgerðar-
greiningum á sauðfé og öflugri dreifingu
erfðaefnis í gegnum sæðingastöðvarnar. Fram
undan er því gjörbreytt stefna í vali á hrútum
sem fara á sæðingastöð. Frá árinu 2024 verða
hrútar með hlutlausar arfgerðir aðeins teknir til
notkunar í undantekningartilfellum og frá árinu
2032 er stefnt að því að meginþorri stöðvahrúta
verði arfhreinir fyrir verndandi arfgerðum.
Almenn þátttaka bænda í verkefninu er
vissuleg grundvallaratriði. Allir sauðfjárbændur
landsins þurfa að líta á það sem sjálfsagðan
hlut að nota eingöngu hrúta sem bera
þekktar arfgerðir. Fyrsta mál er að draga sem
hraðast úr notkun hlutlausra hrúta og útrýma
áhættuarfgerð gegn riðuveiki samhliða því að
fjölga verndandi arfgerðum. Gert er ráð fyrir
mjög umfangsmiklum arfgerðargreiningum
næstu 3 til 5 árin meðan hrútaflotinn í landinu
er að stærstum hluta arfblendinn fyrir verndandi
arfgerðum og greininga er þörf til að vita hvaða
afkvæmi hafa hlotið hnossið. Eftir því sem
arfhreinum hrútum í notkun fjölgar minnkar
svo þörfin fyrir arfgerðargreiningar. Hvernig
til tekst mun vissulega einnig ráðast af því
hvernig opinberum stuðningi við verkefnið
verður háttað.
Í íslensku sauðfé finnast fleiri genasamsætur
en ARR sem veita mótstöðu gegn riðu. Þær
samsætur innhalda breytileikana T137,
N138, C151 og H154 á Príongeninu. Í gangi
er alþjóðleg rannsókn sem m.a. miðar að
því að rannsaka næmi þessara breytileika.
Þátttakendur frá Íslandi í þessum alþjóðlega
rannsóknarteymi eru Karólína Elísabetardóttir,
fulltrúar frá Tilraunastöðinni á Keldum og
RML. Ef fleiri genasamsætur munu öðlast
sama sess og ARR myndi það auðvelda
framræktun stofnsins m.t.t. skyldleikaræktar
og erfðafjölbreytileika. Í öllu falli verður stefnt
að því næstu árin að viðhalda öllum þeim
breytileikum sem auka þol kinda gegn riðu en
ræktunaráætlanir verða uppfærðar samkvæmt
nýjustu þekkingu á hverjum tíma.
Spennandi tímar fram undan
Hafið er ákaflega spennandi verkefni í
sauðfjárræktinni sem í raun má kalla byltingu.
Nýr eiginleiki, sem er þol gegn riðu, verður
nú settur á oddinn í ræktunarstarfinu á næstu
árum. Ef vel tekst til þá mun eftirgjöf í
öðrum ræktunareiginleikum verða sáralítil.
Uppskeran, þegar fram líða stundir, verður
hins vegar sú að riðuógnin sem búgreinin
hefur staðið frammi fyrir, mun hjaðna og
miklir fjármunir munu sparast ef stórfelldir
niðurskurðir sauðfjár heyra sögunni til.
Höfundar eru ráðunautar hjá RML.
Eftir áratuga langa baráttu gegn riðu í íslensku sauðfé þar sem aðalvopnin voru
takmarkaður samgangur fjár á milli bæja á riðusvæðum og niðurskurður sýktra hjarða
urðu straumhvörf í þessum málum í byrjun árs 2022. Þá fundust í fyrsta sinn á Íslandi
kindur með ARR-samsætuna á bænum Þernunesi við Reyðarfjörð, en ARR-samsætan
er alþjóðlega viðurkennd sem verndandi gegn riðu.
Þórdís
Þórarinsdóttir.
Bylting í sauðfjárræktinni
- Endurnýjun íslenska sauðfjárkynsins til þols gegn riðu
Mynd 1 - Þróun arfgerðahlutfalla ærstofnsins á árunum eftir að riðumótstöðuræktun hefst. Q eða R
tákna breytileika í sæti 171. Efri myndin sýnir sviðsmyndir þar sem innleiðing fer hratt fram í öllum
stofninum og neðri myndin sýnir sviðmyndir þar sem innleiðing fer hratt fram á riðusvæðum en hægar
annars staðar.
Mynd 2 - Þróun meðalskyldleikaræktarstuðuls í stofninum við innleiðingu ARR-samsætunnar. Í
sviðsmyndum 1_l_gg og 1_l_uu fer innleiðing fer hratt fram í öllum stofninum en í 2_l_gg og 2_l_uu fer
innleiðing hratt fram á riðusvæðum en hægar annarsstaðar. Í 1_l_uu og 2_l_uu eru ARR-hrútar aðeins
notaðir í 1 ár fyrstu ár innleiðingarinnar og leiðir það til minni skyldleikaræktaraukningar samanborið
við 1_l_gg og 2_l_gg þar sem endurnýjun hrúta var hefðbundin.
Mynd - Þórdís Þórarinsdóttir.
Eyþór Einarsson.
RML Í 10 ÁR