Úrval - 01.04.1971, Side 60
58
ÚRVAL
hennar út úr húsinu. Þær voru báð-
ar með tómar tágakörfur og lögðu
leið sína eftir strætinu og hröðuðu
sér eins og þeim lægi mikið á. Eg
veitti þeim eftirför svo lítið bar á.
Þær klöngruðust yfir múrsteins-
hrúgur og rusl, sem hvarvetna
þakti strætið, gamla konan og barn-
ið. í útjaðri þorpsins lögðu þær leið
sína eftir vegi, sem lá niður að
uppþornuðum árfarvegi. Elg klifraði
upp á hæð eina og sá mér þá til
mikillar undrunar, að fleira fólk
var komið á staðinn og vann af
kappi með haka og skóflu á tinnu-
hörðum gilbotninum. María og litla
stúlkan lögðu frá sér körfurnar og
tóku til vinnu. í fyrstu hélt ég að
þær væru að grafa fyrir einhvers
konar beitu, en svo tók ég eftir, að
telpan fór að fylla litlu körfuna
sína með hvítum sandi, meðan
gamla konan fyllti sína af hvítum
teningslaga steinum, sem hún virt-
ist velja af mikilli vandvirkni. Þeg-
ar þær höfðu fyllt körfurnar, lyftu
þær byrðunum á axlir sér og lögðu
af stað upp brattan og þröngan stíg-
inn.
Þær gengu fast fram hjá mér, en
gáfu mér þó engan gaum, frekar en
þær vissu ekki af mér. Þegar þær
voru komnar spölkorn fram hjá
mér, hélt ég í humátt á eftir þeim.
Leiðin lá upp á hæð, er var slétt
að ofan, og sá þaðan út yfir allt
þorpið. Þangað hafði ég ekki kom-
ið fyrr á gönguferðum mínum, en
þessi staður virtist sá eini á stóru
svæði, sem óspilltur var af sprengj-
um og öðrum styrjaldarmerkjum. I
akasíulundi nokkrum þarna uppi á
hæðinni var mikill fjöldi þorpsbúa
að verki. Þeir unnu þarna hljóð-
lega og lágmæltir að því að blanda
steypu og höggva til hina fallegu,
hvítu steina, og hlóðu úr þeim veggi
að nýrri og mikilli byggingu. Allar
aðfarir þeirra höfðu á sér einkenni-
legan hátíðleikablæ.
Mér var í fyrstu ráðgáta, hvað
fólkið væri að gera, en skyndilega
varð mér ljóst, af því litla sem bú-
ið var að reisa, hvers konar bygging
var að rísa þarna af grunni. Eg
greip andann á lofti. Þetta fólk, sem
hafði naumast þak yfir höfuðið og
var svo grátt leikið af styrjöldinni,
sem raun bar vitni, þessar konur,
börn og gamalmenni, sem í minum
augum voru einungis sigraðir og
útdauðir skuggar, höfðu valið sér
sem sitt fyrsta verkefni að reisa
með eigin höndum nýja og veglega
kirkju. Ekki bænahús til bráða-
birgða, heldur fegurra og stærra
guðshús en þeir höfðu nokkru sinni
fyrr átt.
María og litla telpan tæmdu körf-
urnar sínar. Þær staðnæmdust of-
urlitla stund til að kasta mæðinni,
svo lögðu þær af stað eftir nýrri
byrði. Um leið og gamla konan
gekk fram hjá mér, með svitaperl-
ur á enni sér, leit hún skyndilega
til mín og brosti örlítið við mér.
Mér fannst vera ögrun í brosinu,
eins og hún vildi segja: „Erum við
kannski búin að vera, eða hvað?“
Mér fannst ég geta lesið alla ævi
hennar út úr þessu eina tilliti, for-
tíðina, nútímann og framtíðina.
þarna var hugrekki og þrautseigja,
trúnaðartraust og þolinmæði, vilji
til að lifa frá degi til dags og sætta