Úrval - 01.04.1971, Blaðsíða 45
ÞAR SEM AUSTRIÐ OG VESTRIÐ MÆTAST
43
hlykkjast upp gegnum Istanbul til
Sweet Waters í Evrópu.
Gullna hornið, sem er vatnsmik-
ill ós með höfn frá náttúrunnar
hendi, er álitið hafa fengið örnefni
sitt fyrir rúmum þúsund árum síð-
an vegna lögunar sinnar og vegna
sannkallaðrar gullnámu af fiski á
20 til 30 feta dýpi, en fiskur þessi
kom niður með Bosporus á hverju
hausti til vetrardvalar. Uppúr 1930
hafa skipaferðir og mengun frá iðn-
aði hrakið fiskinn burt, en í áætl-
un um endurbyggingu á Stór-Istan-
bul, sem kosta mun um R.107 millj-
ónir, er áformað að hreinsa og end-
urbæta flóann á næstu 20 árum.
Á suðurhlið Gullna Hornsins teyg-
ist 400 feta hár tangi, en á honum
standa þrjú mikil mannvirki, sem
eru aðalsmerki Bosporus sundsins.
Yzt er staðurinn þar sem hinn
sögufrægi gríski herforingi Byzas
vígði borgina Byzantium árið 657
f. K. Fyrir ofan niðurgrafnar rústir
þeirrar borgar rísa mjóir reykháf-
ar og fallegar þakhvelfingar hinna
dreifðu bygginga Topkapi Súltans-
hallar, sem fræg er fyrir fegurð
harems síns og gimsteinasafns.
Við hliðina á Topkapi stendur
óviðjafnanlega Hagia Sophia-
kirkjan með hvelfda þakinu, en
hún er elzta kristna dómkirkjan í
heimi. Hún var byggð á þeim stað,
þar sem Konstantin mikli reisti
kirkju árið 320 í miðri nýstofnaðri
borg sinni Konstantinopel. í næst-
um 1000 ár var Konstantinopel
fremsta borg í heimi, höfuðborg
Byzantiska Keisaraveldisins, sem
drottnaði á miðöldunum með miklu
valdi, auðlegð, vísindum og listum.
Eftir að Ottoman Tyrkirnir sigruðu
Konstantinopel árið 1453, var borg-
in nefnd Istanbul. Hagia Sophia var
breytt í múhamedanskt bænahús,
og síðar, árið 1935, í safn.
Aftast í röðinni mótar fyrir út-
línum hins risastóra Bláa Musteris
með sex örgrönnum turnum. Það
var byggt árið 1616 sem keppinaut-
ur við Hagia Sophia og er stærsta
bænahúsið í Istanbul, en fram á
síðustu öld var það samkomustað-
ur fyrir pílagríma á leið til Mekka.
Um leið og við siglum fyrir höfð-
ann, förum við fram hjá hinni 600
metra löngu marmaraskipabryggju
barokk hallarinnar Dolmabahce.
Hún er síðasta heimili súltansins