Bændablaðið - 02.11.2023, Síða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Flestar mosategundir vaxa við
mikinn raka eins og í votlendi og
lækjarjöðrum, en svo eru einnig
margar sem vaxa í þurrum
eyðimörkum og á steinum.
Mosategundum er oft
hópað saman í einn flokk í
gróðurúttektum, kannski vegna
þess að mosar eru margir smáir,
það þarf stækkun til að sjá þá
almennilega, þeir mynda blandaða
mosaþekju eða mosalag þar sem
margir þeirra vaxa saman og því
getur oft verið erfitt að greina þá
til tegunda.
Mosar eru mikilvægir á
norðlægum slóðum
Mosarannsóknir síðustu ára sýna
aukið mikilvægi þeirra, ekki síst
í vistkerfum á norðlægum slóðum
þar sem mosalagið stýrir flæði
orku og efna milli andrúmslofts og
jarðvegs. Virknin er þó breytileg
eftir tegundum, t.d. geta sumar
tegundir barnamosa (Sphagnum)
haldið allt að 20x þurrvigt sinni af
vatni. Mikilvægi mosa á Íslandi
er þar engin undantekning, enda
einstaklega mikil mosaparadís.
Yfir 600 mosategundir vaxa hér
við ýmsar aðstæður og eru þær
mikilvægur hlekkur líffræðilegrar
fjölbreytni íslenskra vistkerfa og
virkni þeirra.
Eru tengsl milli
tegundasamsetningu mosa og
ástands mýra á Íslandi?
Í vor hófst verkefni á vegum
Landgræðslunnar til að bæta
loftslagsbókhald Íslands þar
sem mýrar í fjölbreyttu ástandi
(mismunandi skala framræslu,
landnýtingu, fjarlægð frá
sjó og nálægð við gosbelti)
eru vaktaðar m.t.t. losunar
gróðurhúsalofttegunda og fleiri
tengdra þátta. Vöktunarpunktar í
mýrum voru metnir til vistgerða og
gróðurþekja og tegundasamsetning
plantna var mæld. Einnig var gerð
tilraun til að meta hnignunarstig
mýranna. Við fyrstu úttekt virðast
mosar vera næmir fyrir raski og
ástand þeirra og tegundasamsetning
er góð vísbending um ástand mýra.
Í óröskuðum mýrum fundust
margar votlendistegundir mosa
en við rask þeirra hafði þeim
fækkað verulega og voru oft alveg
horfnar eftir framræslu. Á þeim
svæðum höfðu þurrlendis mosar
mestmegnis tekið yfir.
Mýrar eru verðmæt
votlendisvistkerfi sem þarf að
hlúa miklu betur að á Íslandi
Mýrar geyma verulegan hluta
kolefnisforða landsins. Þau
eru mikilvæg búsvæði plantna,
fugla, fiska og smádýra, bæta
vatnsbúskap jarðar og geta jafnað
sveiflukennt vatnsrennsli og
þannig minnkað hættu á flóðum.
Því er mikilvægt að vernda
óraskaðar mýrar og endurheimta
þær sem hefur verið raskað. Það
er alltaf opið fyrir umsóknir um
samstarf við endurheimt votlendis
hjá Landgræðslunni.
Komið og kynnist mosunum í
mýrinni betur í Perlunni
5. nóvember nk.
Að lokum vil ég vekja athygli
á fjölskylduviðburði Náttúru-
minjasafns Íslands og Land-
græðslunnar sunnudaginn 5.
nóvember milli kl. 14 og 16 á
sýningu Náttúruminjasafnsins,
Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð
Perlunnar í Reykjavík.
Viðburðurinn Mosarnir
í mýrinni er hluti af Hátíð
líffræðilegrar fjölbreytni 2023
og er aðgangur ókeypis.
Ágústa Helgadóttir,
líffræðingur og staðgengill
verkefnastjóra endurheimt
votlendis - agusta@land.is
Mosarnir í mýrinni
Mosavöndur með fleiri en 8 tegundir mosa úr óraskaðri mýri.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Helstu upplýsingar má sjá hér
í meðfylgjandi töflu en gögnin
miða við stöðu hvers lands í árslok.
Þar kemur m.a. fram að innvegin
mjólkurframleiðsla Norðurlandanna
árið 2022 var alls 12,2 milljarðar
kílóa. Eftir nokkuð reglulega
aukningu mjólkurframleiðslunnar
síðustu árin, hefur hún nú staðið
nokkuð í stað og raunar dregist
aðeins saman frá metárinu 2020,
þegar NMSM tók síðast saman
tölur um mjólkurframleiðslu
Norðurlandanna, en það ár fór
hún í 12,4 milljarða kílóa. Kúabú
landanna voru 16.814 talsins í árslok
2022, sem er fækkun um 10,7% frá
árinu 2020 þegar þau voru 18.833.
Finnska mjólkurframleiðslan
á miklu undanhaldi
Líkt og undanfarin ár er
danska mjólkurframleiðslan
langumsvifamest innan Norður-
landanna en dönsku kúabúin
framleiddu í fyrra 5,7 milljarða
kílóa, eða um 47% allrar mjólkur
þessara fimm landa. Danska
mjólkurframleiðslan jókst lítillega
frá árinu 2020, eða um 0,1%.
Næstframleiðslumesta landið
er Svíþjóð með 2,8 milljarða
innveginna kílóa og þar varð örlítill
samdráttur í heildarframleiðslunni
frá árinu 2020, eða um 0,3%.
Finnland sker sig nokkuð úr varðandi
þróun mjólkurframleiðslunnar en
þar varð heildarsamdrátturinn 8,9%
á þessu tveggja ára tímabili eða um
211 milljónir kílóa.
Meiri samdráttur var þar en öll
landsframleiðslan hér á landi!
Noregur er í fjórða sæti
yfir heildarframleiðslu
Norðurlandanna
og jókst fram-
leiðslan þar
lítillega frá árinu
2020, eða um
0,9%. Ísland rekur
svo lestina með 1,2%
framleiddrar mjólkur
Norðurlandanna auk
þess sem hér varð
samdráttur í
framleiðslu um 2%
frá árinu 2020.
Meðalbúið að leggja inn 723 tonn
Ársframleiðsla norrænu kúabúanna
er auðvitað nátengd bústærðinni,
en að jafnaði lagði hvert bú inn
723 þúsund kíló á síðasta ári, sem
er aukning um 67 þúsund kíló á
tveimur árum. Þessi aukning, rúm
30 tonn á ári, hefur verið nokkuð
jöfn undanfarinn áratug og samhliða
fækkun búa hafa þau sem eftir eru
aukið við sig. Rétt eins og undanfarin
ár bera dönsku búin höfuð og herðar
yfir önnur bú á Norðurlöndunum
og raunar í allri Evrópu. Þar var
hvert bú að leggja inn að jafnaði
2,4 milljónir kílóa árið 2022 sem er
1,3 milljón kílóum meira en sænsku
búin leggja inn að meðaltali og eru
þau þó þau næstframleiðslumestu
á Norðurlöndum. Minnst er
framleiðsla hvers kúabús í Noregi,
en þar voru lögð inn að jafnaði 214
þúsund kíló frá hverju búi árið 2022.
Eins og áður segir þá jókst innvigtun
kúabúa Norðurlandanna töluvert á
þessu tveggja ára tímabili en minnst
aukning varð á Íslandi, eða 5,1%.
Mest aukning varð á meðalinnleggi
danskra búa og jókst framleiðslan
þar um 11% á þessu tveggja
ára tímabili.
78 kýr að meðaltali
Undanfarin ár hefur meðalbústærð
á Norðurlöndunum aukist jafnt
og þétt og virðist á engan
hátt vera að hægjast á
þeirri þróun. Um
síðustu áramót
var meðalbúið
komið í 78,2 kýr
og jókst bústærðin
frá árinu 2020 um
8,1%, eða um nærri
6 kýr á hvert bú.
Það er mjög svipuð
aukning og hefur verið
undanfarin ár, u.þ.b. 3
kýr á ári á hvert bú.
Breytingin innan
Norðurlandanna er
þó mjög misjöfn. Þannig fjölgaði
kúm í íslenskum fjósum um 3 á
tveggja ára tímabili og norsku fjósin
stóðu í stað, raunar varð þar örlítil
meðaltalsfækkun á þessu tveggja ára
tímabili, eða um 0,1 árskú.
Fjósin sem voru stærst fyrir, þ.e.
annars vegar Danmörk og hins vegar
Svíþjóð, héldu áfram að stækka mest
og nú er meðalkúabúið í Danmörku
komið í 232 kýr og sænsku búin
komin í 109 kýr. Þriðju stærstu
búin eru í Finnlandi en þar eru að
meðaltali 53 kýr í hverju fjósi og
hér á landi 52 kýr.
Sem fyrr segir eru norsku búin
langminnst, með tæplega 29 kýr að
jafnaði.
Meðalkýrin að skila
9,2 tonnum í afurðastöð
Þegar horft er til afurðasemi kúnna
á milli landanna er staðan nokkuð
ólík eftir því hvaða land á í hlut,
enda hefur þar áhrif bæði kúakynið
sem er notað við framleiðsluna og
það umhverfi sem kúabúin starfa
við. Oftast er það svo að þegar
meðalafurðir eru metnar, er oft notast
við skráðar skýrsluhaldsafurðir, þ.e.
uppgefnar afurðir búa sem taka þátt
í skýrsluhaldi.
Íslensku kýrnar hálfdrættingar
danskra stallsystra
NMSM samtökin, sem eru samstarfsvettvangur Norðurlandanna
um ýmis málefni sem snerta mjólkurframleiðslu, taka reglulega
saman margvíslegar áhugaverðar upplýsingar sem tengjast þróun
mjólkurframleiðslu Norðurlandanna.
Mjólkurframleiðsla Norðurlandanna, ýmsar tölulegar upplýsingar.
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Danskar Holstein-kýr eru með þeim afurðamestu í heimi. Mynd /SnS
LANDGRÆÐSLA
Mosaskoðun við lækjarjaðar.
Barnamosi (Sphagnum) úr mýri.
Bændablaðið
www.bbl.is