Bændablaðið - 02.11.2023, Page 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Nýr kynbótamatsútreikningur
hefur verið settur inn í Uppruna-
ættbók íslenska hestsins, World-
Feng, fyrir alls 492.564 hross.
F j ö l d i
a l þ j ó ð l e g r a
kynbótadóma
(fullnaðardóma)
sem lágu til
g r u n d v a l l a r
útreikningnum
að þessu sinni
var 36.160 og
skiptist eftir
löndum þannig: Ísland 22.379,
Svíþjóð 4.459, Þýskaland 3.721,
Danmörk 2.819, Noregur 1.279,
Austurríki 387, Finnland 294,
Holland 319, Bandaríkin 228,
Kanada 117, Sviss 110, Bretland 39
og Færeyjar 9. Alls var tekið tillit
til 1.027 arfgerðargreindra hrossa í
útreikningum fyrir gangráðinn.
Kynbótamat fyrir ‚Stóðhestaval‘
og ‚Valparanir‘ hefur einnig verið
uppfært. Þær upplýsingar eru
ómetanlegar fyrir ræktendur þegar
verið er að huga að næstu kynslóð
hrossa.
Almennt um kynbótamatið
Aðferðin sem notuð er til að reikna
út kynbótamat gengur jafnan undir
heitinu BLUP (Best linear unbiased
prediction) en þetta er gríðarlega
umfangsmikil og öflug aðferð.
BLUP gildin (þ.e. kynbótamatið)
endurspegla erfðafræðilega getu
hestanna, í samanburði við öll önnur
hross innan stofnsins.
Kynbótamat dregur saman
allar tiltækar tölulegar upplýsingar
frá kynbótadómum allra hrossa
í stofninum í heildarniðurstöðu
sem endurspeglar gildi hrossa til
framræktunar. Gildið ræðst af röðun
hrossa út frá því hversu mikils er
að vænta af viðkomandi hrossi og
framlag þeirra til ræktunarstarfsins.
Almennt er ekki ráðlegt að nota
hross til undaneldis sem eru undir
100 í aðaleinkunn kynbótamats,
þar sem þeirra framlag er líklegt
til að vera í neikvæða átt, miðað
við opinbert ræktunarmarkmið
íslenska hestsins. Hross með 116 í
aðaleinkunn kynbótamats, með 5 í
staðalfrávik og 87% öryggi þýðir
einfaldlega að hrossið hefur með
87% öryggi kynbótagildi milli 111
og 121 stig. Það er því sannarlega
afbragðs undaneldisgripur og
tilheyrir hópi u.þ.b. 15% efstu
hrossa í hrossastofninum hvar sem
er í heiminum
Ávallt er mikilvægt að gera sér
grein fyrir öryggi kynbótamats gripa.
Kynbótamat með öryggi undir 60%
verður að túlkast með varúð. Öryggi
byggir á magni upplýsinga (fjölda
kynbótadóma skyldra einstaklinga)
að baki útreikningum og er því hátt
öryggi á kynbótamati hrossa sem eiga
mörg sýnd afkvæmi. Kynbótamat
þeirra endurspeglar vel gildi þeirra
til framræktunar, þ.e. hverju þau
skila til afkvæma sinna, miðað við
opinbert ræktunarmarkmið fyrir
íslenska hestinn.
Kynbótamatið er kvarðað
út frá meðaltali hrossa fæddra
á Íslandi síðustu 10 árin og var
viðmiðunarhópurinn að þessu sinni
því fæddur árin 2014–2023. Meðaltal
kynbótamats allra eiginleika utan
eins, er skorðað við 100 og hvert
staðalfrávik eðlisfars eiginleika eru
10 stig. Nær öll hross í stofninum
liggja því milli 70 og 130 stig með
örfáum hrossum utan þeirrar spannar.
Kynbótamat fyrir hæð á herðar er birt
í sentimetrum og miðast þá við frávik
frá meðalhæð þeirra hrossa sem mæld
eru á þessu 10 ára tímabili. Sé t.d.
gildi stóðhests +1.5 er spáð að hann
gefi afkvæmi sem eru 1.5 sm hærri
en meðalhrossið.
Alls er reiknað kynbótamat fyrir
24 eiginleika sem flestir eru metnir á
kynbótasýningum, þ.e. hæð á herðar;
höfuð; háls, herðar og bógar; bak og
lend; samræmi; fótagerð; réttleiki;
hófar; prúðleiki; tölt; hægt tölt;
brokk, skeið; greitt stökk; hægt stökk;
samstarfsvilji; fegurð í reið; fet;
Aðaleinkunn (AE); AE sköpulags;
AE hæfileika; AE án skeiðs; AE
hæfileika án skeiðs; og mætingu til
kynbótadóms.
Leiðréttingar fyrir kerfisbundnum
umhverfisáhrifum
Við útreikninga kynbótamats er tekið
tillit til kerfisbundinna umhverfisþátta
sem hafa áhrif á frammistöðu
gripanna. Með því að leiðrétta
fyrir þessum umhverfisþáttum eru
dómarnir gerðir samanburðarhæfir
milli einstaklinga innan stofnsins.
Leiðrétt er fyrir þremur þáttum en
það er aldur og kyn einstaklings
og sýningarárið þegar hross hlýtur
sinn hæsta aldursleiðrétta dóm.
Varðandi aldur og kyn þá eru t.d.
stóðhestar kerfisbundið fyrri til en
hryssur og hrossin verða kerfisbundið
betri með auknum aldri. Þar sem
dómstörfin þróast ár frá ári og
samanburðarhópurinn verður
sífellt betri, verður jafnframt til
kerfisbundinn munur á niðurstöðum
milli ára, þ.e. sýningarára.
Þróun á kynbótamati
Stöðugt er verið að vinna að því
að bæta kerfið þannig að það
þjóni tilgangi sínum sem allra best
og með sem öruggustum hætti.
Talsverðar breytingar voru gerðar á
kynbótamatinu árið 2020 og 2022
[sjá 8. tbl. Bændablaðsins 2020].
Breytingarnar höfðu þau áhrif að
mikil aukning varð í fjölda þeirra
hryssna sem hlutu afkvæmaverðlaun.
Haustið 2020 voru þær alls 31 talsins
og haustið 2022 voru þær 20 talsins,
samanborið við 5-9 hryssur á ári
flest árin á undan. Viðmið þannig
að hryssa nái heiðursverðlaunum
fyrir afkvæmi er að hún nái að
lágmarki 116 stigum í aðaleinkunn
kynbótamats eða aðaleinkunn án
skeiðs og eigi að minnsta kosti 5
dæmd afkvæmi. Í ár eru það 11
hryssur sem hljóta viðurkenningu
fyrir afkvæmi.
Alltaf þarf að rýna til gagns og
jafnvel endurskoða gildandi viðmið
en svo virðist sem kerfið sé að
komast í visst jafnvægi. Þess ber að
geta að samræming varð á veitingu
viðurkenninga fyrir afkvæmahross
árið 2019 innan aðildarlanda FEIF
þannig að núna eru hvarvetna
sömu viðmið. Viðurkenning á
afkvæmahrossum ber að skoða
sem mikinn heiður og afrek og
endurspeglar sannarlega gildi hrossa
til framræktunar.
Við síðustu breytingu á
kynbótamatinu var hætt að leiðrétta
fyrir því landi sem hrossið er sýnt í,
en það hafði verið gert í áratugi á
undan. Þrátt fyrir að enn séu marktæk
áhrif sýningarlands, var ekki lengur
talin þörf á að meðhöndla það sem
kerfisbundinn umhverfisþátt, enda
umhverfisaðstæður kynbótasýninga
orðnar afar staðlaðar. Breytingar á
kynbótamati einstakra hrossa voru
hvað mestar hjá stóðhestum sem áttu
mörg afkvæmi dæmd í sama landi.
Einhverjir stóðhestar voru líklega
ofmetnir í þáverandi kynbótamati
í alþjóðlegum samanburði en aðrir
að sama skapi vanmetnir. Þegar á
heildina er litið varð ekki veruleg
breyting á röðun hrossa sem sýnd
eru í sama landi en breytingar urðu
á alþjóðlegri röðun.
Framtíðin er björt
Hér að neðan má sjá töflu yfir þau
20 hross, stóðhesta og hryssur, sem
hæst eru í kynbótamati haustið
2023, raðað eftir aðaleinkunn
kynbótamats. Öll hrossin eiga
foreldra með eigin dóm. Öll hrossin
eru dæmd að undanskildum fjórum
sem eru 3 vetra og yngri. Þau
hross hafa eðlilega mat með lægsta
öryggið, önnur hafa hátt öryggi
eða yfir 80%. Afkvæmadæmdu
hestarnir tveir, Álfaklettur og Skýr,
eru með mat með afar hátt öryggi
enda hafa þeir sannað sig sem
afbragðs undaneldishestar og hlotið
viðkenningu fyrir það. Þrjú hross eru
erlent fædd og aðeins 4 stóðhestar
eru á listanum. Athugið að öll þessi
hross á listanum hafa yfir 130 stig í
kynbótamati og eru þau í hópi 182
hrossa með þann árangur. Samtímis
ber að hafa í huga að kynbótamatið
er reiknað fyrir tæplega 500.000
einstaklinga svo þessir úrvalsgripir
sem birtast hér telja til 0,004%
stofnsins.
Hryssurnar á listanum eiga engin
dæmd afkvæmi. En almennt raðast
hryssur ofar í kynbótamatinu ef
þær eiga hlutfallslega mörg dæmd
afkvæmi. Ástæða þessa er áhrif
eiginleikans „mæting til dóms“ enda
sá eiginleiki með talsvert mikið vægi
þar sem hann er mjög arfgengur. Það
er að líkindum viss skekkja milli
kynjanna, og er ástæðan aðallega
sú að kynjahlutfall afkvæma sem
koma til dóms er skekkt enda
vantar nánast alla gelta hesta. Þessi
meinta skekkja mun leiðréttast
um leið og gögn frá íþrótta- og
gæðingakeppni verða tekin með
í útreikninga kynbótamatsins
enda margir geldingar og jafnvel
stóðhestar sem koma þar fram
en ekki í kynbótadómi. Með því
að innleiða mætingu í dóm inn í
kynbótamatið var dregið úr vægi
lítilsháttar mismunar í aðaleinkunn
inn í kynbótamatið, þar sem að bara
það að mæta hefur mikið vægi. Þetta
er kostur og ætti að einhverju leyti
að vega upp á móti ef raunverulegt
dómamisræmi er til staðar.
Þróun kynbótamatsins hefur gert
það að verkum að skali kynbótamats
hefur teygst í seinni tíð og fjöldi
hrossa sem falla utan 70-130 stiga í
aðaleinkunn hefur frekar aukist, ekki
síst á Íslandi. Þetta er viss skekkja
upp á við en ekki óraunhæf mynd.
Þetta helgast af tiltölulega
góðri mætingu kynbótahrossa
og afkvæma þeirra hérlendis og
tiltölulega óöruggu mati hrossa
neðst á skalanum þar sem engar
upplýsingar eru að baki og þar af
leiðandi öryggi matsins mjög lágt.
Því er nefnilega þannig háttað að
sama hversu gott kynbótamatskerfið
verður, þá endurspeglar það þau
gögn sem liggja til grundvallar
og þar sem skortur er á gögnum
takmarkast upplýsingar kerfisins.
Í nýbirtri grein í Bændablaðinu
um Erfðaframför í íslenska
hrossastofninum – Hvernig er dreifing
einkunna á kynbótasýningum og
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Niðurstöður kynbótamats hrossa
haustið 2023
Elsa Albertsdóttir.
Nafn Aldur Aðaleinkunn Aðaleinkunn Sköpulag Hæfileikar Hæfileikar Öryggi Kynbótamat fyrir Hlutfall dætra
án skeiðs án skeiðs mætingu til dóms með dóm (%)
Álfamær frá Prestsbæ 8 141 129 130 136 123 82% 135 0%
Staka frá Hólum 7 140 139 133 133 134 82% 130 0%
Arney frá Ytra-Álandi 4 138 133 125 133 129 82% 135 0%
Blákápa frá Prestsbæ 2 137 129 130 131 123 62% 134 0%
Díva frá Kvíarhóli 6 137 136 134 130 129 82% 135 0%
Pála vom Kronshof 6 137 134 121 134 133 82% 124 0%
Dimma frá Hjarðartúni 8 137 130 127 132 126 83% 131 0%
Nóta frá Sumarliðabæ 2 4 137 128 114 136 128 82% 131 0%
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 10 136 131 130 131 125 94% 134 67%
Dimmadís frá Sumarliðabæ 2 0 136 131 129 131 126 64% 133 0%
Dyngja frá Feti 6 136 131 124 133 128 82% 130 0%
Strengur frá Þúfum 4 136 129 130 131 123 81% 128 0%
Ársól frá Sauðanesi 5 135 124 119 133 121 82% 129 0%
Þrá frá Prestsbæ 9 135 128 122 131 124 82% 127 0%
Ástríða frá Prestsbæ 6 135 125 125 131 120 82% 129 0%
Lýdía frá Eystri-Hól 8 135 141 135 127 135 81% 133 0%
Skýr frá Skálakoti 16 135 132 135 128 125 98% 133 60%
Ágúst fra Víðikot 0 135 128 127 130 123 64% 131 0%
Edda frá Rauðalæk 5 135 129 124 131 125 82% 129 0%
Barónessa frá Prestsbæ 1 135 130 129 129 125 66% 130 0%