Úrval - 01.04.1971, Blaðsíða 37
FlNGUR ADAMS
35
Mynd nálgast mig úr mikilli fjar-
lægð og mörgum uppsprettum.
Hvernig gæti nokkur höndlað
drauma mína, eðlishvatir mínar og
hugmyndir, sem skaut upp úr haf-
sjó tíma og urðu að þróast, þar til
þær öðluðust sýnilega tjáningu.
Og hvernig getur þá nokkur les-
ið það, sem ég ætlaði að segja og
ég varð ef til vill að tjá gegn vilja
mínum?
Að undanteknum mjög fáum
listamönnum, sem hafa rutt listinni
nýja farvegi, virðast flestir ungir
nútíma málarar ekki vita í hvaða
átt þeir vilja halda. í stað þess að
hagnýta sér sína eigin túlkun og
leita síðan að eigin leiðum, trúa
svo margir þeirra á endurvakningu
og endurlífgun þess liðna, þó að
allur heimurinn standi þeim opinn
og bíði eftir áhrifum og nýjum
hugmyndum.
Hér er ekki aðeins um það að
ræða að halda dauðahaldi í fortíð-
ina, heldur einnig að halda við
gömlum listformum, sem hafa lok-
ið erindi sínu.
Nú á tímum eru til kílómetrar af
myndum í „þessum og þessum
stíl“, en að rekast á ungan lista-
mann, sem málar í eigin stíl er
sannarlega sjaldgæft.
Ég er ekki svartsýnismaður. Ég
er ekki á móti neinu listformi,
vegna þess að ég gæti ekki lifað án
listar, og án þess að helga henni
Ég elska list, því hún er eina
ástæðan fyrir tilveru minni. Allt,
sem ég hef gert í sambandi við
hana hefur veitt mér afskaplega
mikla gleði og fullnægju.
En einmitt þess vegna get ég
ekki séð neina ástæðu til þess,
hvers vegna svona margt fólk í
heiminum krefst þess að skilgreina
list, setja saman nákvæmar fræði-
kenningar og túlkun og lætur eigin
fáfræði um list afvegaleiða sig.“
(Erindi flutt á sumarskóla
Guðspekifélagsins að Jaðri
sumarið 1970).
Sparsemi er mjög æskileg — og ihver er sá sem ekki óskar þess, að
forfeður hans hefðu verið gæddir meiru af henni?
S.H.
Karlmenn verða sköllóttir vegna iþeirrar óhemju starfsemi, sem fram
fer inni í höfðum beirra. Það er af sömu ástæðu, sem konum vex svo
sjaldan skegg.
B.B.
Farðu ávallt til bölsýnismannsins, ef þig vantar lán. Hann væntir
þess hvort sem er ekki, að bú greiðir það nokkurn tíma aftur.
H.B.