Bændablaðið - 02.11.2023, Qupperneq 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Skordýrum fer fækkandi. Um
það eru merki víða um heim. En
kannski er ekki allt sem sýnist.
Skordýrum, fjölbreyttasta hópi
lífvera á jörðinni, er að fækka með
áður óþekktum hraða. Þau hafa þó í
um 400 milljónir ára verið farsælasti
hópur dýra á jörðinni. Skordýr
eru tveir þriðju hlutar rúmlega
1,5 milljóna skráðra dýrategunda
heimsins og væntanlega milljónir
þeirra enn óuppgötvaðar
Því hefur verið haldið fram að
skordýr gætu horfið á innan við öld
miðað við núverandi hnignunarhraða
og stórlandbúnaður á iðnaðarskala
ásamt loftslagsbreytingum valdi þar
mestu tjóni af öllu. Vísindamennirnir
telja gjarnan eyðingu náttúrulegra
búsvæða vegna þéttbýlismyndunar
þó vera lykilatriði hvað varðar
fækkun skordýra.
Nýjustu rannsóknir benda þó
til að fréttir af fækkun skordýra á
heimsvísu um allt að 25% á einum
áratug séu ekki alls kostar réttar.
Málið sé mun flóknara en svo. Skv.
frétt BBC um málið er skordýrum
sem búa á landi að fækka en pöddum
sem lifa í ferskvatni fjölgar.
Mesta skordýrafækkunin í
Evrópu og Bandaríkjunum
BBC segir samantektarrannsókn sem
byggi á gögnum úr 166 langtíma-
könnunum á 1.676 stöðum og birt
var í vísindatímaritinu Science,
draga upp mjög blæbrigðaríka
og breytilega mynd af ástandi
skordýraheilbrigðis.
Þannig fækki skordýrum eins og
fiðrildum, maurum og engisprettum
um 0,92% á ári, eða um 9% á áratug.
Það sé ekki eins slæmt og áður var
talið en engu að síður mjög alvarlegt.
Ástand þessara stofna sé verra
á ákveðnum svæðum en öðrum.
Fljúgandi skordýrum hafi fækkað
að meðaltali. Hins
vegar sé meirihluti
skordýra lítið
áberandi og lifi
fjarri augum fólks –
í jarðvegi, trjám eða
vatni.
Rannsóknir sem sýni
fram á fækkun hafi
í mörgum tilvikum
fjallað um afmörkuð
svæði eða einstakar
tegundir og eigi þess
vegna ekki við almennt. M e s t
var skordýratapið í vestur- og
miðvesturríkjum Bandaríkjanna og
í Evrópu, sérstaklega í Þýskalandi.
Þótt mörgum tegundum á landi
fari fækkandi sýni samantektar-
rannsóknin að skordýr sem lifi í
fersku vatni, eins og mýflugur, aukist
um 1,08% á ári. Þessi jákvæða þróun
hafi verið sterk í Norður-Evrópu, í
vesturhluta Bandaríkjanna og síðan
á tíunda áratugnum í Rússlandi.
Vísindamennirnir telja að þetta sé
vegna lagasetninga sem orðið hafi
til þess að mengaðar ár og vötn voru
hreinsuð.
Hins vegar muni fjölgun skordýra
sem lifi í vatni ekki bæta upp hrun
hinna. Þau séu aðeins um 10% þess
fjölda sem lifi á landi.
Skógi vaxin búsvæði langbest
Á ræktuðu landi annars vegar og
náttúrulegum skógi og engjum hins
vegar hélst heildarmassi skordýra
jafn en tegundafjölbreytni minnkaði
um allt að 30% á ræktuðu landi.
Á sama tíma var annað mynstur
í borgarlandslagi: lítil breyting
á tegundafjölbreytileika en 40%
fækkun á lífmassa skordýra.
Rannsóknin útskýrir ekki ástæður
þessa en segir mögulegt að á
meðan búskapur framleiði mikið
af gróðri þar sem skordýr geti
lifað séu plönturnar sem vaxa þar
einsleitar. Þannig að sveitin geti
borið mikið af skordýrum, en
litla tegundafjölbreytni. Að sama
skapi er minni gróður í borgum
en meira úrval búsvæða svo sem
almenningsgarðar, garðar og
grasræmur meðfram gangstéttum.
Skógi vaxin svæði, bæði í borgum
og á ræktuðum svæðum, stóðu
upp úr varðandi skordýrafjölda og
fjölbreytileika tegunda.
Standa undir nánast öllum
vistkerfum
Skordýr standa undir nánast öllum
vistkerfum á landi
og í ferskvatni og
skipta sköpum fyrir
fæðukeðjuna. Þau eru
fæða fugla, skriðdýra
og spendýra eins og
leðurblaka. Skordýr skipta
líka afar miklu máli þegar
kemur að frjóvgun, síðast
en ekki síst uppskeru,
endurvinnslu næringarefna
og heilbrigði og loftun
jarðvegs. Skordýr fræva
meira en 75% af uppskeru á
heimsvísu, er það þjónusta sem
metin er á allt að 577 milljarða dollara
á ári, skv. The Intergovernmental
Science-Policy Platform on
Biodiversity and Ecosystem Services
(IPBES). Harvard-líffræðingurinn
E. O. Wilson hefur einmitt sagt um
skordýrin: „Þetta eru litlu dýrin sem
stjórna heiminum.“ /sá
VIÐ YFIRFÆRUM
EFNIÐ Á STAFRÆNT FORM
• Á DVD DISKA
• MINNISLYKLA
• STÆRRI MINNISDRIF
FULLKOMINN TÆKJABÚNAÐUR
MUNU GLATAST!
MINNINGAR ÞÍNAR
SPÓLUR ERU AÐ NÁLGAST ÞAÐ SÍÐASTA
Trönuhraun 1, 220 Hafnarfirði. Sími 534 0400
myndform@myndform.is
Vinnupallar ehf. – Vagnhöfða 7 – s. 787 9933 – vpallar@vpallar.is – www.vpallar.is
HITABLÁSARAR, ÞURRKARAR OG RAKAEYÐINGARTÆKI
Þarf að halda hita á vinnusvæði eða þurrka það upp?
Við bjóðum þér fjölbreyttar lausnir á frábæru verði!
Skordýr:
Litlu dýrin sem
stjórna heiminum