Úrval - 01.10.1969, Blaðsíða 130
128
ÚRVAL
um dýrlegt hús í Múnchen. Það
stóð við Brienerstræti. Hans og
Cosima bjuggu þar ekki, en hún
hafði skrifstofu þar og hélt áfram
að stjórna öllu heimilishaldinu af
lipurð og myndarbrag.
Sá myndarbragur var líklega
helzt til mikill, ef dæma skal eftir
orðum Peters Cornelius, gamals
vinar Wagners. Von Búlow var allt-
af í hljómleikaferðum, og Cornelius
kvartaði yfir því, að Cosima væri
alltaf á heimili Wagners og það
væri „ómögulegt að hitta Wagner
í einrúmi eða ræða einslega við
hann“. Ennfremur sagði hann:
„Ekkert bréf berst honum í hend-
ur, án þess að Cosima opni það
fyrst og lesi innihald þess fyrir
hann“.
Lúðvík konungur hafði ekki hug-
mynd um samband átrúnaðargoðs
síns og Cosimu, og því virti hann
hana mjög mikils fyrir að hindra
það svo rækilega, að Wagner yrði
fyrir óþarfa ónæði. Eiginmanni
hennar fannst það líka ofur eðli-
legt, að hún skyldi elska hinn mikla
meistara eins og hann sjálfur gerði,
og því grunaði hann ekki heldur
neitt.
Nú var loks byrjað að æfa „Tri-
stan“. Tveim klukkustundum áður
en æfingar byrjuðu, fæddist Cos-
imu dóttir. Það var 12. apríl árið
1865. Henni var gefið nafnið Isolde.
Hún var barn Wagners. Von Búlow
gerði sér ekki grein fyrir því, og
þess vegna fagnaði hann innilega
fæðingu litlu telpunnar, sem hann
áleit vera sitt eigið afkvæmi.
„Tristan“ var stórkostlega vel
tekið. En það olli Wagner nokkrum
vonbrigðum og dró svolítið úr sigr-
inum, að Mathilde Wesendonck, hin
raunverulega Isolde, skyldi ekki
vera viðstödd sýninguna.
Margir höfðu haft horn í síðu
þessa uppáhalds konungsins við
hirðina og gagnrýnt þennan skjól-
stæðing óspart. Og nú voru slúður-
sögurnar komnar á kreik. Wagner
skapaði sér reiði ríkisstjórnarinnar
með opinberu bréfi, hvattur af Cos-
imu, og afleiðingin varð sú, að hann
varð að yfirgefa Múnchen þ. 10.
desember.
I skemmtiferð til Marseilles í lok
janúar barst honum símskeyti, sem
tilkynnti honum lát Minnu úr
hjartasjúkdómi tveim dögum áður.
Wagner fylltist dapurleika, er hin
hinztu bönd slitnuðu þannig. En
þetta hafði það einnig í för með
sér, að Wagner var nú loks frjáls
maður.
Cosima hélt á fund Wagners í
marz, meðan Hans var í hljóm-
leikaferð. Nú dró til mikilla átaka
í einkalífi þeirra. Þau höfðu rekizt
á einbýlishús í Tribschen nálægt
Lucerne, sem Wagner tók sam-
stundis á leigu. Og tveim mánuð-
um síðar flutti Cosima til hans með
öll börnin.
Árið 1870 ól Cosima aðra dóttur
sína með Wagner. Árið eftir gátu
þau loks gengið í heilagt hjónaband
og litlu síðar ól Cosima þriðja barn
þeirra, Siegfried.
Cosima lifði mann sinn í samtals
47 ár og helgaði allt líf sitt fram-
gangi verka hans og minningunni
um hann.