Úrval - 01.10.1969, Page 40
38
ÚRVAL
borðmiðju gerðu skákina einfaldari
og líklega til ja.fnteflis, en það jafn-
gilti ósigri fyrir Petrosjan. Hann sá
síðasta möguleika sinn til að halda
í kórónu sína í því að fórna peði, en
ekki varð það honum til neins
ávinnings. Spasskí sneri öllum ógn-
unum til föðurhúsa meðan frípeð
hans labbaði sig áfram, verðandi
drottning. Staðá Petrosjans var erf-
ið, skákin fór “í bið með frípeði til
handa krónprinsinum.
16. júni tók. Spasskí tilboði Pet-
rosians um jafntefli án þess að bið-
skákin yrði tefld og afsalaði sér þar
með kórónunni. Lokastaðan var 12 %
vinningur gegn 10%.
Boris Spasskí, meðlimur í íþrótta-
félaginu Lokomotíf, varð tíundi
heimsmeistarinn í skáksögunni •—
það ágæta afrek hefur nú orðið
kóróna á löngum vegi hans til há-
tinda í skáklist.
Hæfileikar hins nýja heimsmeist-
ara komu mjög snemma í ljós. Hann
komst í fyrsta flokk þegar hann var
tíu ára gamall skóladrengur og hélt
áfram að taka framförum í Ung-
herjaklúbbnum í Leníngrad. 18 ára
varð hann fyrsti (og sá eini
tU þessa) sovézki heimsmeistar-
inn meðal unglinga. Síðan gekk
hann í flokk eldri keppinauta um
heimsmeistaratitilinn, en þó nokkur
ár liðu þar til hann gat kastað
stríðshanzkanum til ríkjandi skák-
konungs.
Leið hans upp á tindinn var ekki
auðveld. Þeir tímar komu að hann
færi forbrekkis, en það var einmitt
þá að baráttuhugur Borisar var upp
byggður. sem síðar færði honum
sigra. Þrátt fyrir ósigra stefndi
Spasskí til hátinda skákft-æglBar.
Árið 1963 hóf hann uppgöngu sína,
sem hefur nú staðið í sex ár og lokið
með sigri.
Á þessum tíma „hefur Spasskí
unnið sannkallað íþróttaafrek með
því að sigra alla sterkustu skák-
menn okkar tíma. Þeirra á meðal
eru Paul Keres, Jefím Geller (tvisv-
ar), M'khaíl Tal, Bent Larsen og
Viktor Kortsjonj. Menn muna að
fyrsta tilraun Spasskís til að fella
Petrosjan úr sessi árið 1966 tókst
ekki. Úrslit þess einvígis urðu 12%
:11%, Petrosjan í vil. En Boris tókst
að vinna bug á ótta sínum við aft-
urför og hann hóf hress í bragði
nýja sókn til lárviðarsveigsins.
Síðasta einvígi tveggja af beztu
skákmönnum okkar tíma stóð í tvo
múnuði. Við urðum öll vitni að þess-
um atburðarríku og hörðu átökum
milli tveggja jafningja, en í þeim
var það aðeins undir lokin að
Spasskí sýndi yfirburði sína og náði
sigri sem hann hafði fyllilega unn-
ið til.
Hinn nýi heimsmeistari er talinn
fjölhæfur skákmaður, sem getur
með jafngóðum árangri og hvaða
aðferð sem er sótt fram og háð
stöðustríð. Einvígið sýnir einnig til-
hneigingar hans fyrir fjörlegt tafl.
Má vera að ástæðan fyrir fjölhæfni
Spasskís í skák sé sú, að kennarar
hans, V. 7ak og A. Tolúsj og nú
síðustu árin í. Bondaréfskí, voru
fulltrúar mismunandi skóla í skák.
Líta má á fimmtu og nítjándu
skákirnar sem þær beztu sem heims-
meistarinn nýi tefldi. I þeim báðum
sýndi Spasskí sókn sem allt brýtur