Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 113

Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 113
BARNI LINDBERGS RÆNT 111 meðan Reilly dró upp mýnd sína af framkvæmd afbrotsins. „Ofurstinn og kona hans sitja að kvöldverði. Þau sjá hvorki til aðal- dyranna né bakdyranna. Svo kem- ur merkið skyndilega: BRAUTIN ER AUÐ. ÞAU ERU AÐ BORÐA. Merkið? Símahringingin frá „Red“ Johnson." Með sinni djúpu og áhrifamiklu rödd hélt Reilly áfram, og minnt- ist á hina merkilegu þátttöku dokt- ors Condons í málinu og talaði af fyrirlitningu um rithandarsýnis- hornin, sem lögreglan hafði tekið hjá Hauptmann. „Ég skrifaði eins og mér var sagt að skrifa,“ hafði hann sagt, —• og hafði nokkurt vitni andmælt því? Hvað viðvék bréfunum margum- töluðu og vitnaleiðslum sóknarað- ilans, hélt Reilly áfram, ætti dóm- arinn eftir að vekja athygli kvið- dómsins á því, að þótt þarna ættu í hlut sérfræðingar á vissum svið- um, voru það þó ekki annað en líkur, sem þeir höfðu fram að færa. Og hvaða ályktun mátti draga af því? Alls ekki það, að sérfræðing- ar hafi ávalt rétt fyrir sér. „Það er auðvitað mjög mikilsvert fyrir sækjandann,“ hélt Reilly áfram, að geta fengið slegið föstu, að bréfið í barnaherberginu hafi verið ritað af Hauptmann. Það er nefnilega eina atriðið, sem gæti sannað veru Hauptmanns í barna- herberginu 1. marz. En þessa sönn- un vantar. Er þetta nægilegt til að kveða upp þungan dóm?“ Reilly endaði mál sitt með rödd, sem hljómaði af sannfæringu: — „Dömur mínar og herrar í kvið- dóminum, — ég trúi ekki öðru en að Richard Hauptmann sé algjör- lega saklaus af því að vera morð- ingi. Og ég er sannfærður um, að jafnvel Lindberg ofursti ætlast ekki til annars af yður en að þér gerið skyldu yðar með tilliti til þeirra sönnunargagna, sem fyrir liggja.“ Reilly hneigði sig léttilega og gekk aftur að borði verjandanna. Og nú var réttarhöldunum frestað til morguns. Skömmu eftir að réttur var sett- ur næsta morgun reis Wilentz úr sæti sínu til að ljúka málsókninni. Einnig hann greip til þess ráðs að taka Biblíuna sér í hönd. Reilly hafði lesið úr Nýja testamentinu, en Wilentz í það gamla. „„Dæmið ekki, svo þér verðið ekki dæmdir“, sagði andmælandi minn. En hann gleymir annarri við- vörun úr Biblíunni: „Og sá sem grandar lífi, mun vissulega sjálfur verða drepinn“.“ f mótsetningu við hið hátíðlega fas Reillys gekk Wilentz fram og aftur fyrir framan stúku kviðdóm- endanna meðan hann talaði. „Hvernig skyldi sá maður vera innrættur, sem gæti fundið upp á að myrða barn Charles og Önnu Lindbergs? Hann hlýtur að hafa kalt blóð í æðum, hlýtur að vera sinnisbilaður og eigingjarn úr hófi fram, fullur af hefndarhug.“ Wilentz rifjaði nú í skyndi upp sönnunargögnin: bréfin frá ræn- ingjanum, stigann, lausnarféð, sem fannst í bílskúrnum og lýsingu doktors Condons og Lindbergs af Hauptmann.... Wilentz brýndi nú raustina og þrumaði út yfir réttar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.