Bændablaðið - 02.11.2023, Síða 70
70 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
Kubota dráttarvélar hafa getið sér
gott orðspor hér á landi, enda á
hagstæðu verði og áreiðanlegar.
Þær hafa þó aldrei verið þekktar
fyrir að bjóða upp á mikinn lúxus
því stefna framleiðandans er að
gera hlutina einfalda og þar með
færri atriði sem geta bilað.
Að utan er þessi vél nútímaleg og
mjög svipuð flestum hefðbundnum
traktorum. Helsti munurinn er að
þessi er appelsínugulur, ekki grænn,
rauður eða blár. Ámoksturstækin
og felgurnar eru í sama lit. Dekkin
virðast minni en á mörgum traktorum
í þessum stærðarflokki – sérstaklega
framdekkin. Annað sem vekur athygli
er að ökumannshúsið er staðsett
nokkuð framarlega og er afturrúðan
nánast í línu við afturöxulinn. Óvíst
hvort þetta hafi nokkur áhrif önnur
en að útsýnið að dráttarkróknum
getur verið skert.
Fyrstu viðbrögð þegar stigið
er um borð er að allt er hrátt og
einfalt. Sést það til að mynda á
því að hægra megin við sætið eru
fjórar mekanískar stjórnstangir
fyrir vökvaúrtökin, í staðinn fyrir
hátæknilegar rafmagnsstýringar.
Þetta er einfalt og gott kerfi sem bilar
seint og er ódýrt að laga ef eitthvað
fer aflaga. Það er hvorki hægt að
segja að innréttingin sé falleg eða
ljót, enda er þetta bara traktor þar
sem allt snýst um að vera praktískt og
endingargott við mikla vinnu.
Fjaðrar prýðilega
Ökumannshúsið er á gormafjöðrun
á meðan framhásingin er á
vökvafjöðrun. Þótt fjöðrun hússins
gæti talist frumstæð í samanburði
við þær vélar sem eru með
loftpúðafjöðrun, þá ræður hún
býsna vel við ójafnt undirlag, hvort
sem brunað er eftir þjóðvegi eða
akri. Ökumannssætið er af þýsku
bergi brotið – frá framleiðandanum
Grammer, sem þykir gera gæðavörur.
Það er með loftpúðafjöðrun og fjaðrar
bæði upp og niður, sem og fram og
aftur. Ekki er hægt að segja annað
en að Kubota M6 sé vel fjaðrandi og
almennt þægilegur traktor.
Útsýnið úr ökumannshúsinu er
til sóma. Ámoksturstækin sjást þó
þau séu í neðstu stöðu – ekki þar
sem nefið er svo lágt, heldur er það
svo mjótt. Þá er þakgluggi til að
ökumaðurinn sjái í tækin í hæstu
stöðu. Húsið er sérstaklega rúmgott
og kemst bóndi í fullri stærð vel fyrir
í farþegasætinu.
Hljóðeinangrunin er nokkuð góð
og í þjóðvegaakstri undir litlu álagi
þarf rétt aðeins að hækka róminn til
að ræða við farþegann sér við hlið.
Hægt er að þakka gírkassanum að
vissu leyti fyrir þennan eiginleika,
enda er hæsti gírinn mjög hár og
snýst vélin á lágum snúningum þegar
þeyst er um á hámarkshraða, sem eru
fjörutíu kílómetrar á klukkustund.
Skiptingar stífar
Gírkassinn á það til að vera með
harðar skiptingar, sérstaklega þegar
hann er kaldur. Skiptingarnar verða
liprari þegar allt er búið að hitna,
en finnur ökumaðurinn samt sem
áður vel fyrir hverri gírskiptingu.
Gírkassinn er með þrjú drif, sem
eru með átta kúplingsfría gíra hvert.
Kassinn býður upp á sjálfskiptingu
eða að ökumaðurinn skipti sjálfur
milli þrepa með því að ýta eða toga
í stjórnpinnann fyrir gírana, sem
staðsettur er fremst á stjórnborðinu.
Þegar gírkassinn er í sjálfskiptingu á
hann til að vera seinn að skipta niður
þegar álagið eykst upp brekkur og
dregur þá niður í vélinni.
Við stýrið er vendigír eins og í
flestum traktorum. Einnig er hægt
að velja akstursstefnu með takka á
stjórnpinnanum fyrir gírana. Hægt
er að kveikja á sjálfvirkri kúplingu
og er því hægt að nema alveg staðar
með því einu að ýta á bremsufetilinn.
Þessi sjálfvirka kúpling er þó ekki
alveg fumlaus og vilji maður losna
við alla rykki er betra að nota gamla
góða kúplingsfetilinn í vinnu eins
og að safna rúllum. Stjórnpinninn
fyrir ámoksturstækin er nokkuð fyrir
ofan og til hliðar við stjórnborðið.
Því getur verið ankannalegt að beita
honum og nær maður ekki að vera
alveg slakur með höndina.
Kubota M6-132 er liprari en
gengur og gerist. Hún er útbúin
svokölluðum Bi-Speed búnaði
sem snýr framdrifinu hraðar en
afturdrifinu og klórar hún sig í enn
þrengri beygju en þegar hún er
einungis í afturdrifinu. Mótorinn er
6,1 lítra en fjögurra strokka, þannig
að hver stimpill er býsna stór, sem
skilar góðu togi. Þá er hann 133
hestöfl við flestar aðstæður, en undir
álagi losnar um 20 auka hestöfl.
Skjár með ýmsa möguleika
Vélin í þessum prufuakstri var útbúin
sjö tommu snertiskjá, sem staðsettur
er rétt framan við stjórnborðið. Þetta
er aukahlutur sem gefur notandanum
möguleika á að nálgast mun meiri
stillingar á vélinni en ella. Með
skjánum er til að mynda hægt að
afmarka gírana sem vélin notar og
velja byrjunargír, en óþarfi er að taka
af stað í lægsta gír.
Skjárinn er með Iso-Bus tengi
sem fer beint í aukahluti eins og
rúllusamstæðu og áburðardreifara.
Þá getur skjárinn tengst við GPS
kúlu sem gefur ýmsa möguleika
þegar kemur að nákvæmnisbúskap
og myndavél til að sjá betur á
blinda punkta. Valmyndin er ekki sú
nútímalegasta, en þeir sem eru með
metnað fyrir að nýta alla eiginleika
dráttarvélarinnar ættu að geta ráðið
fram úr henni.
Að lokum
Hjá Þór hf. kostar Kubota M6 frá
14.787.000 krónum, en vélin í
þessum prufuakstri myndi vera á
16.024.000 krónur miðað við gengi
evru 146. Öll verð eru án vsk. Þessi
traktor er engin lúxuskerra, en með
flestum þeim búnaði sem bændur
vantar, eins og Load-Sensing
vökvadælu, fjóra hraða á aflúrtaki,
frambúnað, skotkrók, loftkælingu
o.s.frv. Notkun hennar er blátt
áfram og ættu flestir bændur að vera
snöggir að tileinka sér alla eiginleika
hennar.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
– Prufuakstur á Kubota M6-132
Kubota M6-132 er traktor sem gerir allt, en þó með minni lúxus en í sumum tilfellum. Appelsínuguli einkennislitur Kubota er áberandi og þekkist tegundin
úr mikilli fjarlægð. Myndir / ÁL
Hér er flóknum rafmagnsstýringum á vökvasneiðum fórnað í nafni einfaldleika
og áreiðanleika. Snertiskjár fyrir nákvæmar stillingar og Iso-Bus.
Húsið er nokkuð framarlega miðað við afturdekkin.
Útsýnið fram á við er með sóma. Mjúkt sæti, fjöðrun á húsi og hljóðeinangrun gera notkun Kubota M6 nokkuð
þægilega. Farþegasæti rúmar fullorðna.