Úrval - 01.06.1965, Qupperneq 74
72
ÚRVAL
sem listamanns, heldur og í ger-
vallri lífssögunni. Það mætti jafn-
vel segja, að nútímalistin fæðist
með þessu verki. Enda þótt imp-
ressionistinn Cézanne hefði áður
boðað það, sem í vændum var, var
myndin „Les Demoiselles d’Avig-
non“ fyrsta ótvíræða táknið um
hina nýju stefnu kúbismans. Og
kúbisminn hefur reynzt áhrifam'esti
,,isminn“ í allri nútímalist; áhrifa
hans hefur gætt á öllum sviðum
hagnýtra tista, allt frá húsagerð til
húsgagnasmiða. Picasso gerði sér
ljóst, að hér var um nýja og lífræna
liststefnu að ræða, sem hlaut að
sigra hinar eldri stefnur. Hann
sneri því baki við hinni dauða-
dæmdu „ljósmyndalist“, sem list-
skólarnir kenndn, og skapaði sitt
fyrsta verk i stíl kúbismans. í síð-
ari verkum Picassos, og einnig i
verkum félaga lians, .Braque og
Juan Gris, varð þessi nýja stefna
öflugri og öll túlluin hennar ein-
faldari.
Nútíma auglýsingateikning er eitt
af þeim sviðum þar sem áhrifa
kúbismans gætir mjög, og áhrif
hans á form allskonar iðnaðar-
varnings blasa hvarvetna við, t. d.
hinar beinu linur nýtízku húsgagna.
Þessi einfaldleiki formsins staf-
ar beinlínis frá kúbismanum og
óbeinlínis frá liinni dásamlega
frumlegu mynd, sem Picasso mál-
aði árið 1907. Sköpun kúbismans,
ásamt þeim gífurlegu áhrifum sem
sú stefna liefur haft á svo mörgum
sviðum nútímalífs, var mesta fram-
lag Picassos til listar og lífs vorra
daga.
Mikinn hluta þess tíma, sem
Picasso hefur dvalið í Frakklandi,
hefur hann búið nálægt sjó, enda
hefur innblástur hans verið frjó-
astur í slíku umliverfi. Þrátt fyrir
vaxandi frægð og allgóð efni, fór
að bera á því upp úr 1932, að hjóna-
band þeirra Pablos og Olgu væri að
fara út um þúfur. Um þetta leyti
hafði hann fengið nýja og fallega
fyrirsætu, Marie-Therése Walter að
nafni, og mörg verk Picassos á
þessu tímabili urðu til fyrir áhrif
hennar. Að sjálfsögðu hafði þetta
nána samband Picassos við hina
fögru fyrirsætu óheppileg áhrif á
hjónaband hans ogOlgu.Þau skildu.
Picasso sökkti sér niður i starf
sitt. Hann málaði og mótaði mynd-
ir og orti jafnvel ljóð, sem lilutu
lofsamleg ummæli frægra franskra
rithöfunda.
Árið 1931) braust borgarastyrjöld
út á Spáni og hryllilegum ógnum
hennar linnti ekki í þrjú ár. Pic-
asso var ákafur stuðningsmaður
lýðveldissinna, og sigur Francos
og fasistanna varð þess valdandi,
að hann gat ekki framar heimsótt
ættland sitt. Á fyrstu mánuðum
styrjaldarinnar bauð spánska lýð-
veldisstjórnin Picasso forstöðu
Prado listasafnsins i Madrid. Pic-
asso hafði ekki haft teljandi áhuga
á stjórnmálum áður, en hann þáði
boðið til þess að votta málstað lýð-
veldissinna samúð sína. Tæpu ári
eftir lok spönsku borgarastyrjaldar-
innar varð Picasso vottur að ó-
sigri Frakklands, sem hafði verið
honum sem annað föðurland svo
lengi. Skömmu fyrir lok síðari
heimsstyrjaldarinnar gekk Picasso
í franska kommúnistaflokkinn. í