Úrval - 01.10.1969, Page 53
OLÍUÆÐIÐ MIKLA í ALASKA
51
veríð tekið á leigu af Humble-olíu-
félaginu og gerðar á því nokkrar
breytingar. Því hefur raunverulega
verið breytt í risavaxinn ísbrjót.
Og nú í sumar mun það gera sögu-
lega tilraun til þess að sigla þessa
4500 mílna hættulegu leið. Heppn-
ist þessi Ódysseifsferð, munu olíu-
félögin kannske láta smíða heilan
flota af enn stærri olíuflutninga-
skipum.
MILL J ÓNAMÆRING ARNIR
Enn hafa aðeins verið gerðar
borunartilraunir á ofurlitlum hluta
Norðurbrekku. En olíufélögin kepp-
ast nú um að rannsaka fleiri svæði
og hafa hraðann á. Fylkisstjórn
Alaska hefur í hyggju að bjóða
fram 700.000 ekrur til viðbótar til
afnota síðar á þessu ári, þ. e. hæst-
bjóðendum. (Nokkrar milljónir
ekra mundu líklega vera boðnar til
leigu, ef Bandaríkjastjórn hefði
ekki látið „frysta“ risavaxin svæði
í Alaska, þ. e. bannað afnot af þeim,
þangað til gert hefur verið út um
ýmsar landakröfur Alaskabúa. —
Menn álíta, að næsta sala landa-
leiguréttinda olíufélögunum til
handa kunni að færa Alaska um
hálfa billjón dollara tekjur. Og
fylkisstjórn Alaska mun þar að
auki innheimta ýmis gjöld af olíu-
félögunum og sérstakan vinnslu-
skatt, sem nemur 16.5% af verð-
mæti þeirrar olíu, sem unnin verð-
ur úr jörðu. Þetta er mikið og „æs-
andi“ fé fyrir fylki, sem á gnægð
náttúruauðæfa, sem liggja enn ónot"
uð í jörðu.
Líkurnar á skjótfengnum og auð-
fengnum auðæfum fylkinu og íbú-
um þess til handa hefur jafnframt
haft hvetjandi áhrif í efnahagslífi
fylkisins. Þetta eru fyrstu raun-
verulegu uppgangstímarnir frá því
gullæðið dó út. Og nú eru gistihús-
in í Anehorage og Fairbanks troð-
full af olíuverkfræðingum, jarð-
skjálftamælingafræðingum, flug-
mönnum og ýmsum öðrum starfs-
mönnum olíufélaganna. „Svo getur
farið, að eftir 1—-2 ár 1 viðbót verði
olíumilljónamæringarnir hér í bæ
orðnir yfir 100 að tölu,“ sagði kaup-
sýslumaður nokkur í Fairbanks við
mig. Einn þeirra er lyfsalinn Tom
Miklautsch, sem keypti leigurétt-
indi á 4775 ekrum á einn dollar
ekruna árið 1967. í desember árið
1968 seldi hann hluta leiguréttinda
þessara olíufélagi einu fyrir hluta-
bréf í því, sem námu 2 milljónum
dollara. Hefjist olíuvinnsla þar, mun
Mikloutsch fá viðbótargreiðslu að
viðbættum 25% af heildarágóða.
En þótt menn láti sig dreyma
stóra drauma og alls konar stór-
kostlegur orðrómur sé á stöðugum
sveimi, þá starfa olíufélögin þarna
með hinni mestu leynd. Yopnaðir
verðir gæta flugbrautanna og olíu-
borunartækja og turna. Það gengur
jafnvel svo langt, að olíuborunar-
sveitirnar sjálfar eru fluttar burt
frá borholunum, þegar prófanir á
olíumagni eru framkvæmdar að
borun lokinni. Enginn þeirra, sem
er öllum hnútum kunnugur í
„innsta hringnum“, segir orð, a. m.
k. ekki fyrr en hann er öruggur um,
að borinn hafi örugglega hitt í
mark.
☆