Bændablaðið - 02.11.2023, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Það er vel hægt að rækta grasker
í köldum gróðurhúsum á Íslandi,
þó ekki hafi farið mikið fyrir slíkri
ræktun fram til þessa. Í sumar
sannreyndi Helgi Sigfússon það í
Skagafirði í tilraunaræktun, þar
sem hann uppskar um 40 stykki.
„Ég er uppalinn í Keflavík
og vann á „Vellinum“ sem ungur
maður og þar komst ég fyrst í kynni
við grasker. Ég er búfræðingur
þannig að ég hef alltaf haft svolítinn
áhuga á margvíslegri ræktun. Svo
hafa áhrifin orðið sterkari frá
Bandaríkjunum varðandi ýmsa
siði eins og með hrekkjavökuna
og ég hugsaði alltaf meira og
meira um að það væri gaman að
prófa ræktun á þessu,“ segir Helgi,
spurður um forsöguna á bak við
tilraunaræktunina.
Stór og ljúffeng graskersfræ
Helgi ræktar graskerin í köldu
gróðurhúsi á landi dóttur sinnar
og tengdasonar á Reykjum í
Skagafirði, en hann er sjálfur
búsettur á Reyðarfirði.
„Þar sem svona ræktun krefst
þess að það sé haldið nokkuð
vel utan hana þá ákvað ég að
hafa þetta ekkert umfangsmeira í
þessari tilraun. Plönturnar verða
svo rosalega stórar og aldin geta
náð 900 kílóum af þessu yrki þar
sem aðstæður eru bestar. En maður
stoppar vöxtinn áður en þau ná
slíkri stærð.“
Fræin eru mjög stór að sögn
Helga og afar ljúffeng ristuð. „Hefð
er fyrir því að nota aldinkjötið í
súpur og bökur ýmiss konar.“
Hann telur ágæta möguleika
vera fyrir graskersræktun á Íslandi,
þau þurfa að minnsta kosti kalt
gróðurhús en ættu að þrífast enn
betur með lýsingu og hita. „Eftir að
hafa fengið þessa hugmynd og afnot
af gamla gróðurhúsinu pantaði ég
fræ frá Svíþjóð. Þá var að sá í potta
inni og eftir fimm til sex daga
spíruðu þau, sem heppnaðist vel.
Sáði fyrst 30. mars og aftur tvisvar
með eins til tveggja vikna millibili,“
segir Helgi og bætir við að hann
hafi sótt sér upplýsingar frá Norður-
Ameríku. „En þar er reyndar ræktað
á stórum ökrum, skiljanlega.“
Hefði með lagni getað
ræktað 200 grasker
„Ég hins vegar vissi að svo til allt
má rækta lóðrétt, það er í brúsum,
dunkum og þess háttar og fullyrt að
væri hið minnsta mál. Þegar var svo
búið að tvíumpotta varð að koma
plöntunum í 20-25 lítra brúsa, sem
búið var að skera ofan af og bora
göt á botninn og þau frekar fleiri en
færri. Ílátin mega alveg vera aðeins
stærri,“ útskýrir Helgi.
Hann telur að í plássinu í litla
gróðurhúsinu sem hann notaði hefði
með lagni mátt rækta og uppskera
um 200 grasker. „Þessi tilraun tókst
en ef ég hefði ætlað að fá sem mest
út úr þessari ræktun þá hefði ég stýft
plönturnar og látið hverja þeirra bera
um þrjú aldin.“
Gælir við möguleikann
um meiri framleiðslu
Helgi segist alveg geta hugsað sér
að fara út í litla framleiðslu og
markaðssetja graskerin. En það
velti dálítið á hvort hann fái að nota
gróðurhúsið áfram.
„Þá þyrfti ég líka að dvelja
þarna lengur sem væri svo sem
ekki vandamál þar sem ég gæti
eitthvað hjálpað til líka á bænum.
Á meðan plönturnar uxu – og það
var gífurlega hraður vöxtur – þurfti
að finna réttu moldina, mala hana í
taðkvörn ásamt þurri mykju, sem ég
safnaði í beitarhólfi holdanautanna
á bænum. Þessu blandaði ég saman
ásamt tilbúnum áburði í hlutföllum,
sem var nú nokkur ágiskun. Og svo
hófst daglegt eftirlit, upphenging
á klifurþráðum, klipping og ekki
minnst vökvun og enn meiri áburður.
Ef nokkur planta þarf umönnun,
mikið vatn og áburð þá er það
grasker og sérstaklega þetta afbrigði
sem ég hafði valið og fengið sent.“
LÍF & STARF
Skagafjörður:
Farsæl tilraunaræktun á graskerum
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
YLEININGAR
Léttar stálklæddar samlokueiningar sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna.
Auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi
og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Henta vel fyrir eldri gripahús
þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
Helgi Sigfússon ræktaði til gamans grasker í sumar og uppskar um 40 stykki af aldinum. Hann telur ágæta möguleika vera fyrir graskersframleiðslu á Íslandi. Myndir / Aðsendar
Dagbjört með vinalegt heimaræktað hrekkjavökugrasker.
Helgi telur að með lagni hefði hann getað ræktað og uppskorið um 200
grasker. Hann segir plöntuna kröfuharða þegar kemur að næringarþörf.