Bændablaðið - 02.11.2023, Page 47

Bændablaðið - 02.11.2023, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023 Helgi ásamt Kristjáni og einni afurð tilraunaræktunarinnar. Aldin yrkjanna sem Helgi ræktaði geta náð 900 kílóum við bestu aðstæður. Strásykur og þurrt bökunarger í matinn Helgi heldur áfram útskýringum á ræktunarferlinu og segir grasker vera sérstaklega kröfuharðar plöntur þegar kemur að næringarþörf. „Þeir amerísku margendurtaka í fræðunum að þú sért kominn með afar gráðuga plöntu sem fúlsar ekki við neinu „matarkyns“. Um tíma hrærði ég saman strásykri og þurru bökunargeri og vökvaði. Veit að þeir í Ameríku vökva líka með kúamjólk. Fyrstu blómin sjást um það bil 50-55 dögum eftir sáningu og vaxtartíminn er svipaður og hjá kartöflum, eða 90–120 dagar. Fyrst koma karlblómin og stuttu seinna kvenblómin. Þau eru nokkuð lík, nema kvenblómið hefur grængula kúlu undir blóminu, það er efst á blómstilk. Á sömu plöntu eru oft bæði kynin og það lærist fljótt að sjá muninn á blómunum. Þá eru frævur kvenblómsins eins og kóróna en frævill karlsins bara stakur. Og þar sem okkur vantar flugurnar, verður maður að handfrjóvga þegar blómin hafa opnað sig; strjúka frævilinn með mjúkum bursta eða pensli og dusta frjósallanum yfir kórónuna í kvenblóminu.Blómin standa ekki svo lengi þannig að seinnipart dags gæti verið of seint að frjóvga. Síðan visnar karlinn og drepst. Áður en það gerist má safna þeim blómum saman og steikja á pönnu – sem er hreint lostæti. Blóm kerlunnar lokast og kúlan stækkar og endar í graskeri,“ segir Helgi að lokum um forvitnilegan ræktunarferil graskersins. Helgi ræktaði graskerin í köldu gróðurhúsi í Skagafirði. Rækunin krefst nokkurrar natni. „Um tíma hrærði ég saman strásykri og þurru bökunargeri og vökvaði,“ segir Helgi meðal annars. ID.4 Pure frá: 5.890.000 kr. Verð áður: 6.390.000 kr. ID.4 GTX frá: 7.990.000 kr. Verð áður: 8.790.000 kr. Allt að milljón króna afsláttur Tilboðin gilda til 16. nóvember 2023 ID.Buzz Cargo frá: 7.350.000 kr. Verð áður: 8.350.000 kr. ID.5 GTX frá: 8.380.000 kr. Verð áður: 9.380.000 kr. ID.Buzz Pro frá: 8.790.000 kr. Verð áður: 9.590.000 kr. ID.4 Pro 4Motion- verð frá: 7.490.000 kr. Verð áður: 8.290.000 kr. eru væntanlegir eftir áramót og nú er rétti tíminn til að festa kaup á nýjum Zodiac. Bjóðum auka haustafslátt ef pantað er í nóvembermánuði. Tryggðu þér eintak af söluhæsta RIB bát landsins á verði sem hefur aldrei sést áður. Zodiac PRO. frá kr. 5.500.000.- m/vsk (hlaðinn aukabúnaði) Zodiac OPEN 6.5 frá kr. 5.900.000.- m/vsk Bombard Sunrider 6.5 frá kr. 4.100.000.- m/vsk. Linder álbátarnir hafa verið nær uppseldir í Evrópu síðastliðin sumur, en koma eftir áramót í stærðum 400 cm og 440 cm. Frábært verð í frábærum gæðum. Zodiac OPEN og Zodiac PRO

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.