Úrval - 01.10.1969, Qupperneq 32
30
Þegar Lindbergshjónin
gistu ísland
lug Lindberghs í sum-
ar var farið að tilhlut-
an ameríska flugfé-
lagsins „Pan-Ameri-
can-Airways“, en um-
boðsmaður þess félags hér á landi
er Steingrímur rafmagnsstjóri Jóns-
son.
Þriðjudaginn 15. ágúst flaug Lind-
bergh og kona hans frá Angmansa-
lik á Grænlandi, um Yatnsfjörð á
Grænlandi og Yestfirði á íslandi,
til Viðeyjar við Reykjavík og lenti
á Viðeyjarsundi kl. 7.30 um kvöld-
ið. Mikill mannfjöldi hafði safnazt
saman við Reykjavíkurhöfn, því
búizt var við að þar yrði lent. En
er það fréttist að lent yrði á Við-
eyjarsundi, fór fjöldi fólks inn í
svonefnda Vatnagarða, og var þar
saman kominn mikill mannfjöldi,
er hjónin stigu þar á land. Fyrstir
tóku á móti þeim fulltrúar frá bæn-
um og umboðsmaður „Pan-Ameri-
can-Airways“ hér. Mikill mann-
fjöldi beið og í Pósthússtræti fyrir
utan gistihúsið Borg, því þess var
vænzt að hjónin mundu koma til
bæjarins þá um kvöldið og setjast
að á Borg. En fólkið varð fyrir von-
brigðum. Lindberghshjónin komu
ekki. Um nánari atvik að fyrstu
dvöl Lindberghshjónanna hér er
farið eftir heimildum Björns
Bjarnasonar í Viðey, en hjá honum
gistu hjónin fyrstu tvær næturnar,
sem þau voru hér á landi.
Er Lindberghshjónin stigu á land
í Vatnagörðum var bryggjan og allt
svæðið umhverfis svo þéttskipað
fólki, að með naumindum varð
komizt að bílnum, sem flytja skyldi
þau hjónin til Reykjavíkur. Gekk
þetta þó slysalaust, og var nú lagt
af stað með þau, en mannfjöldinn
dreifðist. Þegar þau höfðu ekið um
stund óskuðu þau að snúa aftur í
Vatnagarða, en það stóð heima, að
þegar þau komu þangað var fólk
flest farið. Björn Bjarnason segir
svo frá, að hann hafi verið á heim-
leið á vélbáti sínum, eftir að hafa
aðstoðað við lendingu flugvélarinn-
ar, er hann tók eftir því að Lind-
bergshjónin biðu á bryggjunni í
Vatnagörðum. Sneri hann þá aftur
til sama lands til að vita um erindi
þeirra, en það var að spyrja um
hvort þau gætu fengið að gista á
eynni hjá honum. Kvað hann það
velkomið, ef þau gætu gert sér það
að góðu, sem heimili hans gæti
þeim í té látið. Var þá haldið til
Viðeyjar og komið heim til Björns
um kl. 9 að kvöldi. Þá þau hjónin
þar beina og gistingu og virtust una
sér hið bezta, þótt ekki væru rík-
mannleg húsakynni eða mikið um