Bændablaðið - 02.11.2023, Síða 65
65Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Mynd 1: Dreifing á kynbótamati allra hrossa í íslenska hrossastofninum. Kynbótamat 99,8% allra hrossa liggur
á milli 70 og 130 stig. Guli kassinn vísar til dæmis í textanum þar sem samband kynbótamats, öryggis og
staðalfráviks er skýrt.
í kynbótamati? er ljóst að íslensk
hrossarækt stendur með miklum
ágætum. Aukning á erfðaframförum
eða ræktunarhraðinn hefur
rúmlega þrefaldast síðan BLUP
kynbótamatið var tekið í notkun. Öll
umgjörð ræktunarstarfsins, sýninga,
dómstarfa, gagnabanki Worldfengs
og þekking dómara, sýnenda og
ræktunarfólks hefur vaxið og batnað
og hefur skilað sér í auknu öryggi
matsins og auknum úrvalsstyrk.
Það er óyggjandi staðreynd að
flestir íslenskir hrossaræktendur
velja til undaneldis hross sem eru
vel yfir meðaltali í kynbótamatinu
og það er lykillinn að hinum öru
erfðaframförum sem hafa náðst í
stofninum á síðustu áratugum.
Það ber að fagna þeim góða
árangri sem náðst hefur í ræktun
hrossa á Íslandi. Hvort sem litið
er til niðurstaðna kynbótamats
eða þegar hross eru borin saman á
alþjóðlegum grunni eins og á nýliðnu
heimsmeistaramóti.
Það er hægt að horfa björtum
augum til framtíðar ef áfram heldur
eins og verið hefur. Með nýjum
aðferðum þar sem erfðamengisúrvali
byggðu á víðtæku DNA sýnatökum
og greiningum verður bætt við
hefðbundið kynbótamat, má
búast við enn hraðari og öruggari
framförum. Þarna gæti, og ætti,
íslenski hesturinn að vera í fararbroddi
meðal annarra hrossakynja.
Vonandi næst samtakamáttur til
að efla nauðsynlegt rannsóknarstarf
og þróun á þessu spennandi sviði.
Með kærri ræktunarkveðju,
Elsa Albertsdóttir
hrossaræktarráðunautur.
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Lyftu á
gæðum