Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 52

Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 52
50 ÚRVAL ræða það fyrirbrigði heimskauta- svæðanna, sem kallað er „whileout" (skuggaleysi), sem lýsir sér í því, að eriginn hlutur varpar frá sér skugga og þannig er ekki hægt að greina jörð frá himni. Þessir heimsskautaflugmenn eru hugdjarfir og jafnvel fífldjarfir menn. En slíkt hið sama má ekki síður segja um menn þá, sem kall- aðir eru „kattafláningarmenn". Það eru menriirnir sem leggja flugbraut- ir og vegi og byggja vinnubúðir á afskekktum stöðum. Þeir hafa leyst af hendi hin furðulegustu afrek, t.d. lagt 500 mílna veg, sem á eng- an sinn líka. Þar er aðeins um vetrarveg að ræða, sem hvílir ein- göngu á ís og snjó í bókstaflegum skilningi. Hann var lagður til flutn- inga á tækjum og ýmsum útbúnaði, sem var of þungur til flutnings í lofti. Þar er um tvöfalda akbraut að ræða. Byrjar hann um 80 mílum fyrir norðan Fairbanks og liggur um skóga og mýrafen, síðan yfir Brooksfjallgarðinn og freðmýrarn- ar allt 'til olíusvæðanna. Það urðu ýmsar óvenjulegar hindranir á vegi vegalagningamann- anna á leið þessari, en þeir sigruð- ust á þeim öllum. Þegar þeir náðu að Yukonánni, komust þeir að því, að ísinn á henni var alltof ójafn og hættulegur fyrir mikla umferð. Því lögðu þeir veg yfir ísinn á ánni. Hann var gerður úr trjábolum og var mílufjórðungur á lengd. Síðan dældu þeir vatni úr ánni á ísinn, þangað til trjábolirnir voru komnir á flot og „frystu“ þannig veginn. Þannig tókst þeim að mynda 5 feta þykkan veg úr ís, sem var svo rennisléttur, að það var leikur einn fyrir þunga vörubíla að komast þar yfir. NÝ OLÍUFLUTNINGALEIÐ Olíufélögin höfðu nú uppgötvað geysiauðug olíusvæði þarna á norð- urhjara. En nú urðu þau að leysa mjög erfitt vandamál, þ. e. hvernig koma skyldi olíunni á markað. Yf- irmenn olíufélaganna Atlantic-Rich- field, Humble og British Petroleum halda því fram, að byrjað verði að flytja burt heimskautaolíuna árið 1972. Þeir vona, að þá hafi þeim tekizt að ljúka lagningu olíuleiðsla, sem verða 48 þumlungar að þver- máli og eiga að geta flutt 500.000— 1.000.000 tunnur af olíu á dag yf- ir þrjá fjallgarða allt til Alaska, sem er 800 mílum sunnar. En þang- að eiga olíuskip að sækja olíuna og flytja hana til vesturstrandar Bandaríkjanna. Annar möguleiki er einnig hafður í huga, þ. e. lagning olíuleiðslu í austur meðfram strönd Norður-íshafsins, síðan upp eftir Markonzilánni til tengingar við kanadiskar leiðslur og markað í austanverðum Bandaríkjunum. Yfirmenn olíufélaganna eru líka að athuga þann möguleika að flytja olíuna í risavöxnum olíuflutninga- skipum, sem sigla eiga í austurátt meðfram norðurströnd Kanada, þ. e. hina svokölluðu Norðvesturleið allt til markaðanna á austurströnd Bandaríkjanna. En leið þessi lokast víða af hafís. Stærsta olíuflutninga- skip, sem hefur nokkru sinni verið smíðað í Bandaríkjunum, „Manhatt- an“ að nafni, 115.000 tonn, hefur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.