Úrval - 01.02.1970, Side 24
22
undir sænskri stjórn en danskri. En
því höfðu Danir ekki gleymt.
Skothríðin frá virkjunum og skip-
unum í Stokkhólmi, sem fagnaði
fæðingu þessa hvítvoðungs, er síð-
ar nefndist Karl XII., varð táknræn
fyrir ævi hans, sem fyrst og fremst
einkenndist af púðurreyk.
Það var Hedvig Elenora, amma
unga prinsins, sem réð mestu um
uppeldi hans, eins og margt annað
innan hallarmúranna í Stokkhólmi.
Hún var ættuð frá Holstein og hafði
verið gift Karli X. Gústaf, erkióvini
Dana. Hún hafði sjálf látið ræna
húsgögnum og listaverkum úr
dönsku höllunum Frederiksborg og
Kronborg og hataði allt, sem danskt
var. Má fara nærri um hvernig hug-
ur hennar var í garð hinnar dönsku
tengdadóttur sinnar, enda varð ævi
Ulrikku Elenoru sannkölluð harm-
saga.
Karl XI. var að mörgu leyti dugn-
aðarmaður, en mesti harðstjóri. En
móðir hans var enn meiri harðstjóri,
og bitnaði það einkum á hinni
dönsku tengdadóttur hennar, sem
átti að verða „friðardrottningin" á
sínum tíma. Bernskuár Karls hins
unga voru ömurleg Honum var séð
fyrir góðri menntun, en helzta
skemmtun hans voru fífldjarfar
sleðaferðir og bjarndýraveiðar, en
ekki mátti nota skotvopn á birn-
ina. Þegar faðir hans dó og hann
varð konungur, tók amma hans
völdin ásamt sérstöku ríkisráði,
þangað til Karl XII. yrði fullveðja.
En það var hann viðurkenndur ári
siðar, þó ekki hefði hann lögaldur
til. Hann var ekki orðinn 17 ára,
er hann varð einvaldur konungur
ÚRVAL
Svía, Finnlands og ýmissa baltiskra
landa, er Svíar höfðu lagt undir sig
áustan Eystrasalts.
Nú hugðu óvinir Svía sér gott til
glóðarinnar að þjarma að Svíum
og þessum strákgepli, sem orðinn
var konungur þeirra, og gerðu sam-
tök með sér. Friðrik IV. Danakon-
ungur var potturinn og pannan í
þessu ráðabruggi, Hann vildi end-
urheimta löndin, sem Svíar höfðu
tekið, og gerði bandalag við Ágúst
(sterka) II. Pólverja- og Saxakon-
ung, og Rússa-zarinn, sem báðir
óttuðust sænska stálið.
LANDGANGA í RUNGSTED
Karl XII. var á bjarndýraveiðum,
er honum barst sú fregn, að óvin-
irnir þrír hefðu sagt Svíum stríð á
hendur. Hann fór þegar til Stokk-
hólms, og segir sagan, að ungling-
urinn hafi gerbreytzt í einni svip-
an. Hann fór þegar að týgja her-
inn. Frétti hann að Friðrik Dana-
konungur hafði sent her til Hol-
stein, sem var vinveitt Svíum, og
svaraði þá með því að senda sænsk-
an her suður á Skán og kom hon-
um yfir Eyrarsund til Rungsted í
Danmörku, en þaðan var haldið til
Kaupmannahafnar, og var Karl í
fararbroddi. Gerðist þetta svo skjótt,
að það kom flatt upp á Danakon-
ung. En nú ógnaði sænskur her
sjálfri Kaupmannahöfn og Danir
urðu að semja frið og segja sig úr
sambandinu við zarinn og Ágúst
sterka.
Og nú hélt Karl til Rússlands.
Við Narva sigraði hann rússneskan
her Péturs mikla. sem þó var miklu
stærri en hans, og rak Rússa úr