Úrval - 01.04.1971, Síða 59

Úrval - 01.04.1971, Síða 59
STJARNA VONARINNAR LJÓMAR ENN 57 ist aldrei hljómlist né hlátur frá litla torginu, þar sem sundurskotin hús hölluðust eins og drukknir menn, sem eru í þann veginn að missa jafnvægið. Slík sjón fékk manni hugarangurs, en yfir rúst- irnar barst blómailmur að vitum, líkt og stæði maður yfir gröf. Þorp- ið var dautt, en með því að það hafði verið mér svo kært, vöktu ör- lög þess beiskju og örvæntingu í huga mínum. Flest unga fólkið var farið á burt. Aðeins börnin og gamla fólkið var eftir og sveimaði, að því er mér virtist, líkt og vofur innan um rúst- irnar og hélt í sér lífinu með því að róa til fiskjar í lélegum bátum með bætt net. í þessum hóp var María. Stund- um var lítil tíu ára gömul stúlka í fylgd með henni, sennilega barna- barn hennar, berfætt, grönn og gelgjuleg. Hún rölti við hlið gömlu konunnar og hrópaði skrækri og áfergjulegri röddu: ,,Pesci . . . pesci freschi", líkt og hún væri einráðin í að taka af allan vafa urri það, að fiskurinn þeirra væri sá nýjasti á markaðinum. Eg horfði á þær dap- ur í bragði, því að mér fannst ein- hvern veginn þær fylla þann flokk, sem í fávizku og tilgangsleysi halda dauðahaldi í fortíð, sem er horfin að eilífu. Einn morgun hitti ég þær á torg- inu og tók þær tali. Jú, þær höfðu verið í þorpinu meðan loftárásirn- ar gengu yfir það. Það höfðu verið slæmir tímar meðan á styrjöldinni stóð. Nú áttu þær heima í ofurlít- illi herbergiskytru í Via Eustachia, þröngri götu, sem var einustu leif- arnar af fátækasta hverfi bæjarins. Gremjan og beiskjan, sem gróf um sig í huga mér, og var vitan- lega sprottin af minni eigin bölsýni og óánægju, varð einhvern veginn að fá útrás, og ég spurði skyndi- lega: „Hvers vegna farið þið ekki burt úr þessu þorpi? Hér er engin framtíð fyrir ykkur . . . allt í rúst- um . . . hér er allt búið að vera.“ „Við eigum heima hérna. Við trú- um því ekki, að allt sé búið að vera.“ Um leið, og þær geng'u burt horfð- ust þær snöggvast í augu, líkt og einhver leynilegur boðskapur færi á milli þeirra. Þetta augnatillit þeirra vakti for- vitni mína. Næstu daga hafði ég gát á hreyfingum þeirra og forvitnað- ist um hvað þær hefðust að. Fyrri hluta dags sinntu þær ákveðnum verkefnum, en síðari hluta dagsins hurfu þær gjörsamlega. Hvað eftir annað, að loknum hádegisverði, gekk ég niður í Via Eustachia, en kom alltaf að litla herberginu þeirra tómu. Gat það verið, að þær væru ekki eins einfaldar og ég hafði haldið, og að fjarvera þeirra síðdegis á hverjum degi stæði í sambandi við einhverjar leynilegar fjáröflunarferðir, smygl eða svarta- markaðsbrask? Sg tók mig því til einn daginn og fór í fyrra lagi af stað áleiðis í Via Eustachia, einmitt á þeim tíma sem ég var vanur að taka mér hádegis- hvíld á baðströndinni. Sg tók mér stöðu í porti nokkru, skammt frá híbýlum konunnar. Ekki þurfti ég lengi að bíða. Klukkan rúmlega eitt komu þær María og barnabarn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.