Úrval - 01.02.1970, Blaðsíða 57
DXJKE ELLINGTON
55
nótt. Hann hafði þá hringt um miðja
nótt frá Miami heim til læknisins í
New York. Og Duke kom beint að
efninu og spurði: „Arthur, viltu líta
út um gluggann og gá að því, hvort
það er nógu heiðskírt loft til þess
að fljúga?“ Logan fullvissaði hann
um, að svo væri. Og síðan hefur
Ellington verið sífljúgandi.
EINS KONAR TILBEIÐSLA
Fyrir nokkrum árum. var Elling-
ton að leika í næturklúbb einum í
Redwood Citv í Kaliforníu, þegar
þeir séra John Yaryan og séra C.
Julian Bartlett frá Gracedómkirkj-
unni í San Francisco gáfu sig á tal
við hann. Þeir stungu upp á því, að
hann héldi helgitónleika í dómkirkj-
unni. ,.Ég varð alveg hneykslaður,“
segir Duke núna. „Hvernig gat ég
risið á fætur í þessari miklu dóm-
kirkju og farið að gera einhvern
hávaða? Ég sagði því við þá: „Það
er víst bezt, að þið bíðið og siáið,
hvað setur. Leyfið mér að hugsa
mig vel og vandlega um.“ En seinna
sagði ég svo við þá: „Allt í lagi, af
stað með okkur.“
Þessi helgitónlist var eitt erfið-
asta viðfangsefni Ellingtons fyrr og
síðar. Þetta viðfangsefni var hon-
um raunveruleg ögrun. Hann hefur
ætíð verið trúrækinn (hann les í
biblíunni á hverju kvöldi), og hann
ákvað að semja tónlist, sem væri
þrungin lotningu og fegurð. „Ég
sagði við sjálfan mig: Hérna ert þú,
Duke Ellington, og þarna er þessi
stóra, mikla dómkirkja. Þú getur
ekki látið reka á reiðanum, maður.
Þú mátt ekki vera slyttislegur og
máttlaus. Þú verður að semja tón-
list fyrir dómkirkju, tónlist, sem
rís hátt upp í hæðir.“
Helgitónleikarnir í dómkirkjunni
áttu geysilegum vinsældum að
fagna. Dómkirkjukórinn söng verk
eftir Ellington, á meðan steppdans-
ari dansað.i fyrir framan altarið.
„Hertoginn“ hefur haldið sams kon-
ar helgitónleika síðar í öðrum fræg-
um dómkirkium, þar á meðal St.
John the Divine í New York og í
Coventrydómkirkiunni í Englandi,
og þar að auki í helztu bænahúsum
Gyðinga, en þá hefur verið sungið
á hebrezku. „Þessir hljóroleikar eru
í rauninni tónprédikanir. þar sem
gestum er tjáður hinn eilífi sann-
Ieikur,“ segir Ellington. „Þessi tón-
list og söngur einkennist af diúpri
tilbeiðslu og gleði. Og hvers vegna
skyldi ekki svo vera? Eitt form til-
beiðslunnar er að bióða fram það.
sem þú getur af hendi leyst, bióða
það fram í þjónustu við guð.“
AÐ DREYMA OG SEMJA
Ellington hefði getað setzt í helg-
an stein og varpað af sér öllu þessu
mikla erfiði fyrir löngu. En hann
hefur engar slíkar fyrirætlanir í
hyggiu. Nýlega fór hann í hljóm-
leikaför um Vestur-Indíueyiarnar
og lék eitt kvöld á hverjum stað.
Þaðan flaug hann svo beint til New
York til þess að leika inn á plötur.
Hann fór beint af flugvellinum í
upptökusalinn. Upptaka sú tók þrjár
klukkustundir. Hann lék á píanóið,
en stökk öðru hverju niður af stóln-
um til þess að stjórna hljómsveit-
inni. Þá sveiflaði hann handleggn-
um snöggt upp og niður til þess að
„gefa taktinn". Síðan hnipraði hann