Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 75
TÆKI TIL VARNAR ÁREKSTRUM FLUGVÉLA
73
mun verða um fullkomnustu og
skipulegustu fjarskiptaaðferð í
heiminum. Galdurinn er í því fólg-
inn, að hver flugvél fær sinn ör-
stutta en þó algerlega eigin tíma til
þess að senda upplýsingar, á meðan
hinar flugvélarnar „þegja alveg og
„hlusta“.
CAS-kerfið grundvallast í þriggja
sekúndna heildartímaeiningu, en
hverri þeirra er svo skipt hnífjafnt
í 2000 „tímaeiningar". Fyrsta tíma-
einingin er aðeins ætluð sjálfvirkri
samstillingu allra CAS-kjarnorku-
klukkna í flugvélunum til þess að
ganga úr skugga um, að engri þeirra
hafi ,,fatazt“. Hinum 1999 tímaein-
ingum í hverri þriggja sekúndna
heildartímaeiningu er svo skipt á
milli flugvélanna á sjálfvirkan hátt,
tímaeining á hverja flugvél.
CAS-útvarpsbylgjurnar draga
ekki út fyrir hring, sem hefur lengri
geisla en 265 mílur, og því geta aðr-
ar flugvélar notað sömu tímaein-
ingu utan þess hrings án þess að
trufla flugvélar innan hringsins.
Þegar flugvél flýgur af einu „heild-
artímaeiningarsvæði“ inn á annað
þar sem önnur flugvél er að nota
sömu tímaeiningu og hún sjálf hef-
ur, þá munu tæki hennar fljótt upp-
götva þetta misræmi á sjálfvirkan
hátt og leita sér að einhverri ann-
arri tímaeiningu, sem er „frjáls“ þá
stundina.
LOFTSIGLIN GAR
EFTIR HLJÓÐMERKJUM
Meðan hin örstutta tímaeining
flugvélarinnar stendur yfir, sendir
hún frá sér tvö geysilega þýðingar-
mikil hljóðmerki með alveg ná-
kvæmu millibili. Tölva í annarri
flugvél „heyrir" þessi hljóðmerki og
hún skynjar hina hárnákvæmu
tímaákvörðun þeirra og fær þannig
upplýsingar um flughæð flugvélar-
innar, sem hljóðmerkin sendir, fjar-
lægð þeirrar flugvélar og hversu
hratt þær nálgast hvor aðra.
Það hljómar furðulega, að CAS-
tækin eru ekki stillt þann:g, að þau
gefi aðvörunarmerki með sem
lengstum fyrirvara, þegar tvær
flugvélar eru í mögulegri áreksturs-
stefnu. Þess í stað eru þau viljandi
þannig stillt, að þau hringi að-
vörunarbjöllu með þeim minnsta
fyrirvara, sem getur gefið flug-
manninum nægilegt svigrúm til þess
að forða frá árekstri. Skipunin um
slíkar aðgerðir mun ekki berast
flugmanninum fyrr en 25 sekúndum
fyrir þann tíma, er „fjarlægð milli
flugvélanna verður minnst". Þann-
ig munu tæki þessi ekki neyða flug-
menn til þess að taka að ástæðu-
lausu alls konar dýfur eins og hnís-
ur að leik til þess að fyrirbyggja
aðstæður, sem kynnu ekki að reyn-
ast neitt hættulegar. Vegna hins til-
tölulega litla flughraða flugvélanna
nálægt flugvöllum þýðir þetta 25
sekúndna öryggistímabil, að skipun
um að breyta flughæð mun verða
gefin, þegar tvær flugvélar í
árekstrarstefnu eru enn um 3 mílur
hvor frá annarri. Þegar um mikinn
flughraða er að ræða, munu enn
verða næstum 15 mílur á milli flug-
vélanna, þegar fyrirskipun þessi er
gefin.
Þegar þessi skipun er gefin, mun
jafnframt kvikna á Ijósörvum á
tækjaborðinu og munu örvar þessar