Úrval - 01.10.1969, Page 20

Úrval - 01.10.1969, Page 20
ÚRVAL ið fullan arð fyrr en með næstu kyn- slóð. Gott dæmi um þetta er gróður- setning skóga. Túnis var eitt sinn grænt og frjósamt land, en rányrkja og vanhirða öldum saman hefur breytt landinu í hálfgerða eyði- mörk. Nú á að „yngja“ landið upp, og í því augnamiði eru gróðursett næstum 400.000 tré árlega. Ein helzta vonin um bjartari framtíð er bundin við ferðamanna- straum til landsins. Túnis getur boð- ið upp á 750 mílur af pálmaströnd- um, þar sem sandurinn er ýmist næstum hvítur eða gullinn. Margir bæirnir líta út svipað og ævintýra- bæirnir í „Þúsund og einni nótt“. Gamla hverfið í Túnisborg, sem kallast „medina“, hefur vart breytt um svipmót öldum saman. Göturn- ar eru of þröngar fyrir bifreiðir. Loftið er þrungið annarlegum ilmi, og kveinandi sótthitakenndir tónar arabiskrar tónlistar berast út úr verzlunum og íbúðarhúsum, þar sem hlerar eru fyrir gluggum. Fyrir nokkrum árum komu sárafáir skemmtiferðamenn til landsins, en í fyrra var tala þeirra komin upp í 320.000. Og þeir eyddu 44 milljónum dollara í landinu. En Túnis þarf enn að glíma við erfið vandamál. Margir íbúarnir eru enn sárafátækir og lifa mjög frum- stæðu lífi. Vart hefur orðið við nokkurn óróa meðal stúdenta. Sum- ir Túnisbúar kvarta yfir því, að Bourguiba hneigist um of til ein- ræðisstjórnar. I LÝÐRRÍÐIÐ KEMUR SÍÐAR Túnis er sannarlega ekki lýðræð- isríki. Hvatningin til áframhaldandi byltingar Bourguiba heldur ein- göngu áfram að berast frá sama stjórnmálaflokknum sem hann stofnaði á fjórða áratug aldarinnar, Sósíalistaflokknum Destour. Og það eru ekki leyfðir neinir andstöðu- flokkar né dagblöð í andstöðu við stjórnina. Flokkurinn er að vísu sósíalskur, en þó hægfara. Og hann er mjög andsnúinn Marxisma. Öll- um er frjálst að ganga í flokkinn, og á flokksfundum eru leyfðar frjálsar umræður. En þegar ákvörð- un hefur verið tekin, eru allir skuld- bundnir til að framfylgja henni. Bourguiba lýsir oft yfir aðdáun sinni á bandarísku og brezku lýð- ræði, en hann álítur að Túnis sé ekki enn komið á það stig, að lýð- ræði sé þar mögulegt. Það eru tvær hliðar á persónu- leika Bourguiba. Hann á hús í heimabæ sínum, Monostir, sem er svo óbrotið, að það virðist næstum fátæklegt. En hann hefur líka látið reisa tvær dýrar hallir og fimm nokkuð smærri stórhýsi víðs vegar um land. Hann segist hafa gert það til þess að auka hróður landsins. Og Bourguiba hefm- þegar látið reisa sér grafhýsi, svo að komandi kynslóðir gleymi ekki nafni hans. Hann hefur látið flytja 12 forfeður sína í grafhýsi þetta. Og í fyllingu tímans mun líkami Haleile Bourgu- iba verða borinn inn í miðherbergið með sinni háu hvelfingu og lagt þar til hvíldar í viðurvist gráf- kvenna í samræmi við fornar arab- iskar venjur. En það er ekki komið að því enn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.