Úrval - 01.04.1971, Qupperneq 13
.. . FÓSTUREYÐINGAR
11
Við fóstureyðingar síðar á með-
göngutímanum, þ. e. frá 14. og út
20. viku, eru tvær algengustu að-
ferðirnar ,,saltvatnsgjöf“ í leg og
skurðaðgerð, svipuð keisaraskurði.
Báðar þessar aðgerðir eru erfiðari
og hættulegri, þar að auki dýrari
og hafa erfiðari andleg eftirköst en
sköfun. Þegar um saltvatnsgjöf er
að ræða, er sjúklingurinn stað-
deyfður og nál er stungið í gegn-
um kviðarholið alveg inn í leg.
Nokkuð af legvökvanum er sogið
burt, en í staðinn er spýtt inn salt-
vatnsupplausn til þess að deyða
fóstrið og framkalla hríðir. Stund-
um tekst ekki að framkalla hríðir,
og þá verður læknirinn að grípa
til hinnar aðferðarinnar, skurðað-
gerðar, er líkist keisaraskurði.
Skurður er gerður neðan til á kvið-
arholið og alveg inn í leg, og fóstr-
ið, legkakan og himnurnar eru
teknar burt. Þetta er líkt og
smækkuð mynd af keisaraskurði.
/------------------------------\
Við rannsókn 46 kvenna,
sem 'höfðu látið eijða
fóstri í sjúkrahúsi í St.
Louis, konmsl læknarnir
Nathan M. Simon og Dav-
id Rotliman að þeirri nið-
urstöðu, að tveir þriðju
hlutar þeirra höfðu
þjáðst af greinilegum
andlegum sjúkdómi, áiður
en fóstureyðingin var
framkvæmd.
v______________________________y
Þetta er álitin vera meiri háttar
skurðaðgerð, og hún skilur eftir
skurðör, sem minnir konuna alltaf
á aðgerð þessa. Kona, sem lætur
gera á sér slíka skurðaðgerð, verður
líka að vera við því búin, að börn,
sem hún kann að ala síðar, verði að
taka með skurðaðgerð, þ. e. að hún
geti ekki fætt þau á eðlilegan hátt.
Ýmsar hliðarverkanir geta kom-
ið fyrir og gera það oft, þegar um
fóstureyðingar er að ræða, hvenær
meðgöngutímans sem fóstureyðing-
in er framkvæmd. Algengust þeirra
er blæðing, ófyrirsjáanlegt fyrir-
brigði, sem getur valdið skjótum
dauða, ef nægilegt blóðmagn er
ekki fyrir hendi til tafarlausrar
blóðgjafar. Við venjulega fóstur-
eyðingaraðgerð, sem framkvæmd
var af mjög reyndum kvensjúk-
dómafræðingi í sjúkrahúsi einu í
New York nú nýlega, þarfnaðist
sjúklingurinn geysilegrar blóðgjaf-
ar, eða samtals 10—15 lítra.
Meðal annarra fylgikvilla má
nefna það, að gat kemur á vegg
legsins, en ef eftir slíku er ekki
tekið, getur það leitt til skemmda
á þvagblöðru eða þörmum. Sýking,
sem orðið getur í getnaðarfærum
við slíkar aðgerðir, getur valdið
ófrjósemi. Skemmd á leghálsi getur
valdið fósturláti síðar meir á öðr-
um þriðjungi meðgöngutíma, vegna
þess að leghálsinn opnast of auð-
veldlega og fóstrið ýtist of fljótt út
úr leginu.
„Þegar framkvæmdar hafa verið
nokkrar fóstureyðingar á konu,
hættir henni fremur til fósturláts,
fæðingar fyrir tímann og erfiðra